Lögregla var kölluð til í Sæmundarskóla í Grafarholti í Reykjavík á föstudag vegna nemanda sem mætti með hníf og beitti honum í átökum við annan dreng. Í öðru tilviki mætti barn með sérútbúið vopn, þrívíddarprentaðan hníf í Víkurskóla. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hefur tilkynningum um vopnaburð í skólum fjölgað nýverið.
Dagbjört Harðardóttir sérfræðingur í foreldrasamstarfi og forvörnum hjá Heimili og skóla segir ljóst að bregðast þurfi við, skólar séu með viðbragðsáætlanir og verkferla í slíkum tilvikum. „Það gæti verið tilefni til þess að skoða það betur, skólarnir í sameiningu við fleiri hvort það þurfi eitthvað að breyta því, hvort við þurfum að horfast í augu við nýjan veruleika og fara að breyta þessum áætlunum.“
Þá þurfi að spyrja grundvallarspurninga um þróunina.
„Að það þurfi líka að fara að horfa vel á hvað veldur því að barn beiti ofbeldi? Hvað veldur því að það finni sig knúið til að koma með vopn í skólann? Hvar getum við hjálpað þarna? Þarna verðum við líka sem samfélag að fara að stíga inn og skoða, hvað er að gerast? Af hverju nota þau þessa leið?“
Mikilvægt sé að foreldrar taki samtalið við börn sín.
„Auðvitað er alltaf gott að ræða við börnin sín eftir þeirra aldri og þroska og foreldrar verða náttúrulega að meta það hversu tilbúið barnið er í að taka þessa umræðu en það er um að gera þegar barnið er tilbúið að ræða þetta í rólegheitum og spyrja, hefurðu heyrt um þetta, séð þetta á samfélagsmiðlum, taka rólega umræðu um það án þess að fara í einhverjar hryllingsmyndir.“
Dagbjört bætir við að tölur nýjustu rannsóknar Íslensku æskulýðsrannsókna bendi til þess að tilvikum um vopnaburð hafi fækkað milli ára. Í tíunda bekk var hlutfall stráka sem sögðust hafa gert slíkt 1,7 prósent í ár en var 3,1 prósent í fyrra. Í tilviki stúlkna var það 1,2 prósent í fyrra en 0,2 prósent í ár. Lögregla hafi verið dugleg að hvetja til þess að öll tilvik séu tilkynnt til lögreglu og það kunni að hafa áhrif á fjölgun tilkynninga.