Börn Lúðvíks Péturssonar, sem lést við vinnu sína í Grindavík þann 10. janúar 2024, hafa kært ákvörðun héraðssaksóknara um að fella niður sakamál vegna andláts hans til ríkissaksóknara.Elías Pétursson, bróðir Lúðvíks og fyrirsvarsmaður aðstandenda, stendur einnig að kærunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðstandendum Lúðvíks í morgun en kæran var send ríkissaksóknara í gær.
Börn Lúðvíks kæra ákvörðun héraðssaksóknara – „Við getum ekki sætt okkur við það“