Í fréttatilkynningu frá Klúbbi matreiðslumeistara þess efnis segir að gull í einstakri grein þýði að liðið hafi fengið að minnsta kosti 90 stig af 100 mögulegum. Fleiri en eitt lið geti náð gullmörkum í sömu grein. Samanlögð stig úr báðum greinum, af 200 mögulegum, ráði því hvaða landslið komast á verðlaunapall í heildarkeppninni.
Heildarúrslitin verði kynnt á verðlaunahátíð mótsins í Luxexpo-höllinni í Lúxemborg á morgun, fimmtudaginn 26. nóvember, klukkan 14.00 að staðartíma, klukkan 13.00 á Íslandi.