Trump er sagður áfjáður í að framkvæma mikið afrek á alþjóðasviðinu áður en hann lætur af embætti eftir tvö ár.
Samkvæmt heimildum Wall Street Journal reyndi Trump að ná í Kim í síma í fyrra. Það tókst ekki og enginn hringdi til baka frá Norður-Kóreu. Trump kvartaði yfir því í fyrra að Norður-Kórea ætti kjarnorkuvopn en hefði ekki góða símaþjónustu.
Því næst skrifaði Trump bréf til einræðisherrans en þá stóðu Trump-liðar frammi fyrir þeim vanda að vita ekki hvernig koma ætti bréfinu til Pyongyang.
Því var brugðið á það ráð að sitja fyrir utan skrifstofu sendinefndar Norður-Kóreu gagnvart Sameinuðu þjóðunum í Manhattan og bíða eftir að erindreki sæist þar fyrir utan. Þegar einn gekk úr húsinu gengu starfsmenn Hvíta hússins að honum og settu umslag með bréfi frá Trump í hendurnar á honum.
WSJ segir að skömmu síðar, á fundi hjá Sameinuðu þjóðunum, hafi erindrekinn norðurkóreski sett óopnað umslagið á borð erindreka frá Bandaríkjunum.
Þegar Trump reyndi að funda með Kim þegar þeir voru báðir í Kína á dögunum setti einræðisherrann Bandaríkjamönnum ströng skilyrði sem Trump-liðar gátu ekki sætt sig við.
Þetta er þrátt fyrir að þeir hafi fundað þrisvar sinnum á fyrsta kjörtímabili Trumps.
Á sama tíma er talið að kjarnorkuvopnum Norður-Kóreu hafi fjölgað töluvert. Þegar Trump og Kim hittust síðast árið 2019 var talið að Kim sæti á tuttugu til þrjátíu kjarnorkuvopnum. Nú er talið að hann eigi um sextíu en einhverjir greinendur telja vopnin geta verið nokkur hundruð.
Trump hefur lagt mikið kapp á það að ná sambandi við Kim aftur, þar sem hann telur sig geta fengið hann til að láta kjarnorkuvopnin af hendi.
Starfsmenn leyniþjónustu Bandaríkjanna segja Kim ekki hafa nokkurn áhuga á því að láta vopnin af hendi.
Í mati leyniþjónusta Bandaríkjanna sem birt var í mars kom fram að yfirvöld í Norður-Kóreu ætluðu sér að stækka kjarnorkuvopnabúrið enn frekar og halda áfram að þróa og framleiða eldflaugar sem geta borið þau vopn, meðal annars til meginlands Bandaríkjanna.
Sambandið skilar ekki árangri
Ráðamenn í Bandaríkjunum hafa um áratugaskeið gert tilraunir til að fá leiðtoga Norður-Kóreu til að hætta við þróun kjarnorkuvopna og svo að láta vopn sín af hendi. Til þessa hafa þeir beitt viðræðum og refsiaðgerðum og reynt að einangra ríkið verulega.
Hingað til hefur það ekki skilað árangri en Trump virðist hafa lagt mikla áherslu á að reyna að byggja upp gott persónulegt samband við Kim og nota það til að hafa áhrif á einræðisherrann.
Árið 2018 skrifuðu Trump og Kim undir yfirlýsingu á fundi þeirra í Singapore, en þá varð Trump fyrsti bandaríski forsetinn til að hitta einræðisherrann. Yfirlýsingin var eins konar handrit að frekari viðræðum ríkjanna á milli og hittust leiðtogarnir aftur ári síðar.
Trump sleit viðræðunum eftir þann fund þegar honum tókst ekki að fá Kim til að hætta þróun kjarnorkuvopna.
Síðan þá hefur hann ítrekað talað um gott samband sitt við Kim. Samband þetta virðist nokkuð einhliða.
Hernaðaruppbygging í Norður-Kóreu
Norður-Kórea er ekki eins einangrað land og það hefur verið undanfarna áratugi. Kim hefur styrkt viðskiptasamband við Rússland og í gegnum sífellt aukið samstarf Norður-Kóreu, Rússlands, Kína og Íran hefur herafli Kim gengist talsverða uppbyggingu og nútímavæðingu.
Kim er talinn hafa fengið sérstaka aðstoð frá Rússlandi hvað varðar þróun eldflauga og fleira.
Samstarfið hefur þar að auki gert öllum ríkjunum auðveldara að komast hjá refsiaðgerðum og viðskiptaþvingunum, samkvæmt nýlegri skýrslu frá bandarísku hugveitunni Center for strategic & international studies.
Sjá einnig: Vopnakapphlaup á Kóreuskaga
Kim er farinn að framleiða sína eigin dróna í Norður-Kóreu og er eins konar vopnakapphlaup farið af stað á Kóreuskaga, þar sem ráðamenn í Suður-Kóreu óttast sífellt meira að Bandaríkjamenn myndu ekki koma þeim til aðstoðar í mögulegu stríði gegn Norður-Kóreu.
Bandaríkjamenn hættu nýverið að deila upplýsingum um Norður-Kóreu með Suður-Kóreu, eftir að Hvíta húsið kvartaði yfir því að fyrrverandi utanríkisráðherra Suður-Kóreu hefði opinberað tilvist kjarnorkurannsóknarstöðvar í Norður-Kóreu.
Þeim ráðherra hefur verið skipt út en samkvæmt Reuters er nýi ráðherrann talinn sérstaklega góður í því að eiga í samskiptum við Bandaríkjamenn.
Samhliða þessari þróun hefur mikil spenna myndast á Kóreuskaga á undanförnum vikum og mánuðum. Í lok síðasta mánaðar komu Norður-Kóreumenn fallbyssum fyrir við landamæri ríkjanna og beindu þeim til suðurs.
Innan Hvíta hússins skortir skýra sýn gagnvart Norður-Kóreu, samkvæmt frétt WSJ. Trump hefur ekki skipað neinn í sérstakt embætti Hvíta hússins um málefni Norður-Kóreu og var einræðisríkið ekki nefnt á nafn í nýjustu þjóðaröryggisskýrslu Hvíta hússins. Það er í fyrsta sinn frá tímum kalda stríðsins sem Norður-Kórea er ekki nefnd í þessu skjali.