Ari Eldjárn og Lilja Nótt voru mætt fyrir hönd Gróttu og hjónin Daði Freyr og Árný Fjóla fyrir íþróttafélagið Garp úr Laugalandi.
Viðureignin var heldur betur spennandi en þegar aðeins ein spurning var eftir var staðan 28-27 og því var um hreina úrslitaspurningu í liðnum þrjú hint að ræða.
Spurt var um dýr. Það þekkist vel að heiti íþróttaliða í Bandaríkjunum kenni sig við ákveðin dýr. Oftast er fyrri hluti nafnsins staðsetning þeirra og seinni hlutinn ákveðið dýr. Arizona Diamondbacks er bandarískt íþróttalið sem staðsett er í Phoenix, Arizona.
Liðið var stofnað árið 1998 og náði þeim ótrúlega árangri að verða meistari árið 2001. Liðið kennir sig við ákveðna tegund af dýri sem spurt er um.
Hér að neðan má sjá hvort það var Grótta eða Garpur sem komst í úrslit Kviss.
Ef þú vilt ekki sjá úrslitin ættir þú ekki að horfa á myndbrotið hér að neðan. Hægt er að sjá þáttinn í heild sinni inni á Sýn+.