Fyrirtækið sem rekur tjaldstæðið á Egilsstöðum hefur malað gull síðustu ár. Á árunum 2023 til 2025 hagnaðist fyrirtækið um rúmlega 116 milljónir og greiddi út 98 milljóna króna arð. Tekjurnar á þessu tímabili námu 264 milljónum króna. Hagnaðarhlutfallið er því meira en 40 prósent sem telst afar gott og hátt í rekstri fyrirtækja almennt séð.
Fyrirtækið rekur þetta þekkta og vinsæla tjaldsvæði á grundvelli samnings við sveitarfélagið Múlaþing sem á tjaldsvæðið sem staðsett er í miðjum bænum. Eigandi rekstararaðila tjaldsvæðisins heitir Heiður Vigfúsdóttir.
Í ársreikningi rekstrarfélagsins sem rekur tjaldsvæðið, Austurfarar ehf., er ekki sundurgreint hversu mikið af tekjunum koma beint frá rekstri á tjaldstæðinu og hversu mikið eru tekjur af öðrum rekstri. Tilgangur félagsins er sagður vera að reka ýmsa ferðaþjónustu- og fjárfestingatengda starfsemi.
Heiður segir í sms-skilaboðum til fréttastofu að áætla megi að um 60 prósent af tekjum rekstrarfélagsins séu vegna tjaldsvæðisins. Hún segir að sveitarfélagið Múlaþing hafi verið mjög ánægt með samninginn við Austurför og að hún hafi fjárfest mikið í tjaldsvæðinu á liðnum árum og rifið það upp úr öskunni sem það hafi verið í þegar hún gerði samninginn um það.
Af þessu sést hversu arðbær rekstur á tjaldstæðum getur verið í ferðamannalandinu Íslandi. Í þessu tilfelli er um að ræða ákveðin opinber gæði, tjaldsvæði í eigu sveitarfélags sem veruleg arðsemi getur verið af í framleigu til rekstraraðila.
Fjallað er um rekstur þessa tjaldsvæðis og rekstur tjaldsvæða almennt á Íslandi í fréttaskýringaþættinum Þetta helst. Þáttinn má hlusta á hér:
Leigan á tjaldsvæðinu er 3,8 milljónir á ári
Sveitarstjórinn í Múlaþingi, Dagmar Ýr Stefánsdóttir, segir að byggðaráð sveitarfélagsins muni taka ákvörðun um það hvort samningurinn um tjaldstæðið verði boðinn út í lok næsta árs en þá rennur núverandi samningur út. „Það hefur verið ákall varðandi þetta tjaldsvæði að það verði boðið út,“ segir Dagmar.
Málefni þessa tjaldsvæðis hafa nokkuð verið til umræðu í bænum vegna þessarar arðsemi tjaldsvæðisins og eins vegna þess að upphaflegur samningur um leiguna á tjaldstæðinu var ótímabundinn. Þessu var breytt í fyrra og rennur samningurinn sem nú er í gildi út í lok næsta árs.
Í samningi sveitarfélagsins við rekstraraðila tjaldsvæðisins, Austurför, kemur fram að leigan á tjaldsvæðinu sé tæplega 3,8 milljónir króna á ári. Þessi leiguupphæð byggir á viðauka við samning sem var gerður árið 2023 þar sem leigan á tjaldsvæðinu var hækkuð upp í þetta. Leigan á tjaldsvæðinu var því enn þá lægri en þetta á árunum 2017 til 2023 og samningurinn um tjaldsvæðið var ótímabundinn.
Austurför rekur líka gestastofuna Egilsstaðastofu sem er þjónustumiðstöð sem veitir ferðamönnum upplýsingar um Fljótsdalshérað. Gerður var sérstakur samningur um þetta árið 2017. Austurför rekur því bæði tjaldsvæðið og upplýsingamiðstöðina á grundvelli samnings við bæinn.
Fréttastofa óskaði eftir útvarpsviðtali við eiganda rekstrarfélags tjaldsvæðisins, áðurnefnda Heiði Vigfúsdóttur. Hún sagðist ekki vilja koma í útvarpsviðtal og vísaði til þess að hún vildi ekki láta draga sig inn í langvarandi deilur í sveitarfélaginu sem hún tengist ekki.
Úrskurðar um viðbót við tjaldsvæðið
Deilurnar sem hún vísar til snúast um tilraunir fasteignaeiganda við hlið tjaldsvæðisins til að fá hluta starfsleyfis þess fellt úr gildi. Hann heitir Halldór Jón Halldórsson og rekur verktakafyrirtæki sem heitir HJH ehf. Hann telur sig verða fyrir óþægindum af tjaldsvæðinu. Hann kærði útgáfu starfsleyfis fyrir viðbótartjaldsvæði á Egilsstöðum til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála á þessu ári.
Í lok október felldi nefndin úr gildi starfsleyfi fyrir þetta viðbótarsvæði líkt og fjallað var um í fjölmiðlum, meðal annars héraðsfréttamiðlinum Austurglugganum, nú í nóvember. Rekstraraðili tjaldsvæðisins mátti bara nota þetta viðbótartjaldsvæði þegar aðaltjaldsvæðið fylltist á sumrin. Nú má hann það ekki lengur samkvæmt úrskurðinum.
Deilur hafa því geisað um tjaldsvæðið sem náð hafa inn í stofnanir samfélagsins.
Sérhæft tjaldsvæðafyrirtæki
Hvernig er rekstrarfyrirkomulag tjaldsvæða á Íslandi almennt? Allur gangur er á því eftir sveitarfélögum.
Sums staðar reka sveitarfélögin sjálf tjaldsvæðin á svæðum sem eru í eigu þeirra. Í öðrum tilfellum eiga sveitarfélögin tjaldsvæðin og gera samninga við rekstraraðila um rekstur þeirra, líkt og raunin er á Egilsstöðum. Svo eru líka dæmi um að einkaaðilar eigi bæði tjaldsvæðin og reki þau einnig.
Eitt fyrirtæki sem er víða í þessum rekstri heitir Landamerki ehf. og er sennilega það stærsta sinnar tegundar hér á landi. Það hefur gert fjölda samninga um rekstur tjaldsvæða víða um land, meðal annars í Vestmannaeyjum þar sem finna má sennilega eitt þekktasta tjaldsvæði landsins í Herjólfsdal. Fyrirtækið hefur líka komið að rekstri tjaldsvæða á Akranesi, Hellu, Fjarðabyggð, Flateyri, á Stokkseyri, Dalvík og víðar. Þetta fyrirtæki var með 120 milljóna króna tekjur í fyrra en tapaði rúmlega 3 milljónum króna. Rekstrartekjurnar hjá þessu fyrirtæki voru því nokkru hærri en hjá fyrirtækinu sem rekur tjaldsvæðið á Egilsstöðum en hagnaðurinn þar umtalsvert meiri eða 43 milljónir króna í fyrra.
Eftir að Ísland hefur orðið að því ferðamannalandi sem það er í dag er hins vegar ljóst að rekstur tjaldsvæða getur verið arðbær og að um er að ræða fjárhagsleg verðmæti sem geta verið há lfyrir bæði sveitarfélögin og rekstraraðilana ef vel gengur. Þetta var alls ekki raunin með sama hætti fyrir 20 árum þegar ekki voru til sérhæfð tjaldsvæðafyrirtæki eins og til dæmis Landamerki ehf.