Blaðamaður ræddi við systurnar um ástríðuverkefnið og miklar vinsældir á óhefðbundnum tíma.
„Þegar ég flutti svo heim langaði mig að opna skapandi rými þar sem hægt væri að blanda saman hreyfingu, vellíðan, fegurð og fjölbreyttum viðburðum. Við búum á Íslandi þar sem skammdegið þyrmir yfir okkur á veturna með langa og dimma daga. Okkur systrum fannst mikilvægt að skapa umhverfi og upplifun sem lífgar upp á tilveruna,“ segir Tinna Sól en Katrín Myrra, stóra systir hennar, er sömuleiðis þjálfari sem lauk jógakennaranámi árið 2019. Þær systur ákváðu að slá til og láta drauminn um stúdíó rætast.
„Það skiptir okkur mestu máli að stúdíóið okkar sé staður sem fólk hlakkar til að heimsækja, ekki aðeins til að hreyfa sig heldur sömuleiðis til að fá innblástur, hitta samfélag og skapa góðar stundir.
Það hefur verið ótrúlega skemmtilegt að byggja þetta upp saman sem systur. Við erum mjög samstilltar og það hefur oft gerst að við fáum nákvæmlega sömu hugmyndina á sama tíma. Það er gott flæði á milli okkar og við eigum auðvelt með að sameina ólíka styrkleika hjá okkur í eitt,“ bætir Katrín Myrra við.
Meðal þeirra tíma sem hafa vakið athygli hjá stelpunum eru svokallaðir hvolpatímar.
„Hvolpatímarnir hafa verið einn af eftirsóttustu viðburðunum hjá okkur. Þar blandast saman létt hreyfing, teygjur og samvera með litlum hvolpum. Það er eiginlega ekki annað hægt en að brosa allan daginn eftir að hafa fengið svona mikla ást og umhyggju frá þessum krúttmolum,“ segja systurnar brosandi og bæta við:
„Við höfum lagt áherslu á að viðburðirnir séu einnig jákvæð umhverfisþjálfun fyrir hvolpana. Í fyrsta hvolpatímanum vorum við í samstarfi við Berner Beauty hundarækt, sem kom með svissneska fjallahvolpa, en í síðasta tímanum fengum við Labrador-hvolpa frá Hrísnes Labrador-ræktun í heimsókn.
Við erum klárlega með fleiri hvolpatíma á dagskránni og hlökkum til að kynna gesti fyrir fleiri hundategundum í framtíðinni.“
Hér má sjá nokkrar vel valdar myndir frá hvolpajóga-tímanum: