Héraðsdómur Reykjaness hefur hafnað beiðni foreldra Sólons Guðmundssonar flugmanns um vitnaleiðslur tveggja vitna sem gætu borið um hvað fór fram á fundi Sólons hjá Icelandair þremur dögum áður en hann lést. Vildu foreldrarnir fá það skýrt fram hvað fór fram á fundinum og hvaða orð voru viðhöfð um meinta ofbeldishegðun Sólons í garð samstarfskvenna og hvort honum hafi verið lýst sem ógn við öryggi starfsfólks. Foreldrarnir íhuga nú meiðyrðamál gegn konunni sem þau telja hafa látið greind ummæli falla.
Foreldrar Sólons fá ekki að leiða tvö vitni fyrir dóm - Sögðu það nauðsynlegt til að taka afstöðu til kæru