Djöfullinn sjálfur birtist Frans páfa þrisvar og hlið helvítis einu sinni.
Þetta kemur fram í dagbókarbrotum páfans heitins sem birt eru í nýrri bók sem gefin verður út innan skamms. Þar birtast dagbókarskrif páfans frá árunum 1992 til 2024.
Frans páfi lýsti áhyggjum sínum og eftirsjá í dagbókarskrifum sínum. Þar gagnrýndi hann sjálfan sig enn fremur fyrir öfund, stolt og lítilsvirðingu.
Eitt af því sem Frans skrifaði í dagbækur sínar er að hann hafi þrisvar séð djöfulinn meðan hann var erkibiskup í Búenos Aires, höfuðborg Argentínu. Einu sinni út um bílrúðu á leiðinni heim, öðru sinni í messu og þriðja sinni í Róm eftir heimsókn til Chile.
„Ég komst að því að skrattinn var óskammfeilinn á vappi, vomaði lævís um,“ skrifaði páfinn. „Fyrir um það bil 15 árum sá ég hann út um bílgluggann. Ég gleymi ekki ógnandi en um leið tælandi augnráði hans.“