Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, kynnti í gær tillögur að nýjum refsiaðgerðapakka gegn Rússum. Refsiaðgerðapakkinn verður sá 22. í röðinni sem beinist gegn Rússum, verði hann samþykktur.
Von der Leyen segir að refsiaðgerðirnar nái meðal annars til 60 banka og viðskipta á rafmyntamarkaði. Tillögurnar gera meðal annars ráð fyrir að bankarnir verði fjarlægðir úr SWIFT-skilaboðakerfinu sem er notað fyrir alþjóðlegar greiðslur. Sérstakur starfshópur um rafmyntaþvinganir verður stofnaður til að hafa eftirlit með viðskiptum á rafmyntamarkaði.
Refsiaðgerðirnar hafa einnig áhrif á rússneskt íþróttafólk og íþróttalið sem verður meinað að keppa undir fána Rússlands. Bannað verður að sýna rússnesk tákn opinberlega og takmarkanir verða á styrkjum frá rússneskum styrktaraðilum til íþrótta- og menningarsamtaka með aðsetur í Evrópu.
70 skipum verður bætt á lista yfir skip sem eru undir viðskiptaþvingunum. Á þessum lista eru einkum gömul olíuskip sem Moskva nýtir til að komast hjá takmörkunum á olíuútflutningi.
Þá verður rússneskum hermönnum sem barist hafa í Úkraínu bannað að ferðast til landa Evrópusambandsins. Þessi tillaga var samþykkt af aðildarríkjum ESB í október vegna vaxandi ótta við fjölþáttaógnir, skemmdarverk og afskipti Rússa í Evrópu.
Öll 27 aðildarríki Evrópusambandsins þurfa að samþykkja tillögurnar áður en refsiaðgerðirnar taka gildi. Umræðan um þær getur tekið nokkrar vikur en líklegt er talið að einhverjar breytingar verði gerðar á tillögunum.