Afbrotafræðingur óttast að ofbeldi og skipulögð glæpastarfsemi þrífist í skjóli aðgerðarleysis þegar brotið er gegn lögreglumönnum. Mikilvægt sé að taka hart á brotum og heimild sé til þess í lögum.
Hótanir og ofbeldi sem lögreglumenn verða fyrir í störfum sínum var á dagskrá í Kveik í gærkvöld. Hótanir beinast einnig oft að fjölskyldum þeirra. Helgi Gunnlaugsson, afbrotafræðingur og prófessor við Háskóla Íslands, segir sláandi að sjá það sem fram kom í þættinum, ekki síst hvernig tekið er á þessum málum. Hann bendir á að hörð viðurlög liggi við brotum gegn valdstjórninni samkvæmt almennum hegningarlögum.
„Þetta er alvarleg háttsemi samkvæmt löggjöfinni sjálfri en hugsanlega er því ekki alltaf nægilega fylgt eftir af ákæru- og dómsvaldi eins og fram kom í Kveiksþættinum í gær,“ segir Helgi. „Þetta er alvarlegt athæfi og þarf að taka mjög alvarlega.“
Ofbeldi og hótanir gegn löggæslumönnum séu ekki einkamál lögreglunnar, sem vinni í nafni þjóðarinnar. „Þessar hótanir þær í raun og veru beinast gegn okkur öllum og réttarríkinu sjálfu.“
Ef ekki er tekið nógu hart á þessum málum sé hætta á að glæpagengi færi sig upp á skaftið. „Að það í sjálfu sér borgi sig fyrir þá að hóta lögreglumönnum til þess að reyna að halda lögreglunni í skefjum,“ segir Helgi.
„Þetta minnir á viðlíka atburði erlendis frá, frá erlendum glæpagengjum og samskiptum við lögreglu og hótanir sem þar komu upp eins og við til dæmis höfum heyrt frá Svíþjóð.“
Sambærilegir hlutir geti gerst hér eins og hafa gerst á hinum Norðurlöndunum, þar sem skipulögð glæpasamtök fá ungmenni til að fremja afbrot, jafnvel alvarleg ofbeldisbrot. „Ísland er ekkert eyland og landamærin eru tiltölulega opin. Það sem gerist erlendis gerist í einhverri mynd hjá okkur líka.“
Það geti haft alvarlegar afleiðingar ef glæpamenn komist upp með að hafa uppi hótanir við lögreglumenn og jafnvel fremja skemmdarverk á eigum þeirra og heimilum.
Hætta sé á að lögreglumenn veigri sér við að taka á ákveðnum hópum. „Það er auðvitað eitthvað sem við viljum ekki sjá og þess vegna verður raunverulega að stíga fast niður hvað þetta snertir.“