Fjórar veislur verða í boði í mismunandi stærðum eftir fjölda gesta: kalkúnaveisla, Wellington-veisla, hamborgarhryggsveisla og lambahryggsveisla. Svo er bara spurning hvað á að vera í aðalhlutverki á þínu jólaborði. Í Snjallverslun Krónunnar velurðu veislu og stærð og getur bætt við aukavörum eftir smekk. Þú velur síðan afhendingardag og færð veisluna senda heim á höfuðborgarsvæðinu eða sækir hana í eina af völdum verslunum á landsbyggðinni.
„Um jólin vill maður gera sérstaklega vel við sig, en það þarf ekki að vera flókið. Það er hugsunin á bak við jólaveislurnar,“ segir Guðrún. „Samstarf okkar við Sælkerabúðina snýst meðal annars um að fleiri viðskiptavinir Krónunnar geti nálgast hágæða sælkeravörur og veislurnar eru framhald af því. Við viljum að fólk geti gert vel við sig þegar tilefni er til, án þess að þurfa að fara á marga staði.“
Hinrik Lárusson og Viktor Örn Andrésson, eigendur Sælkerabúðarinnar, segja jólahefðirnar sterkar þegar kemur að mat. Þeir héldu í þær þegar þeir settu saman jólaveislupakkana.
„Það skiptir máli að halda í hefðirnar og við tikkum í þau box, en þó með örlitlum breytingum, bara rétt svo fólk fái ekki leið,“ segir Viktor. „En við hugsum máltíðina sem eina heild og einblínum ekki bara á aðalréttinn. Meðlætið fær sitt pláss. Með kalkúninum fylgja til dæmis villisveppasósa, sætkartöflubaka, kalkúnafylling og brokkolísalat. Með Wellington-veislunni fylgja meðal annars rauðvínssósa og béarnaise-sósa, trufflukartöflur, rótargrænmeti og Waldorf-salat.“
Hægt að bæta við
Veislupakkarnir koma tilbúnir en Viktor segir lítið mál að bæta til dæmis við forréttum.
„Þetta á að vera sveigjanlegt svo þú getir sett þinn svip á veisluna. Þú getur til dæmis bætt við forréttum, eftirréttum og aukameðlæti. Þar verða meðal annars carpaccio og humarsúpa og fyrir þá sem vilja enda á einhverju sætu verður hægt að velja ris à l’amande og súkkulaðimús. Vegan Wellington verður líka í boði, ásamt aukameðlæti eins og rauðkáli, Waldorf-salati og villisveppasósu.“
Þarf ég þá ekkert að gera í eldhúsinu fyrir jólin?
„Þú ert reyndar ekki alveg laus við eldhúsið. Það þarf að klára að hita meðlætið sem á að bera fram heitt og elda aðalréttinn, en það koma skotheldar uppskriftir og leiðbeiningar með. Markmiðið er að gera þennan hluta eins einfaldan og hægt er,“ segir Viktor.
Fyrir hversu marga eru kassarnir?
Kalkúnaveislan er fyrir 3, 6 eða 9 manns, Wellington-veislan fyrir 2 til 12 manns, hamborgarhryggsveislan fyrir 4, 8 eða 12 manns og lambahryggsveislan fyrir 3, 6, 9 eða 12 manns. Þannig á að vera hægt að finna stærð sem hentar flestum jólaboðum.
Hverjum henta jólaveislurnar?
„Í raun öllum sem vilja gera vel við sig og sína um jólin en vilja ekki verja heilum degi í undirbúning. Þetta getur verið fyrir par, litla fjölskyldu eða stórt jólaboð. Þess vegna skiptir máli að geta valið bæði mismunandi rétti og mismunandi stærðir,“ útskýrir Guðrún.
„Við viljum að fólk eigi aðeins meiri tíma til að njóta jólanna. Auðvitað vill maður hafa góðan mat á hátíðarborðinu, en undirbúningurinn þarf ekki að taka allan daginn. Ef við getum einfaldað þetta aðeins og gefið fólki meira svigrúm til að njóta hátíðanna, þá er það nákvæmlega það sem við viljum ná fram. Tíminn er svo dýrmætur,“ segir Guðrún.
Þægindi og gæði ekki andstæður
„Við finnum að fólk vill enn gera vel við sig um jólin, en það þarf ekki endilega að þýða að allt sé gert frá grunni heima. Þægindi og gæði þurfa ekki að vera andstæður. Með þessu samstarfi erum við í raun að reyna að sameina þetta tvennt.“
Hvað vonist þið til að jólaveislurnar geri fyrir fólk?
„Með þessu samstarfi Sælkerabúðarinnar við Krónuna stækkar hópurinn sem getur fengið pakkana frá okkur. Mér finnst frábært að Sælkerabúðin nái þannig til fleiri staða og að fleiri hafi aðgang að henni. Við vonum að með þessu geti fólk varið meiri tíma með fjölskyldunni á aðfangadag og minni tíma í eldhúsinu,“ segir Viktor.
Hvað myndi framkvæmdastjóri Krónunnar velja úr veislunum?
„Ég myndi byrja á humarsúpu. Mér finnst hún svo hátíðleg. Í aðalrétt er Wellington-nautalund það allra besta að mínu mati og í eftirrétt myndi ég velja ris à l’amande. En ég bý nú alltaf til minn eigin ís líka og því má ekki breyta! Þar er hefðin sterk. Svo er bara að setjast niður með fólkinu sínu og njóta þess að vera saman í rólegheitunum,“ segir Guðrún.