Poppstjarnan Britney Spears tjáir sig opinskátt um óöryggi varðandi líkama sinn í nýrri færslu á samfélagsmiðlum. Sagði hún fylgjendum sínum á Instagram að fyrrverandi kærastar hennar hefðu hvatt hana til að fara í „hárígræðslu“ til að hylja eða minnka ennið á sér.Á laugardaginn, 21. nóvember, birti Britney (44) myndskeið á Instagram þar sem hún virðist vera um borð í einkaþotu. Með færslunni fylgdi beinskeyttur texti þar sem hún gagnrýnir fyrrverandi maka sína.
Segir alla karlmenn sem hún hefur verið með hafa hvatt hana til að laga andlitið með aðgerð