Þrjú ár eru frá hryðjuverkaárás Hamas-samtakanna á Ísrael sem var kveikjan að stríðinu á Gaza. Þess er minnst víða í Ísrael í dag. Vopnahlé hefur verið í gildi á Gaza í tæpt ár en þrátt fyrir það eru gerðar árásir þar reglulega.
Í árás Hamas voru um 1.200 manns drepnir og 250 til viðbótar teknir í gíslingu. Mestur var skaðinn á Nova-tónlistarhátíðinni þar sem 378 voru drepnir, þar af fjöldi ungs fólks, og 44 gíslar teknir. Árásin þótti sérstaklega grimmileg og miskunnarlaus.
Ísraelsmenn brugðust við með fordæmalausum árásum á Gaza. Í þeim hafa yfir 74.200 manns verið drepnir samkvæmt heilbrigðisráðuneyti Hamas-samtakanna. Sameinuðu þjóðirnar telja tölurnar áreiðanlegar. Íbúar á Gaza segja héraðið nánast óbyggilegt eftir árásirnar. Um 80% íbúa hafa misst heimili sín.
Ísraelsmenn minnast árásar Hamas víða um land. Ólíkt fyrri skiptum sem hennar hefur verið minnst hefur öllum gíslum verið sleppt sem lifðu af. Meðal annars hafa aðstandendur þeirra sem voru drepnir safnast saman á þeim stöðum þar sem árásin var gerð, til að mynda í Kfar Aza þar sem 86 voru drepnir. „Það sem gerðist var ekki mannlegt,“ sagði Ahuva Yavin Mayze sem missti Adi, 21 árs dóttur sína, í árásinni. „Margir foreldrar sem vita hvað varð um ástvini þeirra jafna sig aldrei.“
Á Gaza hafa menn hins vegar minni tök á viðhöfn til að minnast tímamótanna, enda hefur stærstur hluti þeirra misst heimili sín og býr í tjaldbúðum. Flestar borgir hafa nánast verið lagðar í rúst. Ísraelskar herþotur flugu yfir Gaza í nótt sem minnti íbúa enn og aftur á þá ógn sem stafar af þeim. „Við búum í gröfum þó að við séum enn á lífi,“ segir Atta Saeed Hassan Shweikh sem bjó í Al Shujjayia en hefur misst heimili sitt, tvö börn og systur í stríðinu. Hann segir líf Gazabúa hafa verið lagt í rúst.
Vopnahlé hefur verið í gildi á Gaza í um það bil eitt ár. Þrátt fyrir það hafa Ísraelsmenn gert reglulega árásir þó að umfang þeirra sé ekki nálægt því sem það var í upphafi stríðsins. Til dæmis voru þrír drepnir í árásum í nótt. Takmörkunum Ísraelsmanna á neyðaraðstoð inn á Gaza, sem voru lengi strangar, hefur verið aflétt að einhverju leyti en það sem kemur inn dugar þó hvergi fyrir þá sem þar búa.
Hamas-samtökin hafa látið verulega á sjá á þessum þremur árum þar sem fjöldi leiðtoga þeirra hefur fallið. Í orði eru þeir þó enn herskáir og lýstu því yfir í morgun að 7. október hefði verið dýrðardagur í sögu þjóðar þeirra. Goðsögn um ósigrandi her Ísraelsmanna hefði verið grafin.