Ráðherrar ríkisstjórnarinnar undirrituðu tvo samninga við Landhelgisgæsluna og ríkislögreglustjóra að loknum fundi þjóðaröryggisráðs í dag. Fundurinn var haldinn í varðskipinu Þór af því tilefni að Gæslan varð 100 ára í dag.
Með samningunum á að efla viðbragðs- og eftirlitsgetu beggja stofnana. Samkvæmt tilkynningu á vef Stjórnarráðsins verður sérstök áhersla lögð á að styrkja eftirlitsgetu með drónum og viðbragðsgetu sérsveitar ríkislögreglustjóra með kaupum á sérútbúnum bílum.
Fram kom í frétt Morgunblaðsins fyrr í mánuðinum að sérsveitin hefði þurft að taka í notkun bíl frá því á síðustu öld vegna skorts á tækjum og að einkabílar lögreglumanna hefðu eitt sinn verið notaðir í útkall og tvisvar til æfinga.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra undirrituðu samningana við Landhelgisgæsluna og ríkislögreglustjóra.