Emil Alfreð er fæddur árið 1990 og alinn upp í Hafnarfirðinum. Hann er einstaklega yfirvegaður, slakur og léttur, hláturmildur og segist aldrei hafa tekið sjálfum sér eða lífinu of alvarlega. Emil fór um víðan völl og ræddi við blaðamann um lífið og tilveruna, uppvaxtarárin hjá Krossinum, húmorinn, óumflýjanlega sorg, gleðina í litlu hlutunum, blessunina í því að vera rekinn og nýjan kafla sem er nú fram undan hjá honum.
Alltaf elskað sviðsljósið
Kvikmyndagerð, sketsar, grín og glens heilluðu Emil snemma á lífsleiðinni en síðastliðin átta ár hefur hann tekið þátt í tónleikunum Julevenner ásamt rapparanum Emmsjé Gauta, sem hann kynntist í gegnum sameiginlegan vin þeirra, Frey.
Freyr framleiðir tónleikana með Gauta frá A-Ö og þeir fengu mig til að vera með. Ég er uppi á sviðinu og þegar fólk spyr mig af hverju ég sé þarna segi ég þeim að þau verði að spyrja einhvern annan. Ég hef ekki hugmynd, ég bara mæti, segir Emil kíminn en það virðist einmitt vera hann í hnotskurn, sá sem fylgir flæðinu og segir já við skemmtilegum tækifærum.
„Það er náttúrulega mikið grín og glens með tónlistinni á þessum tónleikum og við Freyr erum búnir að þekkjast frá því við vorum unglingar. Á unglingsárunum var ég mikið fyrir sviðsljósið og mér hefur í raun alltaf fundist skemmtilegt að stíga upp á svið.
Ég elskaði að koma fram, það var bara alltaf svoleiðis og ég nýtti hvert tækifæri til að taka þátt í hæfileikakeppnum, var tíu ára að syngja lög með Tvíhöfða og fíflast. Ég var lengi upptekinn af því að vera sniðugur og fyndinn en svo fer maður að snúa sér að öðrum hlutum. Þetta blundaði samt alltaf í mér.“
Hamingjan allt sem skiptir máli
Tækifærin í skemmtanalífinu virtust ekki hafa blasað við Emil á hans yngri árum.
„Mér datt aldrei í hug að það væri mögulegt að vinna við eitthvað þessu tengt heldur hélt ég að þetta yrði bara að vera áhugamál. Ég veit í raun ekki af hverju en svo þróast lífið líka í aðrar áttir. Ég hef aldrei verið skipulagðasti gaur í heimi og var ekkert að hugsa: Ég verð að stíga þessi ákveðnu skref til að láta ákveðinn draum rætast. Það sem skiptir mig mestu máli er að vera hamingjusamur, þá er ég sáttur.“
Hafnarfjörðurinn var yndislegur staður til að alast upp á að sögn Emils.
„Ég átti æðisleg uppvaxtarár og hef verið svo heppinn. Í mínu lífi hefur það verið sjálfgefnasti hlutur í heimi að vera elskaður frá fyrstu sekúndu og það eru sannarlega ekki allir sem upplifa það. Ég á yndislega fjölskyldu og frábæra foreldra. Ég hugsa oft hlýlega til uppvaxtaráranna.“
Alinn upp í Krossinum
Þó voru uppvaxtarárin frábrugðin því sem margir þekktu.
„Þau voru að sama skapi mjög áhugaverð. Það sem er kannski hvað mest frábrugðið minni æsku miðað við marga aðra er að við höfum verið í Krossinum, það var náttúrulega svolítið sérkennilegt.“
Í föðurætt Emils er rótgróinn söfnuður en skyldmenni hans þar stofnuðu Krossinn.
„Við vorum alveg í miðjunni á þessu og hlutirnir sem maður upplifði og sá þar voru alveg mjög áhugaverðir. Þó svo að ég myndi ekki fara með dóttur mína í gegnum þetta þá hef ég þannig séð ekkert slæmt um þetta að segja.
Í dag veit ég ekkert nákvæmlega hvar ég stend gagnvart trúarbrögðum en þegar þú ert svona berskjaldaður fyrir þessu á yngri árum ertu óhjákvæmilega mikið að hugsa um stærri myndina og hvað þetta allt þýðir.“
Hroki í einum heilögum sannleika
Emil segist sjálfur ekki vera með nein svör en það sé kannski líka tilgangurinn.
„Mér finnst ekkert vera rangt eða rétt. Þó svo að ég sé kannski ósammála þá er það ekkert sem ég er að viðra. Sannleikur hvers og eins er það sem mér finnst skipta máli, ef einhverjum líður vel í trúnni þá er það frábært. Í grunninn eru öll trúarbrögð mjög falleg, þar sem boðskapur kærleikans er í forgrunni. Ég lærði mikið um hann en svo fór þetta líka út í öfgarnar.
Allir sem ég þekki úr kirkjunni eru yndislegt fólk og ég hef ekkert á móti því, ég er alls ekki að segja neitt illt en þetta var of mikið, svona þegar ég hugsa til baka. Í grunninn er ég þakklátur, mér finnst svolítið erfitt að setja þetta í orð en mér finnst ég hafa lært margt á þessum tíma.“
Í dag heldur leitin áfram hjá Emil.
„Ég hef kannski mína kenningu um það hvað Guð sé í dag og það getur breyst á morgun. Mér finnst líka hugmyndin um að aðeins eitt geti haft rétt fyrir sér galin. Vá, hvað við erum þá heppin að hafa fæðst í vestrænu ríki og okkar trú er sú eina sanna og hinir sem fæðast inn í önnur trúarbrögð eru þá bara óheppnir eða hvað?
Þetta meikar auðvitað engan sens og það er hræðilegt að horfa upp á allan þann bardaga og allt það blóð sem hefur fylgt átökum á milli trúarbragða. Mér finnst rosalegur hroki fólginn í því að geta fullyrt að ég hafi rétt fyrir mér en ekki þú.“
Predikun um Satan ekki upplögð fyrir unglinga
Á sínum yngri árum í Krossunum segist Emil hafa upplifað það sem skilgreina mætti sem hræðsluáróður.
„Þetta var alveg smá erfitt dæmi fyrir mig að vinna mig úr og átta mig á. Ég man eftir því að hafa verið tólf ára á unglingasamkomu, ég var látinn mæta á þetta allt saman. Þarna var erlendur prestur mættur að tala við okkur unglingana og hann var fyrrum prestur í djöflakirkju.
Þú situr þarna tólf ára og fullorðinn maður predikar yfir þér um allt sem hann hafði séð, til að mynda besta vin sinn andsetinn þegar þeir kölluðu fram Satan.
Þú færð auðvitað áfall, þú ferð ekkert heim og leggst rólegur á koddann eftir svona. Þetta er eitthvað sem þú átt alls ekki að kynna fyrir börnum. Svo var rosalega mikið verið að ýta undir einhvern guðsótta. Á samkomum var stöðugt verið að segja: „Hann er alveg að koma, við finnum það, hann er alveg að koma.“ Semsagt að heimurinn væri alveg að fara að enda. Þú ert tíu ára, bara barn, og það er stöðugt verið að segja þér að heimsendir nálgist óðfluga.
Það er auðvitað galið, má ég kannski fyrst bara fá að finna út úr því hver ég er áður en ég þarf að fara að undirbúa mig fyrir heimsendi?“
Ungur og gagnrýninn
Emil segist þó aldrei hafa gleypt við þessu án þess að velta því fyrir sér.
„Ég lét aldrei segja mér hvað væri rétt eða rangt, ætli ég hafi ekki verið ungur þegar ég byrjaði að hugsa svolítið gagnrýnið. Þó að þetta hafi verið sett fram á þennan hátt fyrir mig í öll þessi ár þá fannst mér þetta alltaf hljóma svolítið klikkað.
Ég veit ekki af hverju en ég var ekki alveg viss um þetta og ég lét þetta ekki heltaka mig heldur var ég með innbyggðan stoppara sem sagði mér að ég ætti ekki að gleypa við þessu. Auðvitað er það samt almennt þannig að ungdómurinn treystir á að fullorðnir segi þeim satt.
Mér dettur í hug atriði úr kvikmyndinni Water Boy með Adam Sandler, mig minnir að mamma hans hafi sagt honum að krókódílar geti talað og svo þegar hann fer að segja bekkjarbræðrum sínum frá því fara þeir allir að hlæja að honum. Það er svo skrýtið þegar maður trúir einhverju algjörlega og áttar sig svo löngu síðar á að það sé bara alls ekki satt.“
Heimsmyndin umturnaðist við litað hár afans
Emil lifði sem dæmi lengi í þeirri trú að hann yrði ekki gráhærður.
„Móðurafi minn lést í fyrra en var hárgreiðslumaður og rak stofuna sína til síðasta dags. Hann var alltaf með sótsvart hár og mér fannst svo frábær tilhugsun að ég væri með svona geðveikt gen, ég væri að fara að verða gamall með ótrúlega fallegt svart hár.
Svo var ég þrítugur þegar ég komst að því að hann væri bara búinn að lita á sér hárið í ótrúlega langan tíma og heimsmyndin bara kollvarpaðist,“ segir Emil og skellir upp úr. „En það er einmitt málið, það er svo auðvelt að trúa því sem manni er sagt og það verður einhver sannleikur hjá manni.“
Kærkomið að geta farið út í fótbolta á sunnudögum
Mikið var fjallað um Krossinn í fjölmiðlum á sínum tíma. Árið 2010 stigu fimm konur, og síðar fleiri, fram og sendu bréf til stjórnar Krossins og fjölmiðla. Þær sökuðu Gunnar, forstöðumann Krossins, um kynferðislega áreitni, kynferðisbrot og tilraunir til þöggunar.
„Það var ýmislegt sem kom upp, þannig flosnaði upp úr því samfélagi eins og það lagði sig og mín kjarnafjölskylda færðist út úr söfnuðinum. Það var ákveðinn raunveruleiki sem fólkið þurfti að mæta. Sá sem var efstur í kirkjunni setti sig fram sem maðurinn sem er nær guði en hinir.
Til að komast til guðs þarf að fara í gegnum prestinn því prestar eiga að hafa þetta vald að tala við guð. Það er rosalegt vald, sérstaklega þegar fólk er blint á trúna. Menn hafa verið þekktir fyrir að nýta sér það í gegnum tíðina. Þarna þurfti fólk að horfast í augu við þann sannleika að sá sem var æðstur var að notfæra sér stöðu sína.“
Sjálfur segist Emil í sannleika sagt hafa upplifað létti.
„Ég var gríðarlega feginn ef ég á að vera hreinskilinn. Maður hafði eytt öllum sunnudögum þarna og mér fannst mjög skemmtilegt að geta bara farið út í fótbolta eða leikið mér en ekki þurft að sitja og hlusta á mann lesa úr biblíunni.
Svo var aðeins verið að pota í mann í skólanum líka, eldri gaurunum þótti það sérstaklega gaman. Þó að mér fyndist það alltaf mjög óþægilegt reyndi ég samt bara alltaf að svara þeim eins og það væri ekkert skrýtið,“ segir Emil yfirvegaður.
Bræður og bestu vinir í gegnum lífið
Honum hefur alltaf, að hans sögn, tekist ágætlega að láta fólk ekki koma sér úr jafnvægi.
„Yfir höfuð hef ég alltaf setið ágætlega í sjálfum mér, auðvitað misvel en svona almennt séð bara vel. Ég hef svo sem aldrei velt því fyrir mér hvaðan það kemur en þegar ég hugsa út í það held ég að það hljóti að hafa eitthvað að gera með það að ég á bróður, Jón Hjört, sem er ári yngri en ég og við vorum saman í herbergi í átján ár. Við höfum alltaf verið bestu vinir og staðið þétt við bakið á hvorum öðrum, sama hvaða vindar blésu á móti þá höfðum við alltaf hvorn annan.“
Emil á þrjú systkini og fyrir utan Jón Hjört á hann bróður fæddan 1986 og systur fædda 1996 og fjölskyldan hefur alltaf verið náin.
Rekinn úr skóla en lítið stress
Hafnarfjörður hefur spilað stórt hlutverk í lífi Emils og eftir grunnskóla fór hann í Flensborg.
„Ég kláraði ekki því ég fékk reisupassann,“ segir Emil sposkur og á við að hann hafi verið rekinn.
„Nám hefur alltaf legið ágætlega fyrir mér fyrir utan stærðfræðina sem var alltaf með djöfulsins vandræði. Fyrsta árið í Flensborg gekk bara vel og á öðru ári komst ég svo inn í vídeóráðið, þar sem við vorum að gera grínsketsa og fleira skemmtilegt.
Það var bókstaflega það eina sem skipti mig máli, námið var algjörlega tilgangslaust fyrir mér en ég var bara stöðugt að hugsa leiðir til að gera eins fyndið efni og ég mögulega gat. Ég varð heltekinn af þessu og hafði engan tíma til að mæta í samfélagsfræði eða eitthvað,“ segir Emil og hlær.
Mætingin hans í skóla varð fyrir barðinu á ástríðunni og það endaði á því að hann fékk ekki lengur að vera nemandi í Flensborg.
Mér var eiginlega bara skítsama og það eina sem var kannski erfitt í þessu var að tilkynna öðrum þetta, eins og pabba. Hann var ekkert sérstaklega hrifinn, eðlilega,“ segir Emil og skellir upp úr.
„Það var þó ekkert alvarlegt. Þegar ég var rekinn úr Flensborg var ég náttúrulega rekinn úr vídeóráðinu og mér datt ekkert í hug að ég gæti farið að reyna fyrir mér í einhverju svoleiðis þannig ég fór bara að leita mér að vinnu.“
Þríburar breyttu ferlinu
Þá fer Emil inn í umönnunargeirann, var aðallega að vinna með börnum og unglingum og fann sig algjörlega þar.
„Þar fer sú lest af stað hjá mér. Mér fannst það ótrúlega skemmtilegt og þetta hentaði mér vel. Ég fann mig algjörlega þarna, þetta var allt öðruvísi en rosalega gefandi.“
Sköpunargleðin blundaði innra með Emil og var farin að gera vart við sig aftur nokkrum árum síðar.
„Ég og félagi minn sem ég hafði unnið hvað mest með í vídeóráðinu vorum báðir að vinna við þetta og við ákváðum saman að breyta til, kýla á það og fara í Kvikmyndaskólann.“
Þeir ætluðu sér í sameiningu að hella sér inn í námið en örlögin höfðu aðeins önnur plön.
„Í lokaáfanganum í skólanum áttum við að gera heimildarmynd og vinur minn hafði ákveðið að gera heimildarmynd um einhvern óþekktan með það að leiðarljósi að einhver sem er ekki neitt í sviðsljósinu og fáir vita hver er geti verið alveg ótrúlega áhugaverður. Þetta floppaði aldeilis hjá honum því hann lenti á einstaklega óspennandi karakter og svo hætti hann bara að mæta í skólann.
Ég hélt hann væri að forðast það út af verkefninu og endaði á að hringja í hann og reyna að hvetja hann áfram, segjast geta hjálpað honum og svona. Þá kom í ljós að þetta snérist ekkert um verkefnið heldur ætti hann von á þríburum og væri því að fara á vit nýrra ævintýra. Þannig misstum við þann góða mann úr bransanum,“ segir Emil hlæjandi og bætir við að nú rúmum áratugi síðar séu þeir þó að brugga eitthvað skemmtilegt saman.
Mikil blessun að vera rekinn
Eftir útskrift úr Kvikmyndaskólanum fór Emil að gera stuttmyndir og vinna að alls kyns verkefnum í framleiðslu.
„Ég var að reyna að skrifa mitt eigið efni, skilaði inn handritsumsóknum og fékk nokkur nei og svo gerði ég eina stuttmynd sem var svo léleg að ég hef ekki einu sinni horft á hana, segir hann hlæjandi og bætir við:
„Ég vann sem „runner“ í kvikmyndaframleiðslu þar sem maður er að aðstoða og gera og græja sem er ekki beint besta vinna í heimi og ekki mikill peningur. Þannig að ég fór aðeins að endurskoða hlutina, áttaði mig á því að peningar skipta líka máli og mig langaði að lifa góðu lífi.
Þannig að ég sneri aftur í umönnun þar sem ég undi mér vel og það var líka svo gaman að geta haft verkefni á hliðarlínunni sem voru í alvörunni gefandi og skemmtileg, eins og Julevenner. Ekki eitthvað gigg þar sem þú þarft að hlaupa og kaupa fullt af appelsíni í sjoppu í Stykkishólmi.“
Lífið er breytingum háð og hefur Emil alltaf reynt að taka þeim fagnandi.
„Svo fékk ég reisupassann um daginn, það er að segja ég var rekinn, og það var líka bara algjör snilld. Maður hefur alveg áttað sig á því að þú býrð til þinn eigin raunveruleika og ákveður hvað þú vilt gera. Mér finnst mikilvægt að átta sig á því hvað maður sjálfur hefur mikið um lífið að segja, hvernig þú vilt að þitt líf sé og hvernig þú bregst við hlutunum.
Þegar ég var rekinn fór ég strax að sjá fyrir mér aðra leið í lífinu. Það eru endalaust af vegum sem hægt er að smella sér á og stundum þarf eitthvað svona að gerast svo maður skipti um braut því annars endarðu á því að keyra þá sömu alltof lengi. Það er svo mikilvægt að ögra sér.“
Já maðurinn í fullu fjöri
Því má segja að Emil sé kominn aftur í ræturnar og sköpunargleðina.
„Nú langar mig að fara að búa til eitthvað skemmtilegt og jafnvel koma fram og berskjalda mig svolítið. Ég hef svo ótrúlega gaman af því líka og ég er aðeins farinn að láta vita af mér og er til í allt. Það er smá Yes man-fílingur í gangi hjá mér. Það er í alvöru talað magnað að sjá hvað það gerist margt skemmtilegt um leið og þú segir já. Það eru svo margar dyr sem opnast í kjölfarið og það er stórkostlegt.“
Fyrr í vetur byrjaði Emil með hlaðvarp ásamt Emmsjé Gauta og hefur hann verið algjörlega ófeiminn við að deila sögum úr raunveruleika sínum sem hafa verið í senn sorglegar og bráðfyndnar.
„Þetta hlaðvarp var bara einhver hugmynd sem Gauti fékk og bað mig um að vera með sér. Ég er búinn að vera svo oft með honum uppi á sviði og hef náttúrulega verið að gera alls konar hluti. Ég hef verið með uppistand, sungið og dansað þrátt fyrir að vera agalegur söngvari en ég geri það bara því það er stemning og stuð.
Það er ekki hægt að segja að ég taki lífinu of alvarlega og ég hef alltaf haft húmor fyrir hæðum og lægðum lífsins.“
Húmor fyrir því sem er ekki kúl
Myndbrot úr hlaðvarpinu vakti mikla athygli á samfélagsmiðlum þar sem Emil ræddi síðustu jól hjá sér. Hann var einn hjá foreldrum sínum, fékk einn lítinn pakka og fór snemma heim einn að sofa. Hér má sjá umrætt myndbrot:
„Ég á eina fimm ára stelpu og hún var hjá mömmu sinni síðustu jól en við skiptum jólunum á milli okkar. Það er rosaleg naflaskoðun að vera svona einn um jólin,“ segir Emil og bætir við:
„Ég vorkenni fólki sem getur ekki hlegið að sjálfu sér og þorir ekki að tala um hluti sem eru ekki flottir eða kúl. Það ætti allavega mörgum að líða betur með jólin sín eftir að hafa heyrt frá mínum.
Þetta er náttúrulega svo mikið grín, ég áttaði mig fljótt á því í fyrra hvað þetta var sprenghlægilegt þannig ég passaði mig að leggja þetta vel á minnið því ég vissi að það væri svo fyndið að geta sagt frá þessu. Það eru nóg af sorglegum mómentum fram undan sem hægt er að gera grín að og ég er bara spenntur fyrir því,“ segir Emil hlæjandi.
Stærsta sorgin í lífinu
Hann segir föðurhlutverkið jafnframt það besta í heimi.
„Það er varla hægt að koma því í orð. Ég hef alltaf verið ábyrgur en smá ruglaður á sama tíma en þegar ég varð faðir fóru ábyrgu hliðarnar að taka miklu meira pláss. Þetta er svo dásamlegt og raunverulega ekki klisja þegar ég segi að það besta sem hefur komið fyrir mig sé að eignast barn. Stelpan mín er svo yndisleg og fyndin og það er einfaldlega draumur að vera pabbi hennar.
Auðvitað hryggir það mann að vera bara með henni aðra hvora vikuna og það er í raun mín stærsta sorg í lífinu. Að sama skapi á hún alveg yndislega mömmu og við vinnum þetta mjög mikið saman, það er góður samgangur á milli og það er ómetanlegt.
Stundum heldur maður að Guð sé til því hann blessar mann með þessu. Þegar allt kemur til alls þá myndi ég ekki vilja breyta neinu, þó að maður eigi sorgleg og bráðfyndin jól inn á milli,“ segir Emil lífsglaður og léttur að lokum.
Hér má nálgast nánari upplýsingar um Julevenner í ár.