Varðskipið Þór, sem hefur síðustu daga haldið sig í nálægð við Bandero, skip hvalverndunarsinnans Paul Watsons, er komið til annarra eftirlitsstarfa að sögn Ásgeirs Erlendssonar, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar.
Bandero er búið að vera í rúma viku innan íslenskrar efnahagslögsögu en hefur ekki komist í tæri við hvalveiðiskipin. Allan þennan tíma hefur Þór haldið sig í nálægð við Bandero. Um borð í Þór voru fimm sérsveitarmenn og fjórir séraðgerðarmenn Landhelgisgæslunnar auk áhafnar.
„Við erum með gott auga á Bandero og við vitum nákvæmlega hvar skipið er statt og erum tilbúnir að bregðast við ef á þarf að halda,“ segir Ásgeir við mbl.is.
Flutti 35 tonn af ferskvatni til Flateyjar
Ásgeir segir að komið hafi beiðni frá Flatey vegna vatnsskorts í eynni um að flytja ferskvatn á staðinn og flutti varðskipið Þór 35 tonn af vatni út í eyna í morgun.
„Það eru fjölmörg verkefni sem snúa að löggæslu, fiskveiðieftirliti og tilfallandi verkefnum sem koma upp og flutningurinn á vatninu var eitt þeirra. Það þýðir samt ekki að vel sé fylgst með Bandero og við munum stíga inn í ef á þarf að halda,“ segir hann.