Aðalmeðferð í máli Semu Erlu Serdaroglu, stofnanda Solaris-hjálparsamtakanna, hefst í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur. Hún var ákærð fyrir brot á lögum um opinberar fjársafnanir eftir að Solaris stóð fyrir landssöfnun fyrir Palestínu árið 2024.
Samtökin báru ábyrgð á framkvæmd söfnunarinnar, utanumhaldi og ráðstöfun þeirra fjármuna sem söfnuðust.
Ákæra gegn Semu Erlu byggir á því að Solaris hafi ekki tilkynnt um fjársöfnunina til sýslumanns áður en hún hófst. Tilkynning hafi ekki borist til embættisins fyrr en hálfu ári eftir að henni lauk.
Sema Erla kvaðst saklaus þegar málinu var þinglýst í ágúst. Í sumar bauð lögreglan á höfuðborgarsvæðinu henni að játa á sig sök um að hafa brotið lög, greiða sekt og fá brotið skráð í sakaskrá, sem hún hafnaði.
Sjálf hefur hún einnig gagnrýnt meðferð málsins og segir að fáir kannist við lög um opinberar safnanir og að ákveðnum ákvæðum um þær sé ekki fylgt. Þá hafi sýslumaður sjálfur árum saman bent dómsmálaráðherra á að uppfæra eigi lögin.