Í kvöld verður ákveðin suðaustanátt með áðurnefndum snörpum hviðum við fjöll, til dæmis á Kjalarnesi, við Hafnarfjall og undir Eyjafjöllum samkvæmt veðurfræðingi. Hvassast verður frá fimm síðdegis til klukkan átta í kvöld.
Í nótt mun lægja en það hvessir aftur á morgum með hviðum víða yfir 35 metrum á sekúndu í vindstrengjum á austanverðu landinu síðdegis. Slíkar aðstæður verða sér í lagi á fjallvegum.
Auk þess verða snarpir vindstrengir vestantil annað kvöld.