Mennirnir voru búnir að grafa námu á Vestur-Jövu og voru að grafa þar gull úr jörðu. Mikil rigning hefur verið á svæðinu og á mánudaginn flæddi nærliggjandi á yfir bakka sína og fór mikið magn af vatni ofan í námuna.
Björgunarsveitarmenn, slökkviliðsmenn og sjálfboðaliðar hafa verið að dæla vatni upp úr námunni en í morgun fundu björgunarsveitarmenn þrjú lík á þrjátíu til fjörutíu metra dýpi, samkvæmt frétt ástralska ríkisútvarpsins.
Talið er að náman sé um hundrað metra djúp.
Stjórnendur námunnar létu yfirvöld ekki vita af slysinu strax, vegna þess að náman var ólögleg. Þess vegna hófust björgunarstörf seint. Fyrst reyndu starfsmenn og heimamenn sjálfir að dæla vatni úr námunni.
Það var ekki fyrr en sextán klukkustundum eftir að vatn flæddi inn í námuna sem fyrstu fregnir af slysinu bárust til lögreglunnar.
Algeng og hættuleg starfsemi
AP-fréttaveitan hefur eftir einum af yfirmönnum björgunarsveita á svæðinu að aðstæður séu erfiðar. Grunnvatn sé enn að flæða inn í námuna, hún sé þröng og engin birta.
Ólöglegar námur eru tiltölulega algengar á Indónesíu. Þúsundir manna vinna í slíkum námum og er sú vinna mjög hættuleg vegna hættu á jarðskriðum, hruni gangna, mengun og flóðum, svo eitthvað sé nefnt.
Gullið er svo unnið með eitruðum efnum eins og kvikasilfri og blásýru og eru verkamennirnir í námunum ólöglega illa varðir gagnvart menguninni.