„Aðalatriðið er kannski, og ég vil leggja alveg sérstaka áherslu á þetta, að vita hvar stofnlokar eru inn í húsið ef það fer eitthvað að leka. Ég held að þetta sé mjög gott fyrir húseigendur almennt séð ef þeir lenda í því að eitthvað gerist í kerfinu að vita hvar eigi að loka fyrir ef það verður skyndilegur leki,“ sagði Böðvar Ingi Guðbjartsson í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.
Það skipti máli að þekkja hvar mælagrindin sé og inntakið í húsið. Hann ráðleggur fólki jafnframt að fá fagmann til að merkja grindina og veita því innsýn í það hvernig kerfið virkar og hverju þurfi almennt að fylgjast með.
Gott að skoða alla ofna
Næsta ráð sé að kanna reglulega ástand ofna, einkum ef fólk verður vart við að þeir hitni misvel.
„Labba núna á alla ofna, prófa að skrúfa þá í botn og ef það er góð virkni þá ertu í góðum málum. En ef þú ferð að finna það að ofnarnir eru ekki að hitna eins og venjulega, það er kannski einn ofn sem hitnar mikið og aðrir ofnar eru nánast kaldir, þá myndi ég fara að huga að því að fara að fá mér fagmann.“
Í slíkum tilvikum sé loft í ofnum sjaldnast sökudólgurinn nema einhver hafi verið að vinna við kerfið.
„Ef fólk finnur að krafturinn á heita vatninu er farinn að minnka og ofnar eru farnir að hitna misvel þá gæti þetta í fyrsta lagi legið í inntaksíunni inni í tækjarýminu,“ bætir Böðvar hjá Félagi pípulagningameistara við.
Þá sé hægt að heyra í veitufyrirtæki á borð við Veitur og fá mann til að kanna hvort inntakssían sé stífluð.
„Þetta gerist oft í hverfum þar sem mikið er verið að vinna í eða myndast svona mikill titringur þar sem dreifikerfi er. Líka ef Veitur eru að vinna almennt við kerfið, þá getur eitthvað losnað í lögnum sem skilar sér síðan í inntakssíurnar.“
Ef sían er hrein sé til dæmis hægt að kanna þrýstijafnara. Þar beri að hafa í huga að virkni þeirra versni eftir um sautján ár, að sögn Böðvars.
„Svo standa þessir lokar kannski óhreyfðir í mörg ár, jafnvel tugi ára og svo á endanum stoppa þeir og þá finnur fólk að gólfhitinn eða ofnakerfið er farið að skila ekki þeim hita sem því er ætlað,“ bætir hann við.
Íslendingar þurfi að hugsa sinn gang
„Við erum miklir bruðlarar þegar kemur að heitu vatni en það eru líka áskoranir hjá okkur vegna þess að það er mikið búið að púsla við dreifikerfið,“ segir Böðvar.
Þá bendir hann á að Norðurorka í Eyjafirði hafi nýlega lent í því að staðan í birgðageymum hitaveitunnar fór um tíma niður fyrir öryggismörk eftir bilun í borholu.
„Fyrir mér er þetta brýning fyrir okkur um að við þurfum að vera rosalega meðvituð um orkuna okkar og megum alveg fara að hugsa þetta upp á næsta skref hvað það varðar að fara að passa vel upp á þessa dýrmætu orkuauðlind sem við eigum. Auðvitað verður það framtíðin að við þurfum síðan að fara að stilla kerfin betur.“
Hann finni fyrir ákalli um að Íslendingar fari að tileinka sér hitamenningu, læra betur inn á kerfin sín og bregðast strax við ef eitthvað breytist.
„Vegna þess að það er alveg vitavonlaust að vera að standa í einhverjum aðgerðum þegar frostkaflinn er kominn. Þá er líka hætt við skemmdum og fleiru ef fólk er með snjóbræðslur og svona.“
Böðvar bendir á að ofnar eigi ekki að vera jafn heitir að ofan og neðan, slíkt sé merki um of mikla eyðslu.
„Ef þeir eru vel heitir að ofan og svona ylvolgir að neðan þá er það í lagi.“