Samtökin Átak hafa verið dugleg að deila ýmsu skemmtilegu efni á samfélagsmiðlum, þar á meðal Dagur í mínu lífi, sem hefur verið vinsælt til að mynda á TikTok. Hér má sjá slíkt myndband frá degi í lífi Ingvars Þórs Ásmundssonar:
Fúsi vakti mikla athygli á sýningunni Fúsi, aldur og fyrri störf, þar sem hann sagði sína eigin sögu á sviði Borgarleikhússins en sýningin hlaut tvenn Grímuverðlaun.
Í fréttatilkynningu frá Átaki segir:
„Fólk með þroskahömlun hefur sögur að segja. Við viljum segja okkar sögur sjálf, á okkar eigin forsendum. Átak er eina félagið á Íslandi sem er stjórnað af fólki með þroskahömlun.
Við berjumst fyrir því að fá að ráða eigin lífi, tala fyrir okkur sjálf og hafa áhrif á ákvarðanir sem varða okkur. Við gerum myndbönd fyrir samfélagsmiðla, höldum vinnustofur og hittum stjórnvöld til að tala fyrir réttindum okkar.“
Hér má kynna sér Improv-sýninguna nánar.