Þrjú ungmenni eru með stöðu sakbornings vegna alvarlegrar líkamsárásar á feðga í Mjóddinni í Breiðholti að kvöldi 26. september. Eitt þeirra er grunað um að hafa slegið brotaþola í höfuðið með glerflösku.Vísir greinir frá þessu í morgun og hefur undir höndum myndskeið sem sýnir feðgana liggja óvíga á götunni á meðan ungur maður, sem virðist hafa tekið þátt í árásinni, hæðist að þeim.
Feðgar lágu óvígir eftir árás í Mjóddinni – „Hann er sofandi bró“