Thomas Möller skrifar: Hugleiðingar frá Hiroshima - DV

Thomas Möller skrifar: Hugleiðingar frá Hiroshima - DV

Thomas Möller skrifar: Hugleiðingar frá Hiroshima - DV

Í ferðum mínum sem leiðsögumaður í Japan verð ég vitni að því hvað vekur hvað mesta athygli gestanna frá Íslandi.

Vissulega hrífst fólkið af Tókýó, Osaka og Kýótó en einnig vekur matarmenning og trúariðkun Japana mikla undrun auk náttúrufegurðar landsins.

Margir undrast hvað samgöngukerfin eru snyrtileg og afkastamikil en farþegar í lestum Tókýó borgar eru um 40 milljónir á dag og farþegafjöldi í hraðlestarkerfi Japans nálgast um 400 milljónir á ári. Þar af leiðandi gengur umferð einkabíla vel í flestum borgum.

Eitt af því sem vekur athygli ferðamanns frá Íslandi er þrifnaður á lestarstöðvum, gangstéttum, meðfram vegum og á almannafæri. Nánast hvergi sést drasl þótt hvergi sjáist ruslafötur. Japanir taka ruslið einfaldlega með sér heim og flokka það þar. Skólabörn sjá um dagleg þrif í skólum enda ganga allir þar um á inniskóm.

Kurteisi Japana er mjög áberandi og hef ég aldrei séð þá ganga yfir götu á rauðu ljósi. Þeir bera augljósa virðingu fyrir umhverfinu, gestum sínum og náttúrunni.

Af þessari upptalningu sést að það er ýmislegt sem við Íslendingar getum lært af Japönum.

En það sem er áhrifaríkast í Japansheímsókn er að upplifa Hiroshima. Skoðum það nánar.

6. ágúst 1945

Þennan dag um klukkan 8:15 um morguninn sprakk kjarnorkusprengja í um 600 metra hæð yfir miðborg Hiroshima. Í borginni voru aðallega konur, börn og eldra fólk enda voru flestir karlmenn að sinna herskyldu í stríðinu.

Unglingar og eldri borgarar voru flestir að ryðja götur og hús til að tryggja að eldar breiðist síður út í næstu sprengjuárás. En enginn í borginni bjóst við að upplifa þau ósköp og eyðileggingu sem sprengjan olli þennan dag sem nú er talinn einn sá merkilegasti í sögu mannkyns.

Sprengjan hafði verið í þróun í nokkur ár en Bandaríkjamenn voru búnir að finna út hvar áhrif hennar yrðu hvað mest og völdu Hiroshima og Nagasaki sem skotmörk.

Um 240 þúsund manns fórust við sprenginguna í báðum borgunum auk um 200 þúsund annarra sem dóu vegna afleiðinga geislunarinnar. Til samanburðar þá búa um 240 þúsund manns höfuðborgarsvæðinu okkar í dag.

Í Hiroshima er Friðarsafnið með tilheyrandi Friðargarði þar sem gestir fá upplýsingar og sjá ljósmyndir og kvikmyndir sem sýna skelfilegar afleiðingar sprengjunnar. Enginn fer ósnortinn frá Hiroshima og margir bresta í grát.

Var þetta nauðsynlegt?

Hluti af Friðarsafninu samanstendur af skjölum og skýrslum herforingja Bandaríkjahers, tillögum þeirra til forsetans um val á borgum til að sprengja og mat á afleiðingum þeirra. Herforingjarnir sannfærðu forsetann um að sprengjurnar myndu leiða til uppgjafar Japana og spara líf hundruð þúsunda hermanna í langvarandi stríði við þá.

Eitt helsta deiluefni sagnfræðinga í dag er spurningin hvort það hafi verið nauðsynlegt að beita kjarnorkusprengjum til að knýja Japani til uppgjafar.

Sumir fullyrða að það hafi ekki þurft að beita sprengjunum og að Japanir hefðu gefist upp innan nokkurra vikna vegna veikrar stöðu þeirra á vígvellinum. Eisenhower sem þá var herforingi sagði að Japanir væru við að gefast upp. Bent hefur verið á að Rússar hafi verið búnir að ná stóru landsvæði af Japönum, þar á meðal Suður Sakhalin og Kurileyju sem enn í dag eru hlutar af Rússlandi.

Þannig hefur verið bent á að með sprengjunum hafi Bandaríkjamenn í raun verið að senda skilaboð til Rússa um að hætta frekari landvinningum í Asíu.

Ef það er rétt má segja að ákvörðunin um að varpa kjarnorkusprengjum á Hiroshima og Nagasaki sé stríðsglæpur. Eftir heimsóknir mínar þangað er ég sannfærður um að það sé raunin.

Stríðsmenn hafa alltaf fylgt mannkyninu

Heimsstyrjaldirnar fyrri og seinni eru mestu hamfarir sem hafa átt sér stað frá upphafi mannkyns en talið er að um 100 milljónir manna hafi farist í þeim.

Keisarar og herforingjar í Þýskalandi og Austurríki eru taldir bera mesta ábyrgð á því að fyrri heimsstyrjöldin hófst. Hitler og hans herforingjar komu seinni heimsstyrjöldinni af stað.

Í báðum þessum styrjöldum var kveikjan að ófriði árátta þjóðarleiðtoga að stækka landsvæði sitt. Áróðursmeistarar sameinuðu þjóðir gegn ímynduðum óvini sem var sagður ógna tilveru fólks og væri sökudólgur ófara hjá þjóðinni. Einnig hefur verið nefnd hin brýna þörf herforingja að fá „sitt stríð“ og prófa stríðstólin sem hafa verið smíðuð.

Þessi ófriðarárátta hefur fylgt mannkyninu frá örófi alda.

Þjóðflokkar frummannsins vörðu sig gegn óvinum og vildu stækka sitt yfirráðasvæði. Þeir bentu oft á hættur sem stöfuðu af fólki sem væri „öðruvísi“ eða „óæðra“ þeim sjálfum og ógnaði tilveru síns hóps.

Sturlungaöldin á Íslandi er dæmi um valdagræðgi örfárra herskárra höfðingja sem vildu stækka sitt umráðasvæði með vopnavaldi eftir um 350 ára friðartíma frá landnámi.

Í dag verðum við vitni að sömu ófriðaráráttu hjá Pútín sem vill stækka sitt land með innrás í Úkraínu og gera það stórt … aftur. Hann segir að Úkraína með aðstoð NATO ríkja ógni tilveru Rússlands.

Trump hefur beitt vopnum af miklum þunga og hefur hótað að leggja heilu siðmenningarnar í rúst, samanber átökin í Íran. Hann hefur talað um innlimun Grænlands, Venesúela og Kúbu í Bandaríkin.

Öll þessi átök og hótanir er hægt að ræða og leysa við samningaborðið en stríðsþörfin verður oft uppi á borðinu hjá þessum mönnum.

Í dag eru um 12200 kjarnorkuvopn til í heiminum sem duga til að eyða honum um hundrað sinnum. Þetta er skelfileg tilhugsun þegar haft er í huga að Jörðin okkar er líklega eina plánetan í alheiminum sem líf hefur orðið til og getur þrifist. Maðurinn sem hefur þróast í um 3 milljónir ára getur eytt sjálfum sér á einni mínútu.

Eða eins og David Attenborough orðar það: „Við, mannkynið höfum vald til að búa til nýja heima, en einnig valdið til eyða þeim“.

Friður í Evrópu í 80 ár

Fullyrt hefur verið að frá upphafi sögu mannsins hafi stríðsátök átt sér stað í um 90% af tímanum. Því má segja að stríð sé hið venjulega ástand hjá mannskepnunni.

Flest stríðsátök síðustu alda hafa átt sér stað í Evrópu. Þar til seinni heimsstyrjöldinni lauk hafði verið ófriður í Evrópu nánast óslitið í um 3000 ár með undantekningu sem hefur verið nefnd Rómarfriðurinn („Pax Romana“) sem stóð yfir í um 200 ár um Krists burð. Áðurnefndur friðartími á Íslandi eftir landnám er mikið afrek sem rekja má til stofnunar Alþingis árið 930 sem var mikilvægur vettvangur sátta og samninga.

Friðartímabilið í Evrópu („Pax Europea“) hefur nú varað í 81 ár innan 30 landa Evrópska efnahagssvæðisins. Evrópusambandið fékk friðarverðlaun Nóbels árið 2012 fyrir að hafa stuðlað að og tryggt frið meðal sambandsríkja, auk þess að stuðla að friði um allan heim.

Því má með sanni segja að ESB sé fyrst og fremst friðarbandalag sem hefur tryggt langþráðan frið með dyggri aðstoð NATO.

Fram undan er þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna við ESB um fulla aðild Íslands að þessari samvinnu- og friðarhreyfingu sem hefur tryggt frið meðal sinna ríkja frá stofnun hennar.

Það er ekki valkostur fyrir okkur Íslendinga að vera hlutlausir í ótryggum heimi þar sem stórar valdablokkir berjast um völd og lönd. Það hriktir í stoðum NATO og við verðum að halla okkur að vinaþjóðum og sækja stuðning frá þeim.

Ljóð frá Hiroshima

Ég læt þetta ljóð frá Ebbu Margréti Magnúsdóttur fylgja með þessum pistli, með góðfúslegu leyfi frá Ebbu, en hún var einn ferðalanganna í síðustu ferð minni til Japan. Ljóðið er ort undir áhrifum hæku, bragarháttar Japana:

Heimsókn til Hiroshima
Hryggir mig
Líka þig

Tár um erfiða tíma
Tala við mig
Í Hiroshima

Brennd börnin
og blindir menn
Hver var þeirra vörnin.

Geislunaráhrifin eru grimm
Þau ég finn
Á göngu um Hiroshima

Þú hringir himneskri bjöllu
Hún boðar frið
Frá Hiroshima

Þegar blessuð Japönsku börnin
Leika sér hér
Falleg er líka tjörnin

Í Friðargarðinum gosbrunnur gefur
góða von um frið
Í heimi sem stundum sefur

Því þar stjórna víða vondir menn
Vona að Guð gefi þeim grið
Þeir heimsæki Hiroshima
Í tíma.

Því
Við biðjum um frið

Aldrei aftur
Hiroshima

#frá #hugleiðingar #möller #skrifar #thomas


Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/eyjan/2026/5/20/thomas-moller-skrifar-hugleidingar-fra-hiroshima/

📰 Aðrar fréttir

Sam­þykktu að slíta kjara­samningum - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Sam­þykktu að slíta kjara­samningum - Vísir
„Ég var með fund í stjórn VR þar sem var einróma samþykkt að slíta kjarasamningum á morgun,“ segir Halla Gunnarsdóttir formaður VR í samtali við Vísi....
Niður­rif hafið á Laugasól - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Niður­rif hafið á Laugasól - Vísir
Samkvæmt svörum frá Reykjavíkurborg er unnið að gerð deiliskipulags á grundvelli hönnunarforsendna fyrir nýjan leikskóla. Ekki liggi þó enn fyrir enda...
Drap Christian Zedig með einu hnefahöggi – dæmdur í aðeins eins árs fangelsi
📅 07.10.2026 👁️ 0
Drap Christian Zedig með einu hnefahöggi – dæmdur í aðeins eins árs fangelsi
Nkumba Ludovic Tshiembe, 31 árs, hefur verið dæmdur í eins árs fangelsi fyrir árásina á sænska lögreglumanninn og tveggja barna föðurinn Christian Zed...
Ummæli Trump um árásir á tvær bandarískar borgir sögð landráð - Hvíta húsið segir viðbrögðin bjánaleg
📅 07.10.2026 👁️ 0
Ummæli Trump um árásir á tvær bandarískar borgir sögð landráð - Hvíta húsið segir viðbrögðin bjánaleg
Ummæli Donald Trump Bandaríkjaforseta um árásir Írans á tvær borgir í Kaliforníu hafa vakið hörð viðbrögð og þá sérstaklega hjá pólitískum andstæðingu...
Christa Pike 'angry and confused' after failed execution, lawyers say
📅 07.10.2026 👁️ 0
Christa Pike 'angry and confused' after failed execution, lawyers say
Lawyers say the convicted killer was surprised to have survived and remained "shackled" to her hospital bed.
Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ - Vísir
„Þá mátt ekki sýna forsetaembættinu vanvirðingu,“ sagði Trump við blaðamenn í Hvíta húsinu í dag. Forsetinn var spurður út í ummæli hans um að ef Demó...
Gervigreind mun bæði útrýma og skapa milljónir starfa
📅 07.10.2026 👁️ 0
Gervigreind mun bæði útrýma og skapa milljónir starfa
Erik Brynjolfsson er einn kunnasti hagfræðingur Bandaríkjanna þegar kemur að mati á efnahags- og félagslegum áhrifum gervigreindar á vinnumarkað. Hann...
Fangelsi undir Vatna­jökli - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Fangelsi undir Vatna­jökli - Vísir
Nýi leikvangurinn var gefinn út í gær, þriðjudag, samhliða uppfærslu á leiknum þar sem nýtt efni var kynnt til leiks. Overwatch er fjölspilunarleikur ...
„Von­brigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
„Von­brigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ - Vísir
„Það eru auðvitað vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk,“ segir Jens-Frederik Nielsen, formaður grænlensku landstjórnarinnar, í samta...
Hvað eiga danskir tómatar og íslensk svefntækni sameiginlegt?
📅 07.10.2026 👁️ 1
Hvað eiga danskir tómatar og íslensk svefntækni sameiginlegt?
Þróun gervigreindarlíkana fleygir fram á ógnarhraða. Árið 2023 töldu tæplega 3.000 sérfræðingar að það gæti tekið allt að 27 ár fyrir gervigreind að l...
Ógnarástand um borð í flugi Icelandair þegar æði rann á íslenskan taugasálfræðing
📅 07.10.2026 👁️ 1
Ógnarástand um borð í flugi Icelandair þegar æði rann á íslenskan taugasálfræðing
Maður sem ákærður hefur verið fyrir líkamsárás, hótun og brot gegn lögum um loftferðir um borð í flugi Icelandair á leið frá Baltimore í Bandaríkjunum...
Ljósa­staurar bilaðir víða í Reykja­vík - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Ljósa­staurar bilaðir víða í Reykja­vík - Vísir
Meðal annars hafa borist ábendingar um að slökkt sé á ljósastaurum á Sæbraut og í Breiðholti. Frá Vegagerðinni, sem heldur utan um ljósastaura við sto...
Kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á Hringbraut
📅 07.10.2026 👁️ 1
Kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á Hringbraut
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli við JL-húsið við enda Hringbrautar. Talsverður eldur kom upp og mikill reykur myndaðist í framhaldinu. Unnið er a...
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi
📅 07.10.2026 👁️ 0
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi í JL-húsinu við enda Hringbrautar. Talsverður eldur kom upp og mikill reykur myndaðist í framhaldinu...
Ræst út vegna logandi rafmagnshlaupahjóls - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Ræst út vegna logandi rafmagnshlaupahjóls - Vísir
Að sögn varðstjóra slökkviliðs gekk vel að slökkva eldinn og hann hefur ekki breiðst út. Nú stendur reykræsting yfir. Slökkviliðið hafi verið ræst út ...
Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls - Vísir
Að sögn varðstjóra slökkviliðs gekk vel að slökkva eldinn og hann hefur ekki breiðst út. Nú stendur reykræsting yfir. Slökkviliðið hafi verið ræst út ...
Bilun í ljósastaurum víða um borgina
📅 07.10.2026 👁️ 1
Bilun í ljósastaurum víða um borgina
Bilun er í ljósastaurum víða um borgina. Vegagerðin segir að tilkynnt hafi verið um bilanir á Sæbraut og Miklubraut og að unnið sé að viðgerðum. Vegag...
Israelis mourn 7 October attack victims as Gaza lies in ruins three years on
📅 07.10.2026 👁️ 1
Israelis mourn 7 October attack victims as Gaza lies in ruins three years on
Memorial events have taken place in Israel on the third anniversary of the Hamas-led attack that sparked the devastating Gaza war.
Engin brottfararstöð í desember
📅 07.10.2026 👁️ 1
Engin brottfararstöð í desember
Ljóst er að opnun brottfararstöðvar fyrir útlendinga í Reykjanesbæ tefst um að minnsta kosti nokkra mánuði. Hana átti að opna eftir minna en tvo mánuð...
„Það er smá töffari í mér“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
„Það er smá töffari í mér“ - Vísir
Sigríður Margrét er fimmtíu ára gömul og sækir tískuinnblásturinn meðal annars til kvenna í kringum sig. Sömuleiðis er hún dugleg að lesa tískutímarit...
Serbar á Ís­landi mót­mæla: „Það er ósann­gjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Serbar á Ís­landi mót­mæla: „Það er ósann­gjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ - Vísir
„Við söfnuðum yfir 100 undirskriftum og fundum hentugt húsnæði í Reykjavík til að opna kjörstað fyrir komandi kosningar í Serbíu, eins og kosningalög ...
Hannes segir þetta ástæðuna fyrir stuðningi við Hamas – „Hvaða þvæla er þetta eiginlega?“
📅 07.10.2026 👁️ 2
Hannes segir þetta ástæðuna fyrir stuðningi við Hamas – „Hvaða þvæla er þetta eiginlega?“
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, er harðlega gagnrýndur fyrir að segja að Hamas njóti stuðnings á Vesturlöndum þar...
„Þetta minnti okkur á upphaf stríðsins“
📅 07.10.2026 👁️ 2
„Þetta minnti okkur á upphaf stríðsins“
Í dag eru þrjú ár síðan Hamas-samtökin gerðu mannskæðustu hryðjuverkaárás á Ísrael í sögu landsins. Íbúar Gaza vöknuðu við árásir snemma morguns sem m...
Vilja framtíðarsýn í skólamálum og kalla eftir samtali
📅 07.10.2026 👁️ 2
Vilja framtíðarsýn í skólamálum og kalla eftir samtali
Kennarasamband Íslands kynnti í dag tillögur að stefnumótun til framtíðar í menntamálum, Blásum byr í seglin, og þau verkefni sem ráðast þarf í til að...
Loðinn rummungur fer ránshendi um Vesturbæinn
📅 07.10.2026 👁️ 2
Loðinn rummungur fer ránshendi um Vesturbæinn
Kötturinn Dreki fer ránshendi um Vesturbæinn í Reykjavík, tekur ýmislegt ófrjálsri hendi - en sinnir líka hreinsunarstörfum.„Hann er þjófóttur kisi. H...
Fangaði sólar­upp­rás á Mars - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Fangaði sólar­upp­rás á Mars - Vísir
Könnunarfarið Curiosity, sem er statt á yfirborði Mars, fangaði í ágúst sólarupprás á rauðu plánetunni svokölluðu. Það var þegar farið var notað til a...
Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni - Vísir
Högni Alvar Harðarson Önnuson er formaður Orators, félags laganema við Háskóla Íslands, en hann útskýrir í samtali við Vísi að félagið bjóði um þessar...
Fraudster jailed over multi-million pound PPE scam
📅 07.10.2026 👁️ 2
Fraudster jailed over multi-million pound PPE scam
Craig Morris was sentenced to three years and nine months in prison at Northampton Crown Court.
Tug­milljóna gjald­þrot fé­lags fíkniefnasmyglara - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Tug­milljóna gjald­þrot fé­lags fíkniefnasmyglara - Vísir
Í auglýsingu í Lögbirtingablaði dagsins segir að félagið hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta þann 3. júní síðastliðinn og skiptum lokið þann 23. sep...
Fékk nóg eftir aldarfjórðung og vildi ekki leyfa nágrönnunum lengur að keyra yfir lóðina
📅 07.10.2026 👁️ 2
Fékk nóg eftir aldarfjórðung og vildi ekki leyfa nágrönnunum lengur að keyra yfir lóðina
Eigandi lóðar í frístundabyggð í Grímsnes- og Grafningshreppi hafði ekki erindi sem erfiði þegar hann kærði breytingu á deiliskipulag fyrir byggðina s...
Spanish pensioner whose eviction sparked nationwide protests dies, union says
📅 07.10.2026 👁️ 2
Spanish pensioner whose eviction sparked nationwide protests dies, union says
Maricarmen Abascal, 87, was forcibly removed on a stretcher from her apartment of more than 70 years in September.
Telur orð Seðlabankastjóra fullkomlega óábyrg
📅 07.10.2026 👁️ 2
Telur orð Seðlabankastjóra fullkomlega óábyrg
Fyrstu umræðu um áðurnefnd húsaleigulög ríkisstjórnarinnar, sem oft eru kölluð leigubremsa, var fram haldið á Alþingi í dag en stjórnarandstaðan vildi...
Man to face trial for attempted murder of British child in Alps park attack
📅 07.10.2026 👁️ 2
Man to face trial for attempted murder of British child in Alps park attack
Abdalmasih Hanoun, accused of carrying out an attack at a French park in 2023, is set to face trial.
Man charged with 13 attempted murders including British child
📅 07.10.2026 👁️ 2
Man charged with 13 attempted murders including British child
Abdalmasih Hanoun, accused of carrying out an attack at a French park in 2023, is set to face trial.
„Við erum að gefa boltann upp“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
„Við erum að gefa boltann upp“ - Vísir
Magnús Þór var framsögumaður á blaðamannafundi Kennarasambandsins sem fór fram í Réttarholtsskóla í dag. Þar kynnti hann stefnumótun og áherslur samba...
Greipur skemmtir í Sykursalnum
📅 07.10.2026 👁️ 2
Greipur skemmtir í Sykursalnum
Grínistinn Greipur Hjaltason verður með uppistand í Sykursalnum, Grósku, á fimmtudagskvöld og hefst sýningin kl. 21. Yfirskrift uppistandsins er „Grei...
Þétta sam­starfið í út­norðri - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Þétta sam­starfið í út­norðri - Vísir
Þetta kom fram á blaðamannafundi Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra, Jens Frederik Nielsen, formanns grænlensku landsstjórnarinnar, og Beini Joh...
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Kom á óvart að Miðflokkurinn studdi ekki brottfararstöðina
📅 07.10.2026 👁️ 2
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Kom á óvart að Miðflokkurinn studdi ekki brottfararstöðina
Með því að koma ekki upp brottfararstöð fyrir brottvísaða útlendingar hafa Íslendingar í raun ekki staðið við Schengen skuldbindingu í um áratug. Í lj...
Nýsköpunar- og frumkvöðlasetrið Arctell Sandvik opnað
📅 07.10.2026 👁️ 2
Nýsköpunar- og frumkvöðlasetrið Arctell Sandvik opnað
Nýsköpunar- og þekkingarsetrið Arctell Sandvik var formlega opnað í dag. Setrinu er ætlað að vera vettvangur fyrir nýsköpun og frumkvöðlastarf, og er ...
Sólveig greindist með brjóstakrabbamein: „Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast“
📅 07.10.2026 👁️ 3
Sólveig greindist með brjóstakrabbamein: „Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast“
Sólveig Jónsdóttir greindist með brjóstakrabbamein í maí 2026 eftir að hafa fundið fyrirferð í brjóstinu fyrr á árinu. Hún segist hafa upplifað alls k...
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Bókun 35 – Höfum við efni á meiri óvissu og veikari samkeppnisstöðu?
📅 07.10.2026 👁️ 3
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Bókun 35 – Höfum við efni á meiri óvissu og veikari samkeppnisstöðu?
Ísland þarf meiri erlenda fjárfestingu, fleiri alþjóðleg fyrirtæki og fleiri vel launuð þekkingarstörf. Við þurfum að lækka fjármagnskostnað og styrkj...
Pútín skerðir frelsi ungra karlmanna – Talið vera undanfari herkvaðningar
📅 07.10.2026 👁️ 3
Pútín skerðir frelsi ungra karlmanna – Talið vera undanfari herkvaðningar
Rússar óttast aðra stóra herkvaðningu í landinu eftir að Vladímír Pútín forseti skerti frelsi ungra manna fyrir skemmstu. Ungir menn mega nú meðal ann...
Orðið skýrt hvenær ökumenn undir áhrifum lyfseðilsskyldra lyfja mega stjórna ökutæki
📅 07.10.2026 👁️ 3
Orðið skýrt hvenær ökumenn undir áhrifum lyfseðilsskyldra lyfja mega stjórna ökutæki
Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis vegna neyslu lyfja tók gildi í dag.Neysla lyfja ökumanna verður að vera í samræmi við fyrirmæli læknis o...
Telur uppsögn kjarasamninga geta leitt til langrar deilu
📅 07.10.2026 👁️ 3
Telur uppsögn kjarasamninga geta leitt til langrar deilu
Halla Gunnarsdóttir óttast að kjarasamningum verði sagt upp á morgun. Ekkert samtal sé í gangi við Samtök atvinnulífsins. Lögð hafi verið fram lausn f...
Conservatives united behind Kemi Badenoch - but party still needs to win over voters
📅 07.10.2026 👁️ 3
Conservatives united behind Kemi Badenoch - but party still needs to win over voters
Kemi Badenoch has the support of her party but the Tories still trail Labour and Reform in opinion polls.
Rússar segja enga hættu á faraldri – Mongólía eflir landamæraeftirlit
📅 07.10.2026 👁️ 3
Rússar segja enga hættu á faraldri – Mongólía eflir landamæraeftirlit
Rússneska lýðheilsustofnunin, Rospotrebnadzor, segir enga hættu á að faraldur brjótist út í landinu. Þetta eru viðbrögð við fréttum af dauðsfalli 28 á...
„Við erum til­búin að skoða lengingu skóla­ársins“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 3
„Við erum til­búin að skoða lengingu skóla­ársins“ - Vísir
Í vor fór fram töluverð umræða um fjölda skóladaga á Íslandi eftir að Menntamálaráðuneytið birti tilkynningu þar sem fram kom að kennsludagar væru sty...
Árekstur og bílvelta á Vesturlandsvegi
📅 07.10.2026 👁️ 3
Árekstur og bílvelta á Vesturlandsvegi
Árekstur varð á Vesturlandsvegi við Bauhaus á fjórða tímanum í dag. Einn bíll valt út af veginum.Hildur Rún Björnsdóttir, lögreglufulltrúi lögreglustö...
Bein út­sending: Blaða­manna­fundur Krist­rúnar, Beinis og Jens Frederik - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 3
Bein út­sending: Blaða­manna­fundur Krist­rúnar, Beinis og Jens Frederik - Vísir
Hægt verður að fylgjast með blaðamannafundinum í beinu streymi í spilaranum að neðan. Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að ríkisstjórnaroddv...
Rannsókn á leikfangabyssum lokið og ákvörðun um saksókn fram undan
📅 07.10.2026 👁️ 3
Rannsókn á leikfangabyssum lokið og ákvörðun um saksókn fram undan
Rannsókn er lokið vegna gruns um vopnalagabrot um verslunarmannahelgina á Akureyri. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort fimm menn, sem reyndust h...