Þjóðhátíðardagur Bandaríkjanna er í dag og 250 ára afmæli landsins. Hitabylgja hefur truflað hátíðardagskrá og viðburðum hefur verið frestað.
Hitabylgjan vestra nær til um 160 milljóna Bandaríkjamanna. 40 stiga hita var spáð í Washington í dag og skrúðgöngu því aflýst. Ýmsir viðburðir verða þó haldnir, til dæmis flugeldasýning í kvöld. Fólk hefur verið hvatt til að mæta ekki fyrr en líður á daginn og hitinn hefur lækkað.