Fyrsta viðvörunin tekur gildi klukkan fimm að morgni fimmtudags á Austfjörðum. Þar er spáð mikilli rigningu og miklum vatnavöxtum með tilheyrandi líkum á flóðum og samgöngutruflunum. Einnig verður hvassviðri og geta hviður farið staðbundið yfir þrjátíu metra á sekúndu. Viðvörunin er í gildi til klukkan níu um kvöldið.
Klukkustund síðar fer einnig gul viðvörun í gildi á Suðausturlandi þar sem spáð er sambærilegu veðri. Rigningarviðvörunin fellur úr gildi klukkan fjögur síðdegis en hvassviðrið mun standa yfir til klukkan fjögur aðfaranótt föstudags.
Klukkan ellefu á fimmtudagsmorgun fer gul veðurviðvörun í gildi á Austurlandi að Glettingi þar sem vindhviður geta staðbundið farið yfir 35 metra á sekúndu við fjöll. Sú viðvörun er í gildi til ellefu um kvöldið.
Gular veðurviðvaranir vegna hvassviðris fara í gildi sömuleiðis á Norðurlandi eystra og á Suðurlandi klukkan þrjú og klukkan sex á Norðurlandi vestra, höfuðborgarsvæðinu, suðvesturhorninu og í Faxaflóa. Það stendur yfir til miðnættis.
Loks fara gular veðurviðvaranir í gildi á Vestfjörðum og í Breiðafirði klukkan ellefu á fimmtudagskvöld og standa til klukkan fimm og fjögur aðfaranótt föstudags.