Börn Lúð­víks kæra niður­fellingu málsins - Vísir

Börn Lúð­víks kæra niður­fellingu málsins - Vísir

Börn Lúð­víks kæra niður­fellingu málsins - Vísir

Þetta kemur fram í yfirlýsingu. Þar segir að þess sé aðallega krafist að ákvörðunin verði felld úr gildi og að ákæra verði gefin út á hendur þeim sem höfðu réttarstöðu sakbornings, eða einhverjum þeirra, fyrir manndráp af gáleysi og brot á lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Greint var frá því í síðustu viku að málið hefði verið fellt niður hjá héraðssaksóknara.

„Við höfum í nær þrjú ár beðið eftir svörum um hvers vegna Lúðvík var sendur til vinnu ofan á opna sprungu, án áhættumats og eftir að búnaðurinn sem verkið byggði á hafði bilað. Niðurstaða Héraðssaksóknara varð sú að ábyrgðin var lögð á þann eina sem ekki getur svarað fyrir sig. Við getum ekki sætt okkur við það, og við teljum að almenningur eigi rétt á að vita hvernig þetta mál hefur verið meðhöndlað,“ er haft eftir Elíasi Péturssyni bróður Lúðvíks. 

Í yfirlýsingunni segir að saksóknar sé jafnframt krafist á hendur verktakafyrirtækinu sem Lúðvík starfaði hjá, verkfræðistofunni sem hafði umsjón með verkinu og Náttúruhamfaratryggingu Íslands (NTÍ) sem lögaðilum. Til vara sé þess krafist að rannsókn málsins verði haldið áfram.

„NTÍ, sem er ríkisstofnun, óskaði 4. desember 2023 eftir því að verkfræðistofa sem annaðist tjónamat fyrir stofnunina kannaði hvort fylla mætti í sprungu undir gafli hússins að Vesturhópi 29, þar sem gaflinn var á lofti yfir um fjögurra metra djúpri holu. Innan við þremur klukkustundum síðar var verkið afgreitt af hálfu NTÍ. Hættustig almannavarna var í gildi og samkvæmt hættumatskorti Veðurstofunnar var töluverð hætta í Grindavík, meðal annars vegna sprungna og sprunguhreyfinga.“

Segir að í kærunni sé meðal annars bent á að:

  • ekkert skriflegt áhættumat, engin öryggis- og heilbrigðisáætlun og engin skrifleg fyrirmæli lágu fyrir um verkið;
  • verkið var skipulagt í kringum þjöppu á gröfuarmi svo að ekki þyrfti að vinna á fæti við sprunguna, en sá búnaður var bilaður og verkinu var engu að síður haldið áfram;
  • Vinnueftirlitið rekur slysið meðal annars til þess að fullnægjandi áhættumat lá ekki fyrir og telur að afleiðingar hefðu orðið aðrar ef búnaðurinn hefði verið notaður;
  • lögreglustjórinn á Suðurnesjum, sem rannsakaði málið, taldi að brot kynnu að varða við ákvæði almennra hegningarlaga um manndráp af gáleysi og ákvæði vinnuverndarlaga.

Ábyrgðin hafi verið felld á þann sem ekki geti svarað fyrir sig

„Héraðssaksóknari taldi að Lúðvík hefði verið verkstjóri á verkstað „og verður því ráðið að hann hafi borið ábyrgð á umræddu verki“. Aðstandendur hafna þeirri niðurstöðu. Í kærunni er bent á að staða Lúðvíks var aldrei rannsökuð, til dæmis var ekki aflað ráðningarsamnings hans eða gagna um hvort honum hefði verið falin verkstjórn,“ segir meðal annars í yfirlýsingunni. 

„Lýsingin á honum sem verkstjóra kom fyrst berum orðum fram í athugasemdum verkfræðistofunnar við skýrsludrög Vinnueftirlitsins haustið 2024 og síðan í skýrslum sakborninga, þ.e. af hálfu þeirra sem hafa hag af því að ábyrgð verði felld á hinn látna. Gögn málsins benda til þess að skipulag verksins hafi verið í höndum verkfræðistofunnar.“

Þá hafi héraðssaksóknari byggt á framburði eins þeirra sem höfðu réttarstöðu sakbornings um að skýrt hefði verið tekið fram að aldrei ætti að vinna á fæti. Segir í yfirlýsingunni að sú lýsing hafi ekki kom fram í tveimur fyrri skýrslum hans sem vitnis og er í andstöðu við samtímagögn og framburð annarra. Í kærunni sé óskað eftir því að ríkissaksóknari meti sjálfstætt hvaða vægi verði lagt á slíkan breyttan framburð.

Ákvörðun ríkisstofnunar hafi ekki verið rannsökuð

„Héraðssaksóknari tók ekki afstöðu til þeirrar ákvörðunar NTÍ að láta vinna verkið, til skyldna stofnunarinnar sem verkkaupa né til refsiábyrgðar lögaðila. Aðstandendur óskuðu í nóvember 2024 eftir því við dómsmálaráðherra að óháðir sérfræðingar rannsökuðu slysið og aðdraganda þess. Erindið var í staðinn sent starfshópi sem falin hafði verið ytri rýni á störfum viðbragðsaðila vegna jarðhræringanna,“ segir í yfirlýsingunni.

„Dómsmálaráðuneytið, í tíð þáverandi dómsmálaráðherra, afmarkaði verksvið hópsins þannig að viðbragðsaðilar teldust aðeins þeir sem nefndir eru í reglugerð og viðbragðsáætlun. Þar með féllu utan athugunarinnar aðilar sem sinntu verkefnum á hættusvæðinu á grundvelli laga eða fyrirmæla stjórnvalda, svo sem NTÍ, sem lét vinna verkið á grundvelli laga um stofnunina. Hið sama átti við um verkfræðistofuna og verktakafyrirtækið sem unnu verkið. Starfshópurinn mæltist sjálfur til þess að kannað yrði hvort NTÍ ætti að falla undir ytri rýni í ljósi hlutverks stofnunarinnar.“

Að mati aðstandandenda uppfylli athugunin af þessum sökum ekki þær kröfur sem önnur grein mannréttindasáttmála Evrópu geri um rannsókn þegar dauðsfall verði við starfsemi á vegum opinberra aðila. Með afmörkuninni hafi ábyrgð þeirra sem tóku ákvörðun um að ráðast í verkið sem Lúðvík lést við verið sett utan sviga.

Aðstandendur hafi í febrúar 2026 óskað eftir aðgangi að samskiptum ráðuneytisins og starfshópsins um umboð hópsins. Hluti gagnanna hafi verið afhentur í nóvember 2026, tæpum níu mánuðum síðar. Nú sé málið til meðferðar hjá úrskurðarnefnd um upplýsingamál. Í kærunni sé byggt á því að krafan um skilvirka og gagnsæja rannsókn hvíli þar með öll á sakamálinu.

21 mánuður hafi liðið án sýnilegra vinnu en ákvörðun tekin á fimm

„Rannsóknargögn bárust héraðssaksóknara frá lögreglu 10. febrúar 2025. Ekki verður séð af málsgögnum að embættið hafi á þeim tæpu 21 mánuðum sem liðu þar til ákvörðun var tekin aflað nokkurra gagna, tekið skýrslur eða óskað eftir frekari rannsókn. Aðstandendum var ítrekað svarað að málið væri umfangsmikið og í vinnslu. Eftir að fyrirsvarsmaður aðstandenda sneri sér beint til héraðssaksóknara sjálfs 4. nóvember 2026 var ákvörðun um niðurfellingu tekin fimm dögum síðar, án nokkurrar viðbótarrannsóknar.“

#börn #kæra #lúðvíks #málsins #niðurfellingu

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262967307d/born-ludviks-kaera-nidurfellingu-malsins

📰 Aðrar fréttir

Segir alla karlmenn sem hún hefur verið með hafa hvatt hana til að laga andlitið með aðgerð
📅 24.11.2026 👁️ 0
Segir alla karlmenn sem hún hefur verið með hafa hvatt hana til að laga andlitið með aðgerð
Poppstjarnan Britney Spears tjáir sig opinskátt um óöryggi varðandi líkama sinn í nýrri færslu á samfélagsmiðlum. Sagði hún fylgjendum sínum á Instagr...
Ofurparið Begga og Rúnar selja 234 milljón króna höll
📅 24.11.2026 👁️ 1
Ofurparið Begga og Rúnar selja 234 milljón króna höll
Glæsilegt einbýlishús er til sölu við Aflakór í Kópavogi. Um er að ræða sannkallaða höll á tveimur hæðum með skjólgóðum garði og rosalegri verönd sem ...
Orðið á götunni: Hvaða lögfræði lærði Hildur? – Hvað breyttist?
📅 24.11.2026 👁️ 1
Orðið á götunni: Hvaða lögfræði lærði Hildur? – Hvað breyttist?
Orðið á götunni er að kostulegt sé að fylgjast með þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, hverjum á fætur öðrum, genga nú fram fyrir skjöldu og mótmæla því ...
Börn Lúðvíks kæra ákvörðun héraðssaksóknara – „Við getum ekki sætt okkur við það“
📅 24.11.2026 👁️ 1
Börn Lúðvíks kæra ákvörðun héraðssaksóknara – „Við getum ekki sætt okkur við það“
Börn Lúðvíks Péturssonar, sem lést við vinnu sína í Grindavík þann 10. janúar 2024, hafa kært ákvörðun héraðssaksóknara um að fella niður sakamál vegn...
Páfinn sá djöfulinn þrisvar
📅 24.11.2026 👁️ 1
Páfinn sá djöfulinn þrisvar
Djöfullinn sjálfur birtist Frans páfa þrisvar og hlið helvítis einu sinni. Þetta kemur fram í dagbókarbrotum páfans heitins sem birt eru í nýrri bók s...
More than 800 migrants arrive in south Tenerife and El Hierro in one day
📅 24.11.2026 👁️ 0
More than 800 migrants arrive in south Tenerife and El Hierro in one day
A total of 815 migrants arrived in the Canary Islands yesterday, Monday 23rd November, following the rescue of eight boats off the coasts of Tenerife ...
Hundruð danskra skóla fengu sprengju­hótanir - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 0
Hundruð danskra skóla fengu sprengju­hótanir - Vísir
Í umfjöllun danska ríkisútvarpsins segir að lögregla rannsaki nú málið. Ekki sé ljóst hver standi að baki þeim á þessum tímapunkti en lögregla hafi ko...
Slökktu eld í þremur vinnu­skúrum í Hafnar­firði - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 1
Slökktu eld í þremur vinnu­skúrum í Hafnar­firði - Vísir
Skúrarnir voru inni á lokuðu vinnusvæði og því þurfti fyrst að komast inn. Iðnaðarsvæðið er hinum megin við álverið við Reykjanesbrautina. Í tilkynnin...
Bréfi Trumps skilað óopnuðu - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 1
Bréfi Trumps skilað óopnuðu - Vísir
Trump er sagður áfjáður í að framkvæma mikið afrek á alþjóðasviðinu áður en hann lætur af embætti eftir tvö ár. Samkvæmt heimildum Wall Street Journal...
First Children's Booker prize reveals shortlist ' full of surprises' - and its child judges
📅 24.11.2026 👁️ 0
First Children's Booker prize reveals shortlist ' full of surprises' - and its child judges
The eight books in contention include War by Artemis Fowl author Eoin Colfer and Andrew Donkin.
Lægð á Græn­lands­hafi og hæð yfir Noregi beina suðaustlægri átt til landsins - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 0
Lægð á Græn­lands­hafi og hæð yfir Noregi beina suðaustlægri átt til landsins - Vísir
Þar segir að hiti sé fjögur til níu stig. Í dag dragi smám saman úr vindi og eftir hádegi kólni vestanlands með dálitlum slydduéljum. Á morgun nálgist...
Three injured in bus and car crash on TF-1 in South Tenerife
📅 24.11.2026 👁️ 0
Three injured in bus and car crash on TF-1 in South Tenerife
Three people were injured yesterday afternoon (Monday) following a collision between a bus and a car on the TF-1 motorway in Arona, south Tenerife.The...
Prófanir á rýmingarflautum í Grindavík og Svartsengi
📅 24.11.2026 👁️ 2
Prófanir á rýmingarflautum í Grindavík og Svartsengi
Á morgun, miðvikudaginn 25. nóvember, verða prófanir á rýmingarflautum í Grindavík og í Svartsengi klukkan 11:00.Lögreglan á Suðurnesjum segir í færsl...
Hefur ekki kysst eiginmanninn í mörg ár – Ástæðan er heldur óvenjuleg
📅 24.11.2026 👁️ 1
Hefur ekki kysst eiginmanninn í mörg ár – Ástæðan er heldur óvenjuleg
Kona sem hefur verið í sambandi með eiginmanni sínum í 20 ár segist ekki hafa kysst hann í mörg ár. Ástæðan er svo slæm andfýla eiginmannsins að tilhu...
Framkvæmdastjóri ELKO: „Þangað til reglugerðin tekur gildi er mitt ráð til neytenda einfalt“
📅 24.11.2026 👁️ 2
Framkvæmdastjóri ELKO: „Þangað til reglugerðin tekur gildi er mitt ráð til neytenda einfalt“
Óttar Örn Sigurbergsson, framkvæmdastjóri ELKO, segir mikilvægt að neytendur þekki réttindi sín og að verslanir geri þeim auðvelt að nýta þau.Hann skr...
Hvers vegna vökum við of lengi þótt við séum dauð­þreytt? - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 2
Hvers vegna vökum við of lengi þótt við séum dauð­þreytt? - Vísir
Við fylgjum planinu eftir. Ákveðum þó að horfa á einn þátt eða skrolla aðeins í símanum áður en við lokum augunum og… Búmm! Við lítum á klukkuna og al...
Fór að ráðum barnanna og gaf jólasöguna út - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 1
Fór að ráðum barnanna og gaf jólasöguna út - Vísir
Lazar er 26 ára guðfræðinemi sem hefur starfað í grunnskóla og frístund frá því hann var nítján ára gamall. Í vinnunni sér hann meðal annars um sögukl...
Yfir­vofandi heims­endir á­fall í barn­æsku - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 1
Yfir­vofandi heims­endir á­fall í barn­æsku - Vísir
Emil Alfreð er fæddur árið 1990 og alinn upp í Hafnarfirðinum. Hann er einstaklega yfirvegaður, slakur og léttur, hláturmildur og segist aldrei hafa t...
Aðalmeðferð í máli Semu Erlu hefst í dag
📅 24.11.2026 👁️ 2
Aðalmeðferð í máli Semu Erlu hefst í dag
Aðalmeðferð í máli Semu Erlu Serdaroglu, stofnanda Solaris-hjálparsamtakanna, hefst í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur. Hún var ákærð fyrir brot á lögum u...
Hvasst fram eftir morgni
📅 24.11.2026 👁️ 1
Hvasst fram eftir morgni
Búast má við allhvössum vindi framan af degi. Víða verða skúrir og austantil verður samfelld rigning. Það dregur smám saman úr vindi og upp úr hádegi ...
Aug­lýsa eftir öku­manni sem ók á stúlku á hjóli - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 2
Aug­lýsa eftir öku­manni sem ók á stúlku á hjóli - Vísir
Í tilkynningu embættisins á Facebook segir að klukkan 14 þann 05.11.2026 hafi verið ekið á stúlku á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi, við Vanabyggð, á A...
TUESDAY WEATHER: Temperatures Drop as Stronger Winds Sweep Across the Canary Islands
📅 24.11.2026 👁️ 1
TUESDAY WEATHER: Temperatures Drop as Stronger Winds Sweep Across the Canary Islands
The Canary Islands are experiencing a change in the weather today (Tuesday, 24th November), with temperatures beginning to fall, strengthening northea...
Björn Ingi segir þögn um brottvísanir – „Af því að Samfylkingin er í ríkisstjórn“
📅 24.11.2026 👁️ 1
Björn Ingi segir þögn um brottvísanir – „Af því að Samfylkingin er í ríkisstjórn“
Björn Ingi Hrafnsson segir að nú sé verið að brottvísa „fullt af fólki“ og að „það bara heyrist ekki neitt“, af því að Samfylkingin sé í ríkisstjórn. ...
Krefjast ákæru eða frekari rannsóknar vegna andláts Lúðvíks
📅 24.11.2026 👁️ 1
Krefjast ákæru eða frekari rannsóknar vegna andláts Lúðvíks
Börn Lúðvíks Péturssonar, sem lést við vinnu í Grindavík í janúar 2024, eru ósátt við ákvörðun héraðssaksóknara að fella niður mál vegna andláts föður...
Trump og Rutte funda á Flórída
📅 24.11.2026 👁️ 2
Trump og Rutte funda á Flórída
Donald Trump Bandaríkjaforseti og Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, hittast á fundi í Palm Beach á Flórída á morgun, miðvikudag. R...
Veittust að feðgum með gler­flösku að vopni - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 1
Veittust að feðgum með gler­flösku að vopni - Vísir
Málið er rannsakað sem stórfelld líkamsárás þar sem einn sakborninga er grunaður um að hafa notað glerflösku til að slá í höfuð brotaþola. Þetta staðf...
Höfðar mál vegna dreifingu nektarmynda - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 2
Höfðar mál vegna dreifingu nektarmynda - Vísir
Pelicot, sem er 73 ára, varð alþjóðlegt tákn í baráttunni gegn kynferðisofbeldi árið 2024 eftir að upp komst um það að  fyrrverandi eiginmaður hennar ...
State failing to keep public safe, warns victims' commissioner
📅 24.11.2026 👁️ 4
State failing to keep public safe, warns victims' commissioner
Claire Waxman tells the BBC Andy Burnham needs to put justice in his 10-year plan for government.
Afghan women with UK university offers 'heartbroken' after visas stopped
📅 24.11.2026 👁️ 4
Afghan women with UK university offers 'heartbroken' after visas stopped
In March this year, the UK Home Office announced an "emergency visa brake" on study visas for applicants from Afghanistan.
Rekstaraðili tjaldsvæðis Egilsstaða hefur greitt tæpar 100 milljónir í arð
📅 24.11.2026 👁️ 4
Rekstaraðili tjaldsvæðis Egilsstaða hefur greitt tæpar 100 milljónir í arð
Fyrirtækið sem rekur tjaldstæðið á Egilsstöðum hefur malað gull síðustu ár. Á árunum 2023 til 2025 hagnaðist fyrirtækið um rúmlega 116 milljónir og gr...
Rekstraraðili tjaldsvæðis Egilsstaða hefur greitt tæpar 100 milljónir í arð

Lýtalæknir dæmdur til dauða fyrir morð á lögmanni – Líkið hefur aldrei fundist
📅 24.11.2026 👁️ 3
Lýtalæknir dæmdur til dauða fyrir morð á lögmanni – Líkið hefur aldrei fundist
Bandarískur lýtalæknir hefur verið dæmdur til dauða fyrir að myrða lögmann sem kom að dómsmáli gegn honum. Morðið var framið á lögmannsstofu í Flórída...
Auglýsa eftir ökumanni sem ók á stúlku á rafmagnshlaupahjóli
📅 24.11.2026 👁️ 4
Auglýsa eftir ökumanni sem ók á stúlku á rafmagnshlaupahjóli
Lögreglan á Norðurlandi eystra auglýsir eftir ökumanni eða vitnum að atviki þegar ekið var á stúlku á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi, við Vanabyggð, á...
Ísland viðurkennir dóminn gegn Mjanmar
📅 24.11.2026 👁️ 4
Ísland viðurkennir dóminn gegn Mjanmar
Ísland, auk 13 annarra landa, hefur viðurkennt dóm Alþjóðadómstólsins í Haag um að þjóðarmorð hafi verið framið í Mjanmar.Utanríkisráðherrar Ástralíu,...
ESB undirbýr frekari refsiaðgerðir gegn Rússum
📅 24.11.2026 👁️ 4
ESB undirbýr frekari refsiaðgerðir gegn Rússum
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, kynnti í gær tillögur að nýjum refsiaðgerðapakka gegn Rússum. Refsiaðgerðapakkinn ...
Nato chief vows defence against space threat after Russian nuclear satellite reports
📅 24.11.2026 👁️ 4
Nato chief vows defence against space threat after Russian nuclear satellite reports
German media said Russia planned to launch a satellite with a nuclear warhead into space in coming weeks.
Fyrirskipar að flýtt verði fyrir aftökum fanga
📅 24.11.2026 👁️ 5
Fyrirskipar að flýtt verði fyrir aftökum fanga
Donald Trump Bandaríkjaforseti ætlar að fyrirskipa dómsmálaráðherra Bandaríkjanna að flýta fyrir aftökum fanga sem hafa hlotið dauðadóma og eru í alrí...
Fyrirskipar að flýtt verði fyrir aftöku fanga
📅 24.11.2026 👁️ 1
Fyrirskipar að flýtt verði fyrir aftöku fanga
Donald Trump Bandaríkjaforseti ætlar að fyrirskipa dómsmálaráðherra Bandaríkjanna að flýta fyrir aftöku fanga sem hafa hlotið dauðadóma og eru í alrík...
How Nvidia is reacting to Jensen Huang's return as CEO
📅 24.11.2026 👁️ 6
How Nvidia is reacting to Jensen Huang's return as CEO
BBC's Lily Jamali reports from Nvidia's headquarters, where she gauges the reaction to Huang's return after Trump says he brokered a deal.
Cheers and applause as Jensen Huang returns to Nvidia office

Timms report to suggest faster Pip payments for some disabled people
📅 24.11.2026 👁️ 5
Timms report to suggest faster Pip payments for some disabled people
The Timms review will recommend those with severe conditions will not need to be reassessed to receive Pip.
Analysis: Can Andy Burnham turn volume down on UK rejoining EU debate?
📅 24.11.2026 👁️ 5
Analysis: Can Andy Burnham turn volume down on UK rejoining EU debate?
The BBC's Chris Mason analyses what the EU conversation means for Labour and the PM.
Eldur í vinnuskúr á byggingarsvæði
📅 24.11.2026 👁️ 6
Eldur í vinnuskúr á byggingarsvæði
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fékk tilkynningu um eld í vinnuskúrum á byggingarsvæði í Hafnarfirði kl. 23:48 í gærkvöld.Guðjón Ingason, varðstjóri h...
BBC exposes Whitby dog breeder selling sick puppies for £2k each
📅 24.11.2026 👁️ 5
BBC exposes Whitby dog breeder selling sick puppies for £2k each
The breeder's rating was downgraded but he continued to advertise as five-star, investigation finds.
UK weather: Cold spell continues with risk of hill snow, ice and heavy rain
📅 24.11.2026 👁️ 5
UK weather: Cold spell continues with risk of hill snow, ice and heavy rain
Colder weather continues for much of the UK with some ice and hill snow but milder and wetter in the south and west, as Simon King explains
Why I don't always tell potential employers I'm dyslexic
📅 24.11.2026 👁️ 5
Why I don't always tell potential employers I'm dyslexic
Many dyslexic people say it harms their confidence, a report about experiences in the workplace suggests.
Það sem allir ættu að vita um hita­kerfið hjá sér - Vísir
📅 23.11.2026 👁️ 5
Það sem allir ættu að vita um hita­kerfið hjá sér - Vísir
„Aðalatriðið er kannski, og ég vil leggja alveg sérstaka áherslu á þetta, að vita hvar stofnlokar eru inn í húsið ef það fer eitthvað að leka. Ég held...
Þetta ættu allir að vita um hita­kerfið hjá sér - Vísir

„Þeir sem ætla að nýta sér gervigreind þurfa að skilja hætturnar“
📅 23.11.2026 👁️ 5
„Þeir sem ætla að nýta sér gervigreind þurfa að skilja hætturnar“
„Þeir sem ætla að nýta sér gervigreind þurfa að skilja hætturnar,“ segir eðlisfræðingurinn Halldór Fannar Guðjónsson sem er yfirmaður hjá tæknifyrirtæ...
Söngleikur um George Floyd hneykslar - „Aldrei á að dæma sýningu eftir titlinum“
📅 23.11.2026 👁️ 3
Söngleikur um George Floyd hneykslar - „Aldrei á að dæma sýningu eftir titlinum“
Söngleikur um morðið á George Floyd hefur fengið dræmar viðtökur og svo virðist sem hann muni aldrei verða sýndur. Fyrirtækið sem ætlaði að sýna verki...