Ísland, auk 13 annarra landa, hefur viðurkennt dóm Alþjóðadómstólsins í Haag um að þjóðarmorð hafi verið framið í Mjanmar.
Utanríkisráðherrar Ástralíu, Belgíu, Bretlands, Eistlands, Gambíu, Íslands, Kanada, Kýpur, Lettlands, Lúxemborgar, Nýja-Sjálands, Portúgals, Spánar, og Tékklands, sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu í gær. Í henni segja ráðherrarnir að úrskurður dómstólsins sé bindandi fyrir Mjanmar og þjóðirnar skora á Mjanmar að uppfylla að fullu skuldbindingar sínar samkvæmt alþjóðalögum og þar með talið úrskurð dómstólsins.
Utanríkisráðherra Breta, Ed Miliband, tók sérstaklega fram að Bretland viðurkenni formlega þjóðarmorð gegn Róhingjum og tilkynnti um refsiaðgerðir gegn fimm háttsettum hermönnum. Refsiaðgerðirnar fela einnig í sér frystingu eigna og ferðabann, auk laga gegn útflutningi og afhendingu á flugvélaeldsneyti til Mjanmar.
Bretar ætla auk þess að leggja fimm milljónir punda í mannúðaraðstoð til stuðnings Róhingjum og til þeirra sem mest þurfa á henni að halda í Rakhine-héraði í Mjanmar, þar sem mikil þörf er á aðstoð. Þar að auki leggja Bretar til þrjár milljónir punda sem er ætlað að efla ábyrgð og réttlæti fyrir þolendur mannréttindabrota um allt Mjanmar.
Stjórnvöldum í Mjanmar ber að taka á móti flóttafólki aftur
Gambía höfðaði málið gegn Mjanmar í nóvember 2019 fyrir hönd Samtaka íslamskra ríkja (OIC). Dómur Alþjóðadómstólsins féll 19. nóvember. Þetta er í fyrsta sinn sem ríki er dæmt sekt fyrir hópmorð, sem í daglegu tali kallast þjóðarmorð. Stjórnvöld í Mjanmar segja aðgerðirnar hafa beinst gegn uppreisn. Þau segja úrskurðinn ósanngjarnan og mikil vonbrigði.
Dómstóllinn úrskurðaði einnig að yfirvöld í Mjanmar verði að „leyfa og auðvelda örugga, sjálfviljuga og virðulega heimkomu“ flóttafólks, hvort sem fólkið flúði innan landsins eða til annarra landa. Sameinuðu þjóðirnar áætla að um 1,3 milljónir Rohingja séu á vergangi, flestir í Bangladess en um 200.000 eru í Rakine-héraði í Mjanmar.
Stjórnvöld í Malasíu hafa greint frá því að þau ætli að flytja yfir 6.500 Róhingja til Mjanmar á kostnað ríkisstjórnarinnar þar. 1.500 voru fluttir frá Malasíu til Mjanmar í september. Mannréttindasamtök hafa lýst yfir áhyggjum af öryggi þeirra sem voru fluttir til baka til Mjanmar.
Stjórnvöld í Mjanmar segjast ætla að leita skýringa frá stjórnvöldum í Mjanmar um það að hundruð flóttamanna sem voru send til baka til Mjanmar séu í haldi hersins.