Þetta kemur fram í nýrri lífskjararannsókn Hagstofunnar en þar segir að hlutfallið hafi tvöfaldast á fimm árum, úr 9,6 prósentum árið 2021 í 19,4 prósent í ár.
Á leigumarkaði er hlutfallið 22,3 prósent þar sem kostnaðurinn þykir þung byrði. Sé litið til allra landsmanna hækkaði hlutfallið úr 11,9 prósentum í 19,5 prósent á þessum fimm árum.
Um 36 þúsund manns eða 9,1 prósent landsmanna bjuggu í ár á heimilum þar sem meira en 40 prósent ráðstöfunartekna fóru í húsnæði. Það átti við um 23,4 prósent þeirra sem bjuggu í leiguhúsnæði og 5,4 prósent þeirra sem bjuggu í eigin húsnæði.
Hagstofan segir að í könnuninni svari einn fyrir hönd hvers heimilis. Við matið áttu þátttakendur meðal annars að taka mið af afborgunum húsnæðislána, fasteignagjöldum og kostnaði við viðhald.