Glæsilegt einbýlishús er til sölu við Aflakór í Kópavogi. Um er að ræða sannkallaða höll á tveimur hæðum með skjólgóðum garði og rosalegri verönd sem er fullkomin fyrir garðpartý næsta sumars.Ofurparið Bergrún Lind Jónasdóttir, kölluð Begga, og Rúnar Ólafsson selja höllina. Begga er eigandi fatamerkisins Maizon Elle og margir kannast eflaust við Rúnar úr auglýsingum Bíll.is þar sem hann starfar.
Ofurparið Begga og Rúnar selja 234 milljón króna höll