Donald Trump Bandaríkjaforseti og Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, hittast á fundi í Palm Beach á Flórída á morgun, miðvikudag. Reuters greinir frá og vísar í tilkynningu frá Hvíta húsinu.
Stutt er síðan Trump fundaði með Vladimír Pútín forseta Rússlands og Xi Jinping forseta Kína.
Trump hefur ítrekað gagnrýnt vestræna bandamenn Bandaríkjanna og kallað Pútín og Xi „vini“ sína. Evrópuþjóðir hafa þrýst á að vera með í viðræðum við Úkraínu og Rússland til að binda enda á stríðið í Úkraínu.