Bandarískur lýtalæknir hefur verið dæmdur til dauða fyrir að myrða lögmann sem kom að dómsmáli gegn honum. Morðið var framið á lögmannsstofu í Flórída fyrir rúmum þremur árum en lík fórnarlambsins hefur aldrei fundist.Lýtalæknirinn, Tomasz Kosowski, er 47 ára gamall. Hann var dæmdur til dauða síðastliðinn föstudag eftir að hafa verið fundinn sekur um morð af fyrstu gráðu eftir réttarhöld í september.Bandaríska tímaritið People greinir frá málinu.
Lýtalæknir dæmdur til dauða fyrir morð á lögmanni – Líkið hefur aldrei fundist