Við fylgjum planinu eftir. Ákveðum þó að horfa á einn þátt eða skrolla aðeins í símanum áður en við lokum augunum og…
Búmm!
Við lítum á klukkuna og allt í einu er hún orðin 23.27. Okkur dauðbregður. Ákveðum samt að klára þáttinn eða skrolla pínkulítið meira en ekki seinna vænna en að fara að sofa.
Búmm!
Við lítum á klukkuna og allt í einu er hún orðin 00.03.
Nú er þetta orðið stress. Átta klukkustunda svefnplanið er fyrir bí og eins gott að sofna 1, 2 og 3.
Spurt er:
En hvers vegna eigum við það til að vaka of lengi þótt við séum dauðþreytt?
Er þetta símanum að kenna?
Eða erum við sjónvarpsfíklar?
Nei – þetta er nefnilega þekkt fyrirbæri sem á ensku kallast revenge bedtime procrastination, eða hefndarfrestun á háttatíma.
Það voru hollenskir vísindamenn sem kynntu frestun á háttatíma til sögunnar 2014 í kjölfar þess að hafa rannsakað þessa hegðun.
Því já, svo virðist sem fólk víða um heim sé að falla í sömu gryfju og við.
Hefndin felst í því að við náum okkur niðri á deginum sem skildi engan tíma eftir fyrir okkur sjálf; kvöldið verður þá eina stundin sem við eigum.
Fórnarkostnaðurinn þá auðvitað svefninn.
Það sem sérfræðingar virðast vera sammála um er að þessi „hefnd“ sé nokkurs konar bil á milli sjálfstjórnar og ásetnings: Við vitum að við ættum að fara að sofa en gerum það ekki.
Vísindin eru þó ekki sammála um nákvæma skýringu. Sumir vilja meina að sjálfstjórnin sé einfaldlega búin á tankinum okkar á kvöldin; við erum orðin þreytt. Aðrir segja B-manneskjur vera skýringuna; það sé hópur sem þurfi að laga sig að almennri dagskrá sem í raun hentar þeim illa. Enn aðrir segja þetta afleiðingu af streitu, við séum í raun að jafna okkur á streitu frekar en að okkur skorti viljastyrk.
Hugmyndir að góðum ráðum:
Að færa kvöldtímann okkar framar: Fara fyrr upp í rúm og gefa okkur svigrúm til að eiga smá stund þar áður en við förum að sofa.
Borða fyrr – horfa á sjónvarpið fyrr – skrolla í símanum fyrr – halda síðan áætlun um að fara í háttinn.
Búa til kvöldrútínu sem er fastmótuð. Því fastar venjur geta orðið að nánast sjálfvirkri hegðun.