Donald Trump Bandaríkjaforseti ætlar að fyrirskipa dómsmálaráðherra Bandaríkjanna að flýta fyrir aftöku fanga sem hafa hlotið dauðadóma og eru í alríkisfangelsum í Bandaríkjunum. Hann fordæmir ákvörðun Gavins Newsom, ríkisstjóra Kaliforníu, sem mildaði dóma 548 fanga sem höfðu verið dæmdir til dauða og breytti dómum þeirra í lífstíðardóma fyrr í mánuðinum.
Bandaríkjaforseti greindi frá ákvörðun sinni á viðburði sem dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna stóð fyrir í gærkvöld, en þar voru meðal gesta fjölskyldur fórnarlamba sem töluðu gegn ákvörðun Newsom.
Trump sagði að 110 barnamorðingjar, yfir 100 nauðgarar sem myrtu fórnarlömb sín og fjöldi raðmorðingja hefðu verið meðal þeirra sem Newsom hefði mildað dómana yfir. Hann sagði ákvörðun Newsom vera hneyksli og eitt mesta óréttlæti sem sést hefði í Bandaríkjunum.
Skrifstofa Newsom ríkisstjóra segir í færslu á x að allir sem verði fluttir af dauðadeild Kaliforníu deyi á endanum í fangelsi. Enginn gangi þaðan út. Bandaríkjaforseti var gagnrýndur í færslunni og spurt var um glæpamenn hans eins og það var orðað. „Þeir ganga lausir á meðan auðugir styrktaraðilar og hagsmunagæsluaðilar tryggja sér náðun eftir alvarlegar ásakanir um greiðslur,“ sagði í færslunni.
548 fangar í Kaliforníu hafa hlotið dauðadóm og þar er ein fjölmennasta fangadeild fyrir dauðadæmda fanga í heiminum. Enginn hefur hins vegar verið tekinn af lífi í ríkinu í tvo áratugi.
Newsom er talinn líklegur til að bjóða sig fram í forsetakosningum árið 2028.