Ætlar að breyta eftir að hafa fengið rúmlega 1.800 umsagnir

Ætlar að breyta eftir að hafa fengið rúmlega 1.800 umsagnir

Ætlar að breyta eftir að hafa fengið rúmlega 1.800 umsagnir

Markmiðið með breytingum á reglum um framfærslu þeirra sem sækjast hér eftir dvalarleyfi eða ríkisborgararétti er að tryggja að þeir sem setjast hér að geti séð sér og sínum fjölskyldum farborða en þurfi ekki að reiða sig á félagslega aðstoð.

Drög að breytingum á reglugerð voru sett inn í samráðsgátt stjórnvalda í byrjun nóvember og fylgt úr hlaði með fréttatilkynningu undir fyrirsögninni Raunhæf framfærsluskilyrði fyrir umsóknir um dvalarleyfi.

Alls bárust ríflega 1.800 umsagnir og það er, eftir því sem næst verður komist, næstmesti fjöldi umsagna sem nokkru sinni hefur borist í samráðsgátt stjórnvalda.

Metið á málið „Verum hagsýn í rekstri ríkisins“. Þá var beinlínis óskað eftir umsögnum frá almenningi og bárust þá um 4.000 umsagnir.

Benti á misræmi í löggjöf og framkvæmd á milli Norðurlanda

Vísað er til ítarlegrar skýrslu starfshóps dómsmálaráðherra um dvalarleyfi frá nóvember 2025, og að þar hafi verið bent á að viðmiðin á Íslandi væru lág og tækju ekki mið af fjölskyldustærð.

Í skýrslu starfshópsins er fjallað um 25 atriði sem telja megi sem misræmi í löggjöf og framkvæmd dvalarleyfaveitinga á Íslandi samanborið við önnur Norðurlönd. Slíkt misræmi er meðal annars sagt geta leitt til hlutfallslega meira innflæðis svokallaðra þriðju ríkis borgara til Íslands en annarra Norðurlanda. Þriðjaríkisborgarar eru þau sem ekki eru með ríkisfang í ríkjum EES eða Sviss.

Eitt af því sem hópurinn benti á er að dómsmálaráðherra hafi ekki nýtt sér heimild til að útfæra hvað teljist vera trygg framfærsla. Með reglugerðinni sem ráðuneytið er með í smíðum á að bæta úr því - en það er þó bara eitt mál af mörgum sem dómsmálaráðherra hefur beitt sér fyrir í útlendingamálum undanfarið.

Rúmlega 500.000 kr. í stað 260.000 kr.

Og hvert er þá framfærsluviðmiðið sem ráðuneytið lagði til?

Samkvæmt drögunum verður framfærsluviðmið einstaklings rúmlega 500.000 krónur - í stað um 260.000 króna sem Útlendingastofnun miðar við nú en sú krónutala samsvarar grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar Reykjavíkurborgar. Nýja viðmiðið var fengið með því að miða við meðaltal þriggja viðmiða úr ólíkum áttum velferðarkerfisins:  Frítekjumark húsnæðisbóta, örorkulífeyris með heimilisuppbót og tekjumark skerðingar barnabóta hjá einstæðu foreldri.

Miðað við drögin þurfa hjón sem vilja fá dvalarleyfi eða ríkisborgararétt hér að sýna fram á trygga framfærslu sem nemur 800.000 krónum - það geta verið laun en líka aðrar tekjur svo sem námslán eða lífeyrisgreiðslur. Fyrir hvert barn bætast við 150.000 krónur en áður hafði engin krafa verið gerð vegna framfærslu barna. Hjón með tvö börn þurfa því um 1,1 milljón til að standast þessi viðmið og einstætt foreldri með tvö börn þarf að vera með 800.000 krónur.

Í fyrrnefndri tilkynningu var tekið fram að reglugerðin breyti ekki skilyrðum fyrir að veita dvalarleyfi á grundvelli alþjóðlegrar verndar eða mannúðarsjónarmiða.

Þessar tillögur féllu í grýttan jarðveg, svo ekki sé meira sagt, að minnsta kosti ef miðað er við fjölda umsagna.

Ekki með trygga framfærslu í fullu starfi

Af þeim rúmlega 1.800 umsögnum sem bárust um reglugerðardrögin eru flestar frá einstaklingum og kennir þar ýmissa grasa. Margar athugasemdir koma frá útlendingum sem hafa sótt um eða vilja sækja um íslenskan ríkisborgararétt eða Íslendingum sem eiga útlendan maka í sömu stöðu.

Einnig bárust umsagnir frá ýmsum samtökum og nokkrum háskólum. Alþýðusamband Íslands segir að það sé sérstakt áhyggjuefni að fyrirhugað einstaklingsviðmið sé hærra en lægstu kjarasamningsbundnu laun fyrir fullt starf. Launafólk í fullu starfi en á lægstu launum teljist því ekki hafa trygga framfærslu en samkvæmt kjarasamningum VR og Eflingar við SA eru lægstu byrjunarlaun um 480.000 krónur fyrir fullt starf.

Í umsögn Háskóla Íslands er bent á að breytingarnar geti haft áhrif á möguleika skólans til að laða að doktorsnema, nýdoktora og lektora frá útlöndum en grunnlaun þeirra geti verið lægri en framfærsluviðmiðin. Háskólinn í Reykjavík (umsögn nr. 180) telur að hækkun framfærsluviðmiða geti haft verulega hamlandi áhrif á möguleika erlendra nemenda til að stunda háskólanám á Íslandi og skert samkeppnisstöðu íslenskra háskóla á alþjóðlegum vettvangi.

Skýrar reglur til bóta en áhyggjur af fjárhæðum

Rauði krossinn á Íslandi sendi líka umsögn. Þar er tekið undir að skýrar reglur um framfærslu séu til bóta. Félagið hafi þó verulegar áhyggjur af þeim fjárhæðum sem koma fram í drögunum og þær muni koma harðast niður á fjölskyldum og þeim sem standa höllum fæti.

Í umsögninni eru lagðar fram tillögur að breytingum og þetta eru þær fimm helstu:

  1. Lágmarksfjárhæð framfærslu taki í allra mesta lagi mið af lægstu launum fyrir fullt starf samkvæmt kjarasamningum.
  2. Fjárhæð vegna hvers barns verði lægri og fari lækkandi eftir því sem börnum fjölgar.
  3. Heimilt verði að víkja frá lágmarksfjárhæð vegna fjölskyldusameiningar og vegna fólks í viðkvæmri stöðu, svo sem þolenda ofbeldis.
  4. Svigrúm vegna tímabundins tekjufalls verði rýmkað.
  5. Nýjar reglur gildi ekki um umsóknir sem þegar hafa borist.

Nína Helgadóttir leiðir málsvarasvarstarf Rauða krossins og þekkir þennan málaflokk vel. Hún telur að hækkunin á framfærsluviðmiðum sé of brött.

Hún segir að varðandi fólk í viðkvæmri stöðu sé einkum verið að horfa til kvenna sem eru í ofbeldissamböndum og að hertar reglur megi ekki koma í veg fyrir að þær geti komist undan ofbeldismönnunum.

Þá þurfi fólk sem komi hingað vegna fjölskyldusameiningar að fá meira svigrúm til að leita sér að atvinnu, en það vilji svo sannarlega vinna. Þá þurfi það meiri stuðning við tungumálanám og annað slíkt. „Almennt, þá eru þetta það umfangsmiklar breytingar að þær ættu jafnvel heima í umræðum á Alþingi áður en að það verður farið út í þetta,“ segir hún.

Bara horft til Norðurlandanna þegar herða á reglur

Í skýrslu starfshópsins sem fyrr var nefnd kemur fram að annars staðar á Norðurlöndunum séu viðmið um framfærslu betur tengd við raunverulegan framfærslukostnað. Nína segir að almennt megi segja að þegar verið sé að herða reglur um dvalarleyfi og umsækjendur um vernd sé litið til hörðustu kostanna á Norðurlöndunum.

„Það er látið í það skína að það sé verið að horfa til Norðurlandanna en þar eru í raun mismunandi reglur,“ segir hún. Yfirleitt sé sé horft til hörðustu reglnanna sem eru einhvers staðar í gildi. „Og það á í rauninni bara við finnst okkur og hefur fundist undanfarið, þegar verið er að herða reglur. Þegar verið er að horfa til breytinga á því hvað varðar stuðning við fólk, auka íslenskukennslu eða tungumálakennslu og svo framvegis. Þá er ekki horft til Norðurlandanna.“

Eins og fyrr segir bárust rúmlega 1.800 umsagnir um drögin sem er óvenjulegt. Það er líka óvenjulegt að í byrjun vikunnar birti dómsmálaráðuneytið tilkynningu þar sem tekið var fram að reglugerðardrögin myndu taka breytingum. Haft var eftir Þorbjörgu S. Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra að góðar og mikilvægar ábendingar hefðu komið fram og á þær yrði hlustað. Ráðherra hafði ekki tök á að veita viðtal vegna málsins í gær.

#breyta #eftir #fengið #hafa #ætlar

Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-11-25-aetlar-ad-breyta-eftir-ad-hafa-fengid-rumlega-1800-umsagnir-493748

📰 Aðrar fréttir

Varð ekki fótaskortur þegar gervifóturinn datt af - Landaði fullu húsi stiga og sigri
📅 25.11.2026 👁️ 1
Varð ekki fótaskortur þegar gervifóturinn datt af - Landaði fullu húsi stiga og sigri
Ezra Frech lét ekkert stoppa sig þegar gervifótur hans datt af í miðjum frjálsum dansi í úrslitaþætti dansþáttanna Dancing With The Stars.Það getur al...
Segir að allir ættu að birgja sig upp af þessum 15 vörum
📅 25.11.2026 👁️ 1
Segir að allir ættu að birgja sig upp af þessum 15 vörum
Talsverð umræða hefur verið síðustu vikur og mánuði um mikilvægi þess að fólk komi sér upp neyðarbirgðum ef til neyðarástands kemur af einhverjum ástæ...
Varaþingmaður kallar eftir nýjum frídegi
📅 25.11.2026 👁️ 2
Varaþingmaður kallar eftir nýjum frídegi
Sigurþóra Bergsdóttir, varaþingmaður Samfylkingarinnar, segir að henni finnist að 1. desember eigi að verða árlegur frídagur á Íslandi, segir hún í fæ...
„Brynja lögreglumannsins gefur sig aðeins“ - Lögreglumaður 0110 um reynslu sína á vettvangi heimilisofbeldis
📅 25.11.2026 👁️ 1
„Brynja lögreglumannsins gefur sig aðeins“ - Lögreglumaður 0110 um reynslu sína á vettvangi heimilisofbeldis
HeimilisofbeldiMaður í járnumkona með áverkaskítug íbúðtvö börn11 ára telpaheldur fjölskyldunni samansystur sofa á fletiekkert sængurver eða lakAllt í...
Móðir írsku stúlkunnar sem lést við Krýsuvíkurveg vill ekki að kletturinn verði fjarlægður – „Þessi klettur er núna minningarreitur“
📅 25.11.2026 👁️ 1
Móðir írsku stúlkunnar sem lést við Krýsuvíkurveg vill ekki að kletturinn verði fjarlægður – „Þessi klettur er núna minningarreitur“
Samantha Large, móðir Hannah Jane Large, sem lét lífið ásamt þremur öðrum ungmennum í bílslysi á Krýsuvíkurvegi í lok ágústmánaðar, er andsnúin þeim á...
Foreldrar Sólons fá ekki að leiða tvö vitni fyrir dóm - Sögðu það nauðsynlegt til að taka afstöðu til kæru
📅 25.11.2026 👁️ 1
Foreldrar Sólons fá ekki að leiða tvö vitni fyrir dóm - Sögðu það nauðsynlegt til að taka afstöðu til kæru
Héraðsdómur Reykjaness hefur hafnað beiðni foreldra Sólons Guðmundssonar flugmanns um vitnaleiðslur tveggja vitna sem gætu borið um hvað fór fram á fu...
Hætta á að lögreglan veigri sér við að taka á skipulagðri og alvarlegri brotastarfsemi
📅 25.11.2026 👁️ 1
Hætta á að lögreglan veigri sér við að taka á skipulagðri og alvarlegri brotastarfsemi
Afbrotafræðingur óttast að ofbeldi og skipulögð glæpastarfsemi þrífist í skjóli aðgerðarleysis þegar brotið er gegn lögreglumönnum. Mikilvægt sé að ta...
Öryggisógnir í öðrum löndum blasa líka við á Íslandi
📅 25.11.2026 👁️ 1
Öryggisógnir í öðrum löndum blasa líka við á Íslandi
Breytt öryggislandslag, jafnt í heiminum öllum og á Íslandi, er meðal ástæðna þess að stjórnvöld ætla að efla viðbragðs- og eftirlitsgetu Landhelgisgæ...
Gular veðurviðvaranir um allt land - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 2
Gular veðurviðvaranir um allt land - Vísir
Fyrsta viðvörunin tekur gildi klukkan fimm að morgni fimmtudags á Austfjörðum. Þar er spáð mikilli rigningu og miklum vatnavöxtum með tilheyrandi líku...
Footballer Raheem Sterling given suspended sentence for dangerous driving
📅 25.11.2026 👁️ 1
Footballer Raheem Sterling given suspended sentence for dangerous driving
Raheem Sterling was sentenced to 12 months imprisonment, suspended for 18 months, on Wednesday.
„Við viljum segja okkar sögur sjálf“ - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 1
„Við viljum segja okkar sögur sjálf“ - Vísir
Samtökin Átak hafa verið dugleg að deila ýmsu skemmtilegu efni á samfélagsmiðlum, þar á meðal Dagur í mínu lífi, sem hefur verið vinsælt til að mynda ...
Saqar spyr hvers vegna hún megi ekki gagnrýna íslam – Segist kölluð múslimhatari
📅 25.11.2026 👁️ 1
Saqar spyr hvers vegna hún megi ekki gagnrýna íslam – Segist kölluð múslimhatari
Saqar Yari spyr í Einni pælingu hvort hún megi ekki segja neitt slæmt um íslam og segist fá þau viðbrögð að hún sé múslimhatari. Saqar er írönsk kona ...
Gáttaður á um­mælum varahéraðssaksóknara - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 1
Gáttaður á um­mælum varahéraðssaksóknara - Vísir
Tilkynningar um ofbeldi gegn lögreglu eru tvisvar sinnum fleiri nú en fyrir áratug og tilkynningar um hótanir þrisvar sinnum fleiri.  Í Kveik á RÚV í ...
Bregðast þarf við fjölgun til­fella um vopna­burð barna - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 1
Bregðast þarf við fjölgun til­fella um vopna­burð barna - Vísir
Lögregla var kölluð til í Sæmundarskóla í Grafarholti í Reykjavík á föstudag vegna nemanda sem mætti með hníf og beitti honum í átökum við annan dreng...
Bregðast þarf við fjölgun til­kynninga um vopna­burð barna - Vísir

Ása Berglind harmar heimsendingar ÁTVR - „Ég er bara mjög ósátt við þetta“
📅 25.11.2026 👁️ 2
Ása Berglind harmar heimsendingar ÁTVR - „Ég er bara mjög ósátt við þetta“
Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingkona Samfylkingar, segir það galið að ÁTVR sé byrjað að senda áfengi heim að húsi til fólks. Með þessu sé verið að au...
Afbrýðisemi leiddi til átaka við Smáralind - Krafðist þess að fá að hitta nýja kærasta barnsmóður sinnar
📅 25.11.2026 👁️ 1
Afbrýðisemi leiddi til átaka við Smáralind - Krafðist þess að fá að hitta nýja kærasta barnsmóður sinnar
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt mann í 60 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á fyrrverandi eiginkonu sína. Dómurinn taldi að afbrýðisemi ...
Krónan bjargar jólunum með Sælkerabúðinni - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 2
Krónan bjargar jólunum með Sælkerabúðinni - Vísir
Fjórar veislur verða í boði í mismunandi stærðum eftir fjölda gesta: kalkúnaveisla, Wellington-veisla, hamborgarhryggsveisla og lambahryggsveisla. Svo...
Telur brot gegn lög­reglu­mönnum ekki nægi­lega rann­sökuð - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 1
Telur brot gegn lög­reglu­mönnum ekki nægi­lega rann­sökuð - Vísir
Einnig verður greint frá samningi sem ráðherrar utanríkis- og dómsmála skrifuðu undir í morgun við Landhelgisgæsluna og embætti ríkislögreglustjóra um...
Raf­mögnuð spenna þegar annað liðið tryggði sig inn í úr­slitin - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 1
Raf­mögnuð spenna þegar annað liðið tryggði sig inn í úr­slitin - Vísir
Ari Eldjárn og Lilja Nótt voru mætt fyrir hönd Gróttu og hjónin Daði Freyr og Árný Fjóla fyrir íþróttafélagið Garp úr Laugalandi. Viðureignin var held...
„Því miður, er þetta sögu­legur dagur“ - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 2
„Því miður, er þetta sögu­legur dagur“ - Vísir
„Því miður, er þetta sögulegur dagur,“ sagði einn af stjórnendum strandgæslu Spánar í viðtali í gær, samkvæmt frétt El País. Hann sagði að rúmlega tvö...
Þessi vilja verða að­stoðar­dag­skrár­stjóri Rúv - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 1
Þessi vilja verða að­stoðar­dag­skrár­stjóri Rúv - Vísir
Í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu segir að starf aðstoðardagskrárstjóra hafi verið auglýst laust til umsóknar 6. nóvember og rann umsóknarf...
„Ef þú ert að horfa á þetta mynd­band þýðir það að ég er dáin“ - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 2
„Ef þú ert að horfa á þetta mynd­band þýðir það að ég er dáin“ - Vísir
Samfélagsmiðlar hafa síðustu ár getið af sér alls konar óvenjulega áhrifavalda sem tileinka sér ólík málefni og áherslur. Einn þeirra er hin sextuga C...
Kaupa sérútbúna bíla og dróna
📅 25.11.2026 👁️ 2
Kaupa sérútbúna bíla og dróna
Ráðherrar ríkisstjórnarinnar undirrituðu tvo samninga við Landhelgisgæsluna og ríkislögreglustjóra að loknum fundi þjóðaröryggisráðs í dag. Fundurinn ...
Kaupa dróna og brynvarða bíla
📅 25.11.2026 👁️ 2
Kaupa dróna og brynvarða bíla
Ráðherrar ríkisstjórnarinnar undirrituðu tvo samninga við Landhelgisgæsluna og ríkislögreglustjóra að loknum fundi þjóðaröryggisráðs í dag. Fundurinn ...
Hjónin sögð í áfalli eftir innbrot á heimili þeirra - Helsta áhættan að búnaði hafi verið komið fyrir
📅 25.11.2026 👁️ 3
Hjónin sögð í áfalli eftir innbrot á heimili þeirra - Helsta áhættan að búnaði hafi verið komið fyrir
Vilhjálmur Bretaprins og Katrín eiginkona hans munu vera í áfalli eftir að öryggisteymi þeirra tókst ekki að koma í veg fyrir innbrot á heimili þeirra...
Sveinki uppgötvar hvernig jólin eru - Sannkallað jólakraftaverk þegar skeggið fer af
📅 25.11.2026 👁️ 3
Sveinki uppgötvar hvernig jólin eru - Sannkallað jólakraftaverk þegar skeggið fer af
Í jólaauglýsingu bresku verslunarkeðjunnar Marks og Spencer hvetur eiginkona jólasveinsins, leikin af Lucy Punch, eiginmann sinn til að raka af sér sk...
Mike Garson einn nánasti tónlistarsamstarfsmaður David Bowie á leið til landsins
📅 25.11.2026 👁️ 3
Mike Garson einn nánasti tónlistarsamstarfsmaður David Bowie á leið til landsins
Bandaríski píanóleikarinn Mike Garson, sem um áratugaskeið var einn nánasti tónlistarsamstarfsmaður David Bowie, kemur til Íslands í febrúar og tekur ...
Rússlandsher hefur drepið og sært mun fleiri en í fyrra
📅 25.11.2026 👁️ 2
Rússlandsher hefur drepið og sært mun fleiri en í fyrra
Rússlandsher drap og særði mun fleiri í Úkraínu í október en í sama mánuði í fyrra, samkvæmt samantekt mannréttindateymi Sameinuðu þjóðanna í Úkraínu,...
Starfandi hjá ríkisstofnunum fjölgað um 218 milli ára en um 1.589 hjá stofnunum sveitarfélaganna
📅 25.11.2026 👁️ 2
Starfandi hjá ríkisstofnunum fjölgað um 218 milli ára en um 1.589 hjá stofnunum sveitarfélaganna
Störfum hjá ríki og sveitarfélögum fjölgaði um 1.807 milli ára milli september 2025 og september 2026. Af þessum störfum voru 88% hjá sveitarfélögunum...
Þetta eru sameignar- og samlagsfélög lækna sem græddu mest á Íslandi í fyrra
📅 25.11.2026 👁️ 3
Þetta eru sameignar- og samlagsfélög lækna sem græddu mest á Íslandi í fyrra
Viðskiptablaðið hefur tekið saman upplýsingar um starfsemi fjölmargra samlags- og sameignarfélaga sem greiddu mikinn tekjuskatt í fyrra og reiknað út ...
Meirihluti landsmanna vill ekki að ríkið selji Landsbankann
📅 25.11.2026 👁️ 2
Meirihluti landsmanna vill ekki að ríkið selji Landsbankann
Ný könnun Gallup fyrir Samfylkinguna sýnir að 64,9% landsmanna eru andvíg því að ríkið selji eignarhlut sinn í Landsbankanum, að hluta eða öllu leyti....
Íslenska kokkalandsliðið hreppir annað gull á HM
📅 25.11.2026 👁️ 3
Íslenska kokkalandsliðið hreppir annað gull á HM
Íslenska kokkalandsliðið fékk gull fyrir frammistöðu sína í Chef’s Table á heimsmeistaramótinu í matreiðslu í Lúxemborg. Niðurstaðan var kynnt rétt í ...
EU offers UK fresh deal on 'Made in Europe' scheme
📅 25.11.2026 👁️ 1
EU offers UK fresh deal on 'Made in Europe' scheme
The draft proposal could see the UK join the scheme without having to increase import taxes on Chinese cars.
Róðurinn þyngist hjá þeim sem búa í eigin hús­næði - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 3
Róðurinn þyngist hjá þeim sem búa í eigin hús­næði - Vísir
Þetta kemur fram í nýrri lífskjararannsókn Hagstofunnar en þar segir að hlutfallið hafi tvöfaldast á fimm árum, úr 9,6 prósentum árið 2021 í 19,4 prós...
Sér fyrir endann á við­ræðum um verk­lok í Gufu­dals­sveit - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 3
Sér fyrir endann á við­ræðum um verk­lok í Gufu­dals­sveit - Vísir
„Viðræður eru enn í gangi. Það sér svona fyrir endann á þeim þótt ég vilji ekkert segja um hugsanlegan tíma í þeim efnum,“ svarar G. Pétur Matthíasson...
Boy, 3, died from choking at Middleton nursery, inquest hears
📅 25.11.2026 👁️ 2
Boy, 3, died from choking at Middleton nursery, inquest hears
Thiago Wall died in hospital three days after choking on food at the nursery, the inquest hears.
I'm A Celebrity: Hundreds complain after Mariella Frostrup called AJ Odudu 'aggressive'
📅 25.11.2026 👁️ 1
I'm A Celebrity: Hundreds complain after Mariella Frostrup called AJ Odudu 'aggressive'
More than 800 viewers complain to regulator Ofcom after a row between AJ Odudu and Mariella Frostrup.
Stormur um allt land á morgun
📅 25.11.2026 👁️ 2
Stormur um allt land á morgun
Veðurstofan varar við austan hvassviðri eða stormi um land allt á morgun og aðfaranótt föstudags. Austfirðingar og íbúar á Suðausturlandi eiga einnig ...
Á þriðja tug manna týndir í gull­námu eftir flóð - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 3
Á þriðja tug manna týndir í gull­námu eftir flóð - Vísir
Mennirnir voru búnir að grafa námu á Vestur-Jövu og voru að grafa þar gull úr jörðu. Mikil rigning hefur verið á svæðinu og á mánudaginn flæddi nærlig...
Kokkalandsliðið fékk annað gull - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 2
Kokkalandsliðið fékk annað gull - Vísir
Í fréttatilkynningu frá Klúbbi matreiðslumeistara þess efnis segir að gull í einstakri grein þýði að liðið hafi fengið að minnsta kosti 90 stig af 100...
Rafmagnið komið á aftur
📅 25.11.2026 👁️ 2
Rafmagnið komið á aftur
Starfsmenn Veitna eru búnir að koma á rafmagni alls staðar þar sem varð rafmagnslaust í Múlunum og nágrenni í morgun.Spennubilun olli því að rafmagn f...
Fá oft sömu hug­mynd á sama tíma - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 4
Fá oft sömu hug­mynd á sama tíma - Vísir
Blaðamaður ræddi við systurnar um ástríðuverkefnið og miklar vinsældir á óhefðbundnum tíma.  Tinna Sól heillaðist af barre í Barcelona.Aðsend „Þegar é...
Why has China sent the first Pakistani astronaut to space?
📅 25.11.2026 👁️ 3
Why has China sent the first Pakistani astronaut to space?
Pakistan's Muhammad Zeeshan Ali has become the first foreign national to board China's Tiangong space station.
Svörtudagar eru hafnir á Boozt: Allt að 60% af­sláttur af þúsundum vara - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 3
Svörtudagar eru hafnir á Boozt: Allt að 60% af­sláttur af þúsundum vara - Vísir
Allar vörur frá Pandora á tilboði í dömudeildinni Í dömudeild Boozt er úrvalið sérstaklega glæsilegt í ár. Skartgripamerkið Pandora nýtur mikilla vins...
Snarpar hviður í kortunum - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 4
Snarpar hviður í kortunum - Vísir
Í kvöld verður ákveðin suðaustanátt með áðurnefndum snörpum hviðum við fjöll, til dæmis á Kjalarnesi, við Hafnarfjall og undir Eyjafjöllum samkvæmt ve...
Bókakvöld og pöbbkviss hjá Sölku
📅 25.11.2026 👁️ 3
Bókakvöld og pöbbkviss hjá Sölku
Bókakvöld og pöbbkviss verður haldið í bókabúð Sölku, Hverfisgötu 89, kl. 20 í kvöld. Fjölmiðlamaðurinn Freyr Eyjólfsson og rithöfundurinn Valur Gunna...
Vill vinna gegn hundarasisma: „Manneskjan er miklu grimmari“
📅 25.11.2026 👁️ 3
Vill vinna gegn hundarasisma: „Manneskjan er miklu grimmari“
Jón Gnarr, þingmaður utan flokka, vill vinna gegn hundarasisma hérlendis. Í pistli sínum í Morgunblaðinu segist Jón vera mikill aðdáandi hunda. „Mér f...
Ethan Ives-Griffiths murder: Missed chances to save boy killed by grandparents
📅 25.11.2026 👁️ 1
Ethan Ives-Griffiths murder: Missed chances to save boy killed by grandparents
Safeguarding board apologises "unreservedly" after a review into the death of the Flintshire toddler.
Hve margir Úkraínumenn með tímabundna vernd vinna? Útlendingastofnun veit það ekki
📅 25.11.2026 👁️ 2
Hve margir Úkraínumenn með tímabundna vernd vinna? Útlendingastofnun veit það ekki
Útlendingastofnun veit ekki hve margir Úkraínumenn með tímabundna vernd hér á landi eru í vinnu. Fólkið hefur rétt til að vinna án sérstaks atvinnuley...