Breytt öryggislandslag, jafnt í heiminum öllum og á Íslandi, er meðal ástæðna þess að stjórnvöld ætla að efla viðbragðs- og eftirlitsgetu Landhelgisgæslu Íslands og ríkislögreglustjóra.
„Við verðum einfaldlega að horfast í augu við það að þær öryggisógnir sem við sjáum í löndunum í kringum okkur. Þær blasa líka við Íslendingum,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.
Hún, ásamt Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra, undirrituðu samninga við Georg Kr. Lárusson, forstjóra Landhelgisgæslunnar og Höllu Bergþóru Björnsdóttur ríkislögreglustjóra um eflingu viðbragðs- og eftirlitsgetu. 400 milljónum króna er veitt til verkefnisins.
Samningarnir voru undirritaðir að loknum reglubundnum fundi þjóðaröryggisráðs í dag. Fundurinn var haldinn í varðskipinu Þór í tilefni af aldarafmæli Gæslunnar.
Stríð líta öðruvísi út í dag en fyrir nokkrum árum
„Ég held að það sé full ástæða til þess að við séum meðvituð um það að það gilda ekki önnur lögmál um Ísland en um önnur ríki. Búumst við við innrásarher hér á Íslandi? Nei. En við sjáum að allt landslag afbrota og hvernig stríð lítur út í dag er töluvert annað en var fyrir einhverjum árum og áratugum,“ segir Þorbjörg Sigríður.
Sérstök áhersla er lögð á að styrkja eftirlitsgetu með drónum og viðbragðsgetu sérsveitar ríkislögreglustjóra með sérútbúnum, brynvörðum bílum. Ríkislögreglustjóri fær 250 milljónir og Landhelgisgæslan 160 milljónir. Gert er ráð fyrir útgjöldunum í fjárlögum.
Búumst við við innrásarher hér á Íslandi? Nei.
Breytt öryggislandslag í öryggismálum á heimsvísu er staðreynd að mati dómsmálaráðherra. Ýmsar öryggisógnir blasa við Íslendingum.
„Hvort sem við erum að horfa á nýlega netárás eða þetta banatilræði sem við sjáum í Danmörku. Þess vegna erum við núna að fara í að kaupa búnað sem vantað hefur hjá ríkislögreglustjóra og sérsveit sérstaklega og fara í þessi kaup sömuleiðis fyrir Landhelgisgæsluna,“ segir Þorbjörg Sigríður.