Veðurstofan varar við austan hvassviðri eða stormi um land allt á morgun og aðfaranótt föstudags. Austfirðingar og íbúar á Suðausturlandi eiga einnig von á mikilli rigningu með hættu á flóðum og samgöngutruflunum.
Vindur getur farið yfir 30 og 35 metra á sekúndu í þekktum veðravítum víða um land. Rigningin suðaustantil getur valdið vatnavöxtum í ám og lækjum.
Áður en að þessu kemur er þó gul viðvörun á miðhálendinu frá klukkan sex til ellefu í kvöld. Þar verður hvassviðri eða stormur. Einnig verða hvassir suðaustan vindstrengir á suðvestanverðu landinu síðdegis, svo sem undir Eyjafjöllum, á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli. Varasamar aðstæður geta skapast fyrir ökutæki sem eru viðkvæm fyrir vindi.
Það byrjar að hellirigna á Austfjörðum og Suðausturlandi strax í fyrramálið. Þar taka gular viðvaranir gildi klukkan fimm og sex.
Hvassviðri eða stormur skellur svo á um hádegisbil á morgun. Fyrsta gula viðvörunin tekur gildi á Austurlandi að Glettingi klukkan ellefu, önnur á iðhálendinu klukkan tólf, sú þriðja á Suðausturlandi klukkan eitt og fjórða á Austfjörðum klukkan tvö.
Síðan færist veðrið norður og vestur, inn á Norðurland eystra og Suðurland klukkan þrjú síðdegis og síðan bætast höfuðborgarsvæðið, Vesturland og Norðurland vestra við um kvöldmatarleytið, klukkan sex.
Fyrstu viðvaranirnar falla úr gildi um og undir miðnætti fyrir austan og á suðvesturhorninu.
Síðustu viðvaranirnar taka gildi klukkan ellefu annað kvöld og falla ekki úr gildi fyrr en á föstudagsmorgun.