Í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu segir að starf aðstoðardagskrárstjóra hafi verið auglýst laust til umsóknar 6. nóvember og rann umsóknarfresturinn út 19. nóvember.
Þóra Björg Clausen var ráðin í starfið í febrúar eftir að Margrét Jónasdóttir lét af störfum. Eva Georgs Ásudóttir er dagskrárstjóri Ríkisútvarpsins en Eva og Þóra Björg störfuðu áður saman hjá Stöð 2. Þóra Björg er meðal umsækjenda um starfið.
Einnig eru fleiri þekktir meðal umsækjenda, til að mynda Anna Gunndís Guðmundsdóttir leikkona, Christof Wehmeier, fyrrverandi markaðsstjóri Kvikmyndamiðstöðvarinnar, Hrund Þórsdóttir, fyrrverandi fréttastjóri fréttastofu Stöðvar 2 og Nikulás Tumi Hlynsson leikstjóri.
Þessi sóttu um starfið:
- Alma Ásgrímsdóttir
- Aníta Birna Berndsen
- Anna Gunndís Guðmundsdóttir
- Álfheiður Kristín Hallgrímsdóttir
- Christof Wehmeier
- Dagbjört Lilja Kristjánsdóttir
- Dagný Arnarsdóttir
- Dagný Steinarsdóttir
- Emma Jónsdóttir
- Freyr Dominic Jude M. Bjarnason
- Guðríður Jóhannsdóttir
- Gunnar Rafnarsson
- Hallur Helgason
- Hannes Lúðvíksson
- Haraldur Ari Karlsson
- Hrund Þórsdóttir
- Jóhann Sverrir Einarsson
- Jón Birkir Lúðvíksson
- Jón Egill Bergþórsson
- Jón Tryggvi Sveinsson
- Kolbeinn Rastrick
- Konráð Pálmason
- María Sigríður Halldórsdóttir
- Nikulás Tumi Hlynsson
- Nína Petersen
- Óli Hjörtur Ólafsson
- Páll Kristinn Jakobsson
- Sigurður Hrannar Hjaltason
- Stefán Aðalsteinn Drengsson
- Stefán Atli Rúnarsson
- Tryggvi Jóhönnuson Thayer
- Vignir Gunnarsson
- Þóra Björg Clausen