„Önnur lítil blessun verður hluti af fjölskyldunni í maí og við gætum ekki verið spenntari,“ skrifa hjónin í sameiginlegri samfélagsmiðlafærslu.
Katrín Tanja og Laich hafa verið í sambandi síðan 2021 og giftu sig í ágúst. Í maí á síðasta ári greindu þau svo frá því að þau ættu von á barni sem fæddist í október 2025 og fékk nafnið Emberly Heba Laich.
Katrín Tanja varð tvívegis heimsmeistari í CrossFit en í desember 2025 tilkynnti hún að hún væri hætt að keppa.
Laich er kanadískur. Hann spilaði í NHL-deildinni frá 2004 til 2018, lengst af með Washington Capitals. Jafnframt spilaði hann með kanadíska landsliðinu.