Allar vörur frá Pandora á tilboði í dömudeildinni
Í dömudeild Boozt er úrvalið sérstaklega glæsilegt í ár. Skartgripamerkið Pandora nýtur mikilla vinsælda hér á landi og á Svörtudögum er engu til sparað því allar vörur frá Pandora eru á tilboði. Þetta er því kjörið tækifæri til að næla sér í nýtt armband, hring eða eyrnalokka.
Ugg meðal merkja á tilboði
Auk þess má finna vegleg tilboð á fatnaði og skóm frá vinsælum merkjum á borð við Mos Mosh, sem er þekkt fyrir sígild snið og vandaðar flíkur, skómerkið Vagabond og hina sívinsælu og hlýju skó frá Ugg sem koma sér vel í íslenska vetrinum.
Klassískt og stílhreint í herradeildinni
Þeir sem vilja uppfæra fataskápinn eða finna vandaða gjöf ættu ekki að missa af tilboðunum í herradeild Boozt. Þar eru áberandi merki á borð við Polo Ralph Lauren, HUGO og BOSS með mikið úrval af peysum, skyrtum, yfirhöfnum og fylgihlutum á frábæru verði.
KitchenAid er mætt á Boozt
Fyrir áhugafólk um hönnun, matseld og bakstur eru stórtíðindi í heimilisdeild Boozt, en heimsþekkta vörumerkið KitchenAid er nýjung á Boozt og eru margar vörur frá merkinu á tilboði. Vörurnar frá KitchenAid eru rómaðar fyrir bæði endingu og tímalaust útlit sem prýðir hvaða eldhús sem er. Í sömu deild má einnig gera frábær kaup á dönsku ljósahönnuninni frá Nuura og skandinavískri smávöru og húsbúnaði frá Bloomingville.
Útivist og íþróttafatnaður fyrir konur og karla
Hvort sem stefnan er sett á útivist í vetur eða ræktina á nýju ári er úrvalið mikið bæði í íþróttadeild kvenna og íþróttadeild karla.
Fyrir konur: Glæsilegt úrval af útivistarfatnaði frá The North Face, golffatnaði frá Abacus og vinsælum æfingafatnaði frá Aim'n.
Fyrir karla: Vandaður íþrótta- og golffatnaður frá J. Lindeberg, ásamt æfingafatnaði og skóm frá Adidas Performance og Under Armour.
Snyrtivörur og leikföng í jólapakkann
Í snyrtivörudeild Boozt gefst tækifæri til að næla sér í lúxusvörur á afslætti, þar á meðal frá franska tískuhúsinu Yves Saint Laurent, kóreska húðvörumerkinu Medicube og hárvörur frá Kérastase.
Fyrir þau sem eru spenntust fyrir jólunum
Þá er leikfangadeild Boozt stútfull af hugmyndum fyrir yngstu kynslóðina, en þar má finna sívinsæl leikföng frá Lego, Barbie og Fisher-Price á sérstöku tilboðsverði.
Svörtudagar eru í fullum gangi á Boozt og því um að gera að kíkja á úrvalið, nýta sér allt að 60% afslátt og klára jólagjafirnar í tíma með hraðri afhendingu og framlengdum skilafresti til 15. janúar.