Lazar er 26 ára guðfræðinemi sem hefur starfað í grunnskóla og frístund frá því hann var nítján ára gamall. Í vinnunni sér hann meðal annars um söguklúbb og segir börnum þar sögur sem hann semur. Fyrir tveimur árum varð sagan Norðurstjarnan til þegar klúbburinn kom saman.
„Þegar ég samdi Norðurstjörnuna fyrir tveimur árum var það um jólatíma og þá lá beinast við að semja jólasögu fyrir söguklúbb. Krökkunum fannst hún skemmtileg og nokkrir sögðu meira að segja ‚þetta ætti að vera bók!‘ Þá hugsaði ég ‚Já, veistu, ég er sammála, þetta ætti að vera bók, af hverju ekki?“ segir Lazar.
Jólasveinninn hverfur
Lazar ákvað að vinna söguna út frá einni spurningu: Hvað myndi gerast ef jólasveinninn væri ekki lengur til staðar og færði börnum ekki gjafir?
Sögusvið bókarinnar er Frostvík þar sem Snjólaug litla býr með bróður sínum og loðnum verndara.
„Þau leggja af stað í ferðalag í leit að jólasveininum þar sem hann hefur ekki heimsótt Frostvík í langan tíma og er greinilega horfinn. Ástæðan fyrir því er óljós en eitt er víst, afleiðingarnar hafa verið agalegar. Hrikalegt óveður, mannshvörf og sögur um skrímsli á röltinu, ferðalag þeirra þriggja verður allt annað en bara hefðbundið ævintýri eins og Snjólaug hugsaði sér það fyrst.“
Lazar sækir innblástur í íslenska veturinn og lífið á Ísafirði þar sem hann ólst upp. Honum finnst snjórinn og myrkrið geta verið bæði ógnvekjandi og hugguleg.
„Veturnir hér á landi geta verið langir og kaldir eins og við þekkjum það eflaust öll, en það er samt eitthvað heillandi við þennan tíma finnst mér.“
„Ég er bara sögumaður“
Þegar kom að myndskreytingunum var Teodora systir hans fyrsti kosturinn.
„Hún hefur alltaf verið meiri listamaður en ég, ég er bara sögumaður þannig að þetta kom út nokkuð vel. Margar senur úr bókinni sá hún um sjálf og ég treysti henni fullkomlega til þess. Mér fannst það líka falleg tilhugsun að systkini stæðu saman að útgáfu bókar þar sem aðalpersónurnar eru einnig bróðir og systir, það spilaði inn í líka.“
Lazar sá sjálfur um útgáfuna, með stuðningi foreldra sinna.
„Það sem reyndist erfiðast var öll vinnan í kringum það. Ég væri til í að vinna með einhverjum útgefanda fyrir næstu bók, satt að segja. Við sjáum bara til með það. Ég verð samt að þakka foreldrum mínum fyrir stuðninginn. Þau hafa hjálpað mér með útgáfuna á fleiri en einn hátt og það hefði reynst erfiðara án þeirra, satt að segja.“
Hann gat því andað léttar þegar hann fékk fyrsta eintakið í hendurnar.
„Maður gat andað léttar vitandi að eins og hálfs árs verkefni var klárað og gaman að geta haldið á einhverju sem byrjaði bara sem hugmynd.“
Norðurstjarnan fæst að sögn Lazars í bókabúð Forlagsins, bóksölunni í Kirkjuhúsinu hjá Bústaðakirkju og Bóksölu stúdenta við Háskóla Íslands. Hann segir hana helst henta börnum í þriðja og fjórða bekk, þótt fleiri aldurshópar geti haft gaman af henni.