Sigurþóra Bergsdóttir, varaþingmaður Samfylkingarinnar, segir að henni finnist að 1. desember eigi að verða árlegur frídagur á Íslandi, segir hún í færslu á Facebook að það megi skoða að taka út annan frídag í staðinn og nefnir hún sérstaklega uppstigningardag.„Mér finnst að 1. desember ætti að vera fridagur á Íslandi,“ segir Sigurþóra og nefnir þrjár ástæður fyrir því. „Við eigum að halda uppa á fullveldið okkar.“„Þetta gæti verið gott upphaf að aðventu.“„Það er mjög langt frá síðasta frídegi og margir gætu nýtt slíkan dag í allskonar.“
Varaþingmaður kallar eftir nýjum frídegi