Þessir blessuðu anti-rasistar

Geir Ágústsson skrifar:
Hildur Björnsdóttir segir að ekki verði á hennar vakt myndaður meirihluti þar sem fordómar séu í öndvegi eða liðnir.
„Hér er fólk að lýsa yfir áhyggjum af mögulegum meirihluta, hægri meirihluta eða hægri miðju meirihluta, að ákveðin sjónarhorn verði víkjandi. Ég vil segja strax að ég myndi aldrei kæra mig um að leiða meirihluta þar sem rasismi eða fordómar gagnvart minnihlutahópum eru í öndvegi eða liðnir, bara aldrei á minni vakt.“
Hvað er hún að vísa í, nákvæmlega?
Typpa- og píkumyndirnar á veggjum reykvískra grunnskóla sem fjésbókin ritskoðar sem klám þegar fólk reynir að birta þær? (Vonandi gera ábyrgðarmenn blog.is ekki hið sama.)

Reglulegar og kerfisbundnar árásir arabískra innflytjendadrengja á vegfarendur og vagnstjóra í Breiðholti?
Heilaþvottinn sem áttavillt börn eru sett í til að sannfæra þau um að þau séu í „röngum líkama“?
Ónýtu innflytjendastefnuna sem Danir lærðu fyrir 20 árum síðan að þyrfti að snúa við?
Hvað er leiðtogi Sjálfstæðismanna í Reykjavík eiginlega að vísa í?
Sveitarstjórnir eiga að reka grunnskóla, byggja og þrífa götur og sækja rusl. Allt er þetta í molum í Reykjavík og þótt þetta séu ekki endilega „sexý“ verkefni eins og regnbogamálaðar götur og allskyns fánanotkun við ráðhúsið þá eru þetta verkefnin sem fólk borgar fyrir með útsvari sínu og ætlast til að sé sinnt.
Allt þetta þvælutal um fordóma og að fólk þurfi að óttast eitthvað er bara til þess gert að afvegaleiða okkur frá skuldunum, getuleysinu til að sinna grunnverkefnum og fjáraustrinu í gæluverkefni sem enginn bað um.