Þetta er 75. keppnin undir nafninu Miss Universe og er hún haldin í José Miguel Agrelot-íþróttahöllinni í San Juan. Þjóðbúningasýningin var haldin í gær, undankeppnin er í kvöld og krýning fer fram á þriðjudagskvöld. Fátima Bosch frá Mexíkó, sem vann í fyrra, krýnir eftirmann sinn.
Sigga Ósk, sem heitir fullu nafni Sigríður Ósk Hrafnkelsdóttir, er 27 ára og úr Garðabæ. Hún sigraði í Ungfrú Ísland í Gamla bíó 22. apríl og tekur við titlinum af Guðrúnu Evu Hauksdóttur. Aníta Mist Davíðsdóttir varð í öðru sæti.
Hún er söngvari og lagahöfundur og hefur tvisvar keppt í Söngvakeppninni, árin 2023 og 2024, og komst í úrslit í bæði skiptin. Hún er með BEd-gráðu frá Háskóla Íslands og talar sænsku reiprennandi. Til að komast í Ungfrú Ísland vann hún fyrst titilinn Ungfrú Hafravatn.
Að neðan má heyra viðtal við Siggu Ósk í Bítinu.