Búast má við allhvössum vindi framan af degi. Víða verða skúrir og austantil verður samfelld rigning. Það dregur smám saman úr vindi og upp úr hádegi kólnar vestanlands með slydduéljum. Það hvessir aftur í fyrramálið.
Hálkublettir eru á Steingrímsfjarðarheiði, Dynjandisheiði, í Köldukinn og á Dettifossvegi. Krapi er á Mjóafjarðarheiði og hætta er á grjóthruni í Hvalnesskriðum.
Veðurspáin er svohljóðandi:
Suðaustan 10-18 m/s og skúrir, en rigning austanlands. Hiti 4 til 9 stig. Dregur smám saman úr vindi í dag og kólnar vestanlands eftir hádegi með dálitlum slydduéljum.
Gengur í suðaustan 10-18 suðvestan- og vestantil á morgun með vætu á köflum. Hægari vindur og þurrt annars staðar, en súld eða rigning á Austurlandi. Hiti yfirleitt 0 til 7 stig. Suðaustan 13-20 og víða rigning annað kvöld, en hægari og úrkomulítið norðaustanlands.