Þetta voru loforð Sjálfstæðisflokksins
Sjálfstæðisflokkurinn fer inn í meirihlutaviðræður í Reykjavík með ítarlegan lista yfir 152 loforð og aðgerðir. Flokkurinn vill ráðast strax í breytingar á samgöngum, skipulagi, leikskólamálum og rekstri borgarinnar og boðar umfangsmikla stefnubreytingu frá fráfarandi meirihluta.
Sjálfstæðisflokkurinn er í lykilstöðu til að ná fram kosningaloforðum sínum í meirihlutaviðræðum eftir að hann fékk níu borgarfulltrúa kjörna í nýafstöðnum borgarstjórnarkosningum. Hildur hefur lýst því að tveir augljósir kostir séu til myndunar meirihluta; annars vegar tveggja flokka meirihluta með Miðflokknum eða þriggja flokka meirihluta með Viðreisn og Framsókn.
Aðgerðarlisti flokksins, sem flokkurinn birti í aðdraganda kosninga, sýnir hvers konar breytingar Sjálfstæðismenn vilja setja á oddinn. Í heild lagði flokkurinn fram 152 loforð, sem skiptust niður í sjö málaflokka. Það eru fjölskyldumál, samgöngur, húsnæði, rekstur, hreyfingu og útivist, málefni eldri borgara og atvinnulíf og menningu.
Af þeim eru 29 aðgerðir sem koma eiga til framkvæmda á fyrstu 100 dögunum, 59 aðgerðir eiga að koma til framkvæmda innan tólf mánaða, 54 á kjörtímabilinu og tíu eru settar fram sem framtíðarmarkmið.
Bílastæði, leikskólar og niðurskurður fyrstu 100 dagana
Fyrstu hundrað dagana ætlar flokkurinn að ráðast í sýnilegar og einfaldar aðgerðir, sem þó …