Telur að bar­átta Ólafs muni koma í bakið á honum - Vísir

Telur að bar­átta Ólafs muni koma í bakið á honum - Vísir

Telur að bar­átta Ólafs muni koma í bakið á honum - Vísir

Dorrit varð forsetafrú þegar hún giftist Ólafi Ragnari Grímssyni árið 2003 og var það til ársins 2016, þegar Ólafur Ragnar lét af embætti. Nýverið greindi Vísir frá því að þau Ólafur Ragnar og Dorrit stæðu í skilnaðarferli. 

Ólafur Ragnar kom að stofnun samtakanna Áfram Ísland, sem berjast fyrir því að þjóðin greiði atkvæði gegn áframhaldandi aðildarviðræðum við ESB, og því hefur grein sem Dorrit ritar á Vísi í dag vakið mikla athygli. Í greininni virðist Dorrit hvetja til þess að já-ið verði ofan á á morgun.

Í greininni rifjar hún upp æsku sína í Jerúsalem þar sem hún hafi varið tíma sínum á markaðnum eða í skartgripaverslun föður síns, Shlomo Moussaieff. Þar hafi hún lært að semja.

„Ég lærði mjög snemma að allt hvað viðvíkur verslun og fjármálum sé umsemjanlegt. Maður byrjar á að fara fram á 100 prósent af því sem maður vill. Að semja ekki þýðir að maður tapar áður en maður byrjar.“

Alls ekki að segja þjóðinni hvað hún eigi að gera

Blaðamaður sló á þráðinn hjá Dorrit og bar upp einfalda spurningu, hvort hún væri að segja þjóðinni að segja já á morgun.

„Ég er ekki að segja fólki hvað það á að gera. Ég hef alla mína ævi mótmælt því að fólk segi mér fyrir verkum. Fólk þarf að mynda sér sína eigin skoðun.“

Mikilvægast sé að hver og einn vegi og meti málið vandlega og hugsi sérstaklega um það hverjir ókostirnir við aðildarviðræður séu.

„Ég sé enga. Ég sé enga ókosti við að kjósa með. En til að hafa það á hreinu, þá er þetta ekki atkvæðagreiðsla um inngöngu í ESB. Þetta er atkvæðagreiðsla um það hvað við getum fengið, hvaða ávinning við getum fengið út úr ESB fyrir Ísland. Við verðum augljóslega líka að verjast ókostunum til að tryggja að við séum ekki að gefa neitt eftir. Ég myndi vilja tryggja að eftir að við höfum gert allt þetta, fái hver einasti Íslendingur tækifæri til að láta í ljós skoðun sína þegar hann er fullupplýstur og þegar öll spil eru komin á borðið. Eins og staðan er núna er þetta ótrúlega gruggugt og óljóst. Svo hver er ókosturinn við að hlusta og semja? Og þetta á við um allt í lífinu. Allt.“

Ekki einu sinni hugsa um vatnið okkar, orkuna okkar eða fiskinn okkar

Þá segir hún að áður en aðildarviðræður hefjist þurfi Íslendingar að sýna á spilin og draga línur í sandinn.

„Ekki einu sinni hugsa um vatnið okkar, orkuna okkar eða fiskinn okkar. Þetta eru auðlindirnar okkar, sem mér finnst líka mjög mikilvægt að það sé skipt jafnt milli allra Íslendinga.“

Íslendingar þurfi einnig að setja félagslegt réttlæti á oddinn, það er að segja félagslegt réttlæti á Íslandi, ekki erlendis.

Þurfi ekki að kjósa já

„Þannig að við þurfum að taka allt þetta til greina. Og svo, munum við vera betur sett ef við ákveðum að ganga í sambandið? Við ætlum ekki að taka á okkur skuldir neins. Við ætlum ekki að heyja stríð fyrir neinn. Við erum hlutlaus, alveg eins og Sviss. Ef þú horfir á öll stríðin sem við höfum lent í, þá eru það stjórnmálamenn sem berjast sín á milli. Það eru vopnafyrirtæki sem græða gífurlega mikið af peningum alls staðar. Og getið þið hverjir þjást? Venjulegt fólk sem deyr, mæður sem missa börnin sín, eiginkonur sem missa eiginmenn sína. Mjög margar konur deyja líka.“

Svona sé þetta um allan heim, í Rússlandi og Úkraínu og Ísrael og Palestínu, og þetta þurfti að hætta.

„Þannig að ég er ekki að segja fólki að kjósa já eða nei. Ég er að segja fólki að svona er þetta. Þetta er hugsunarferlið. Og ef, eftir að hafa farið í gegnum hugsunarferlið, án þess að verða fyrir áhrifum af því sem ég kalla hjarðeðli, af öðru fólki, finnst þeim samt að undir engum kringumstæðum myndi Ísland hagnast á nokkurn hátt með því að ganga í ESB, þá þurfa þau ekki að kjósa já. Mjög einfalt.“

Telur að baráttan komi í bakið á Ólafi

Dorrit ítrekar að nálgast þurfi umræður um þjóðaratkvæðagreiðsluna á rökréttan hátt, án þess að segja fólki hvað það eigi að gera, enda komi það alltaf í bakið á fólki, að hennar mati.

„Það kemur mér á óvart að það hafi ekki komið í bakið á Ólafi. Persónulega held ég að það muni gera það en ég veit það ekki, ég er ekki á landinu. Ég vil alls ekki koma Ólafi í uppnám en á hinn bóginn finnst mér þetta svo skaðlegt, og ekki bara skaðlegt af því að Íslendingar missi af tækifærinu til að ganga í Evrópusambandið. Íslendingar eru ekki þröngsýnir, þeir taka samtalið. Rökræðan og samtalið er kjarninn í hinum menntaða manni. Rökræðan er kjarninn í gyðingdómnum. Það er óhugsandi að taka orð einhvers fyrir satt án þess að spyrja hvers vegna. Hvernig stendur á því? Hvað er þetta? Hver segir það? Ég býst við að það hafi verið ástæðan fyrir því að ég var rekin úr skóla. Af því að ég verð alltaf að spyrja hvers vegna.“

Stórasta land í heimi

Dorrit er um þessar mundir búsett í Bandaríkjunum en hefur enn íslenskan ríkisborgararétt og þar af leiðandi kosningarétt í atkvæðagreiðslunni á morgun. Hún segist hafa varið meiri tíma á Íslandi en nokkru öðru landi í heiminum og að hún voni að svo verði um ókomna tíð. Ísland sé henni kærasta land í heiminum og henni þyki vænna um velferð Íslands en nokkurs annars, ekki bara íslensku þjóðarinnar heldur einnig dýranna, jurtanna og steinefnanna.

Samtal Dorritar og blaðamanns fer fram á ensku en hún skipti yfir á íslensku til að segja eftirfarandi:

„Ísland er stórasta land í heimi. Við getum ákveðið sjálf hvað við gerum. Fólk á ekki að segja þér hvernig þú átt að kjósa, þú þarft að ákveða það sjálfur.“

Hvað varðar eigin atkvæði segist hún hafi reynt að greiða atkvæði en ekki tekist það sökum landfræðilegs ómöguleika. Hún hafi hvergi verið nálægt sendiráði síðan utankjörfundaratkvæðagreiðsla hófst og hún komist ekki til landsins til að greiða atkvæði á kjördag.

„Þessu verður að breyta nú þegar við lifum í stafrænum heimi, sem virkar allan sólarhringinn. Hvers vegna er það þannig að ef maður er hvergi nálægt sendiráði, þurfi maður samt að fara þangað til að greiða atkvæði?“

Hún segist þó fagna því að hægt sé að greiða atkvæði á kjördag þrátt fyrir að hafa áður greitt atkvæði utan kjörfundar, ef ske kynni að maður skipti um skoðun.

Var með húsnæðislán á Íslandi

Loks nefnir Dorrit sérstaklega lánamarkað hér á landi, í samhengi við komandi atkvæðagreiðslu. Henni finnist ungir Íslendingar greiða óásættanlegar upphæðir af húsnæðislánum sínum. Sjálf segist hún hafa náð að semja við íslenskan banka um betri íbúðalánakjör.

„Ég var þar til nýlega með húsnæðislán á Íslandi, nánar tiltekið þangað til að faðir minn lést og lét mér eftir peninga. Ég var með húsnæðislán fyrir heimili mitt á Íslandi og þegar einn banki rukkaði mig um 5 prósent, samdi ég við þá og sagði: „Ég borga ykkur ekki 5 prósent. Ég fer í bankann hérna við hliðina.“ Ég fór í bankann við hliðina og endaði með að borga rúm 4 prósent. Að lokum tókst mér að ná húsnæðisláninu mínu niður fyrir 4 prósent einfaldlega vegna þess að ég samdi og hafði val.“

Þá segir hún að tækju Íslendingar upp evru hefðu þeir val um 100 banka og hún telji að þá myndu húsnæðislánavextir lækka um helming.

„Unga fólkið þarf að vita þetta, þau þurfa að gera sér grein fyrir því hversu miklu meira þau gætu haldið eftir. Veistu hvað ég gæti gert við þessa peninga í staðinn? Getur þú ímyndað þér hversu mörgum kvöldverðum úti eða utanlandsferðum þeir myndu duga fyrir?“

#barátta #koma #muni #telur #ólafs


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262927398d/telur-ad-baratta-olafs-muni-koma-i-bakid-a-honum

📰 Aðrar fréttir

„Mér finnst aðallega óheppilegt að ég þurfi að taka þetta samtal við fréttamann“
📅 12.10.2026 👁️ 0
„Mér finnst aðallega óheppilegt að ég þurfi að taka þetta samtal við fréttamann“
Forseti Alþingis segir að engar kvartanir hafi borist vegna 5 þingmanna Norðausturkjördæmis sem skelltu sér í sund eftir hefðbundinn lokunartíma og hy...
Dóra Sif Tynes: Einkennilegt að þingmenn skuli vilja viðhalda réttindamissi Íslendinga
📅 12.10.2026 👁️ 1
Dóra Sif Tynes: Einkennilegt að þingmenn skuli vilja viðhalda réttindamissi Íslendinga
Það er einkennilegt að þingmenn á Alþingi Íslendinga vilji taka til varna fyrir EFTA-dómstólnum til að verja það að Íslendingar búi við skert réttindi...
Össur stendur með Sigmundi Davíð í stóra sundlaugarmálinu - Þetta er ástæðan
📅 12.10.2026 👁️ 1
Össur stendur með Sigmundi Davíð í stóra sundlaugarmálinu - Þetta er ástæðan
Fimm þingmenn Norðausturkjördæmis stálust í Selárlaug í Vopnafirði utan hefðbundins opnunartíma í nýliðinni kjördæmaviku. Frá þessu greindi RÚV á föst...
Sverrir bregst við þungum dómi fyrir skattsvik - „DÓMURINN SEGIR EKKI ALLA SÖGUNA“
📅 12.10.2026 👁️ 1
Sverrir bregst við þungum dómi fyrir skattsvik - „DÓMURINN SEGIR EKKI ALLA SÖGUNA“
Athafnamaðurinn Sverrir Einar Eiríksson segir dóm Héraðsdóms Reykjavíkur, þar sem honum var gert að sæta fangelsi og að greiða 105 milljón króna sekt ...
Einar rýndi í nýjustu spárnar fyrir veturinn – Þetta gætum við átt í vændum
📅 12.10.2026 👁️ 1
Einar rýndi í nýjustu spárnar fyrir veturinn – Þetta gætum við átt í vændum
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir nýjar langtímaveðurspár gefa óvenjuskýrar vísbendingar um hvernig veðrið gæti þróast hér á landi í vetur.Spá...
Gull að leysa kókaín af hólmi - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 0
Gull að leysa kókaín af hólmi - Vísir
Gull hefur hækkað verulega í verði á undanförnum árum og þar að auki er það ekki ólöglegt víða um heim eins og fíkniefni eru víðast hvar. Það er því a...
Sinnt út­kalli þar sem grind­verk hafði fokið fyrir ak­braut - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 0
Sinnt út­kalli þar sem grind­verk hafði fokið fyrir ak­braut - Vísir
Hafði lögreglan í nægu öðru að snúast í dag en meðal þeirra mála sem voru skráð í dagbók lögreglunnar frá klukkan fimm í morgun til klukkan 17:00 voru...
Nemendur koma verr undirbúnir til háskólanáms
📅 12.10.2026 👁️ 0
Nemendur koma verr undirbúnir til háskólanáms
Vinnuhópar hafa verið skipaðir, ræður haldnar, stefnur settar - og árið 2023 beitti Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þáverandi háskóla-, iðnaðar- og vís...
Abramovich’s close associate misled UK court in £1bn oil-fields case, documents suggest
📅 12.10.2026 👁️ 0
Abramovich’s close associate misled UK court in £1bn oil-fields case, documents suggest
Former Chelsea FC director, Eugene Tenenbaum, helped to manage the oligarch’s wealth.
Tvöhundruð tilkynningar borist vegna minni vatnsþrýstings
📅 12.10.2026 👁️ 0
Tvöhundruð tilkynningar borist vegna minni vatnsþrýstings
Um 200 tilkynningar hafa borist Veitum síðustu daga, ýmist vegna vatnsleysis eða minni þrýstings á vatni. Upplýsingafulltrúi segir slíkum tilkynningum...
Dómurinn segi ekki alla söguna - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 0
Dómurinn segi ekki alla söguna - Vísir
„Ég tel að aðgerðir yfirvalda hafi lamað rekstur þeirra fyrirtækja sem um ræðir. Nú er mér gert að sæta þungum viðurlögum vegna vanskila sem ég tel að...
Óánægja vex mest með störf Ingu Sæland
📅 12.10.2026 👁️ 0
Óánægja vex mest með störf Ingu Sæland
Óánægja hefur almennt vaxið með störf formanna ríkisstjórnarflokkanna frá því á síðasta ári. Vanþóknunin hefur vaxið mest í garð Ingu Sæland, formanns...
Stolnu mál­verkin fundust á bak við vegg - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Stolnu mál­verkin fundust á bak við vegg - Vísir
Málverkin tvö heita Portrait de Madame Colonna Romano og Jeune Femme au puits og eru talin vera 4,2 milljóna evra virði eða tæpar sex hundruð milljóni...
Netárás á stórmarkaði hitaði kæla og skemmdi mat
📅 12.10.2026 👁️ 2
Netárás á stórmarkaði hitaði kæla og skemmdi mat
Frönsku stórmarkaðskeðjurnar E. Leclerc, Intermarche og Cooperative U urðu fyrir netárás sem beindist að kælum stórmarkaðanna. Nokkur hundruð matvöruv...
Össur stendur með sundmönnunum - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Össur stendur með sundmönnunum - Vísir
Þetta segir Össur í færslu á Faceboo þar sem hann dregur dár að viðbrögðum við sundferð þingmanna Norðausturkjördæmis í kjördæmaviku. Málið hefur veri...
Frakkland stefnir í ríkisgjaldþrot
📅 12.10.2026 👁️ 2
Frakkland stefnir í ríkisgjaldþrot
Frakkland stefnir í ríkisgjaldþrot Fréttin12. október 2026Erlent, EvrópusambandiðLeave a Comment Emmanuel Macron , forseti Frakklands. „Gleymið Bandar...
Government expands police support to political figures who are not MPs
📅 12.10.2026 👁️ 2
Government expands police support to political figures who are not MPs
Shabana Mahmood says there is "insufficient protection" for those who play a role in public life.
Heimsendauggur á mismunandi tímum
📅 12.10.2026 👁️ 2
Heimsendauggur á mismunandi tímum
Um þessar mundir eru 40 ár liðin síðan Ronald Reagan og Mikhaíl Gorbatsjev, leiðtogar Bandaríkjanna og Sovétríkjanna ræddu umfangsmikla afvopnun á fun...
Andy Burnham to push for new post-Brexit deals at EU summit
📅 12.10.2026 👁️ 0
Andy Burnham to push for new post-Brexit deals at EU summit
Conservative leader Kemi Badenoch said the prime minister was "unpicking" the deal the UK signed with the EU.
Minnst einn lét lífið þegar hann handlék ósprungna sprengju
📅 12.10.2026 👁️ 2
Minnst einn lét lífið þegar hann handlék ósprungna sprengju
Að minnsta kosti einn var drepinn í norðurhluta Ísraels þegar árás var gerð á rútu með framhaldsskólanemum á skólaferðalagi nærri bænum Maalot-Tarshih...
Stærsti viðskiptaþvinganapakki ESB frá upphafi Úkraínustríðsins
📅 12.10.2026 👁️ 2
Stærsti viðskiptaþvinganapakki ESB frá upphafi Úkraínustríðsins
Evrópusambandið bætti formlega við hátt í 1.600 nýjum einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum á listann yfir þá sem sæta efnahags- eða viðskiptaþvingu...
Ragnhildur segir meðalmanninn eyða þetta löngum tíma í símann og samfélagsmiðla
📅 12.10.2026 👁️ 2
Ragnhildur segir meðalmanninn eyða þetta löngum tíma í símann og samfélagsmiðla
Ragnhildur Þórðardóttir, Ragga Nagli, er klínískur heilsusálfræðingur og einkaþjálfari. Á Facebook heldur hún úti vinsælli síðu þar sem hún birtir reg...
„Þetta er allt of hár dómur“
📅 12.10.2026 👁️ 2
„Þetta er allt of hár dómur“
„Þetta er allt of hár dómur,“ segir Þorgils Þorgilsson, lögmaður Andra Más Mortensen Birgissonar sem var í dag dæmdur í átta ára fangelsi fyrir aðild ...
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Friðurinn er grunnur að hamingjunni – hvað ætlum við Íslendingar að gera?
📅 12.10.2026 👁️ 2
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Friðurinn er grunnur að hamingjunni – hvað ætlum við Íslendingar að gera?
Fjörutíu árum eftir sögulegan fund Reagans og Gorbatsjovs í Höfða stöndum við aftur frammi fyrir heimi þar sem stríð, ótti og vígbúnaður ógna lífi og ...
NATO sendir Pútín skýr skilaboð – „Ef einhver er svo heimskur að ráðast á okkur“
📅 12.10.2026 👁️ 2
NATO sendir Pútín skýr skilaboð – „Ef einhver er svo heimskur að ráðast á okkur“
Æðsti yfirmaður herafla Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Evrópu hefur varað Rússa við því að bandalagið muni svara af fullum þunga ef ráðist verður á ...
Fasteignasali sneri tapi í sigur - Ósannað að hann hafi vitað af myglu í eign sem hann seldi
📅 12.10.2026 👁️ 2
Fasteignasali sneri tapi í sigur - Ósannað að hann hafi vitað af myglu í eign sem hann seldi
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt fasteignasala, eða nánar til tekið fasteignasölunni sem hann starfar á, í vil í deilumáli við kaupanda fasteignar. ...
Athafnamaður fær tveggja ára dóm og 105 milljóna sekt fyrir skattsvik
📅 12.10.2026 👁️ 2
Athafnamaður fær tveggja ára dóm og 105 milljóna sekt fyrir skattsvik
Athafnamaðurinn Sverrir Einar Eiríksson hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir meiriháttar skattalagabrot. Þar af er 21 mánuður skilorðsbundi...
Yfir sjö­tíu prósent ó­á­nægja með Ingu Sæ­land - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 3
Yfir sjö­tíu prósent ó­á­nægja með Ingu Sæ­land - Vísir
Í könnun Maskínu var spurt hversu vel eða illa formenn stjórnmálaflokka á Alþingi hafa staðið sig á kjörtímabilinu. Könnunin var gerð frá 2. til 7. ok...
„Við teljum okkur svikin og erum vonsvikin með það“
📅 12.10.2026 👁️ 2
„Við teljum okkur svikin og erum vonsvikin með það“
Formenn þingflokka stjórnarandstöðunnar segja innviðaráðherra hafa grafið undan trausti þegar línuívilnun og rækju- og skelbætur voru skornar niður í ...
Hútar ráðast áfram á Sádi-Arabíu – flugvellinum í Riyadh lokað fram eftir vikunni
📅 12.10.2026 👁️ 2
Hútar ráðast áfram á Sádi-Arabíu – flugvellinum í Riyadh lokað fram eftir vikunni
Skæruliðasveitir Húta í Jemen héldu eldflaugaárásum á Sádi-Arabíu áfram í gærkvöld og nótt. Árás var gerð á eina af flugstöðvum alþjóðaflugvallarins í...
On Yemen's desert battlefield, a war with global consequences is being waged
📅 12.10.2026 👁️ 2
On Yemen's desert battlefield, a war with global consequences is being waged
Yemen's entrenched civil war is now impossible to ignore. But in operating rooms in its port city of Aden, geopolitics feels remote.
Leita enn að einum eftir al­var­lega líkams­á­rás - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Leita enn að einum eftir al­var­lega líkams­á­rás - Vísir
Þetta staðfestir Stefán Sveinsson, aðstoðyfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á Suðurnesjum en Rúv greindi fyrst frá. Fimm eru grunaðir um aðild að líkam...
Ráðleggja minni loðnuveiði en gert var ráð fyrir
📅 12.10.2026 👁️ 2
Ráðleggja minni loðnuveiði en gert var ráð fyrir
Hafrannsóknastofnun og Náttúrustofnun Grænlands hafa uppfært veiðiráðgjöf fyrir loðnuvertíð vetursins. Í júní gerði Hafró ráð fyrir að veiða mætti 358...
„Reka inn á morgun“ áður en veðrið skellur á
📅 12.10.2026 👁️ 2
„Reka inn á morgun“ áður en veðrið skellur á
Djúp lægð stefnir á landið og má búast við hvassviðri og úrkomu á miðvikudag. Versta veðrið verður á norðvestanverðu landinu. Garðar Valur Gíslason er...
15-year-old girl rescued after falling into ravine in Tenerife
📅 12.10.2026 👁️ 3
15-year-old girl rescued after falling into ravine in Tenerife
A 15-year-old girl has been rescued by firefighters after falling into a ravine in Güímar, Tenerife, during the early hours of this morning (Monday).T...
Andri Már dæmdur í 8 ára fangelsi í Reykholtsmálinu
📅 12.10.2026 👁️ 2
Andri Már dæmdur í 8 ára fangelsi í Reykholtsmálinu
Andri Már Mortensen Birgisson var í dag dæmdur í átta ára fangelsi fyrir hlut sinn í Reykoltsmálinu. Frá refsingu hans dregst 41 dagur þar sem hann sa...
Breytingar framundan á verðtryggðum fasteignalánum - Styttri lánstími og takmarkanir á hækkun höfuðstóls
📅 12.10.2026 👁️ 3
Breytingar framundan á verðtryggðum fasteignalánum - Styttri lánstími og takmarkanir á hækkun höfuðstóls
Kynnt hafa verið í samráðsgátt stjórnvalda áform um lagabreytingar þegar kemur að verðtryggðum fasteignalánum. Meðal helstu breytinga sem til stendur ...
Höfuðpaurinn í Reykholtsmálinu fékk átta ára dóm - „Ég svífst einskis, mér er skítsama“
📅 12.10.2026 👁️ 3
Höfuðpaurinn í Reykholtsmálinu fékk átta ára dóm - „Ég svífst einskis, mér er skítsama“
Andri Már Mortenssen Birgisson hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir hlut sinn að svokölluðu Reykholtsmáli. Frá þessu greinir Vísir.
Þyngra andrúmsloft í Úkraínu en áður
📅 12.10.2026 👁️ 3
Þyngra andrúmsloft í Úkraínu en áður
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, sendiherra Íslands í Bretlandi og fyrrverandi utanríkisráðherra, segir andrúmsloftið í Úkraínu, sérstaklega í hö...
Lofaði henni vinnu á veitingastað á Mallorca – Neyddi hana í vændi í staðinn
📅 12.10.2026 👁️ 3
Lofaði henni vinnu á veitingastað á Mallorca – Neyddi hana í vændi í staðinn
Ung kona sem kom til Mallorca með loforð um vinnu á japönskum veitingastað var samkvæmt lögreglu neydd í vændi af manni sem hún hafði þekkt frá því hú...
Watch: What could Trump's energy ceasefire mean for Ukraine?
📅 12.10.2026 👁️ 3
Watch: What could Trump's energy ceasefire mean for Ukraine?
The BBC's Dan Johnson reports from Kyiv, where Ukrainians face another winter with electricity outages.
Miliband says Britain won't tolerate threats on our soil, as Iran ambassador summoned
📅 12.10.2026 👁️ 3
Miliband says Britain won't tolerate threats on our soil, as Iran ambassador summoned
The prime minister says Iran's Islamic Revolutionary Guard "almost certainly" directed the RAF Fairford incident.
Höfuð­paur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 3
Höfuð­paur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm - Vísir
Dómurinn var kveðinn upp klukkan þrjú í Héraðsdómi Suðurlands sem er á Selfossi. Sjá nánar: Fjárkúgun í Reykholti Ingunn Rut Sigurðardóttir, ein ákærð...
Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimm­tíu gráður - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 3
Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimm­tíu gráður - Vísir
Bæði Intermarché og Cooperative, tvær af stærstu stórmarkaðskeðjum Frakklands, urðu fyrir barðinu á tölvuárásinni, að því er segir í frétt evrópska bl...
Egede segir að erfitt verði að efla traust til Bandaríkjanna að nýju þótt brýnt sé
📅 12.10.2026 👁️ 3
Egede segir að erfitt verði að efla traust til Bandaríkjanna að nýju þótt brýnt sé
Grænlenski utanríkisráðherrann Múte B. Egede segir brýnt að endurheimta það traust til Bandaríkjanna sem ítrekuð ásælni Donalds Trump forseta hefði sk...
Fjögur handtekin grunuð um hópárás og lögregla leitar hins fimmta
📅 12.10.2026 👁️ 3
Fjögur handtekin grunuð um hópárás og lögregla leitar hins fimmta
Fjórir karlmenn og ein kona eru grunuð um stórfellda líkamsárás gegn karlmanni á þrítugsaldri í Reykjanesbæ fyrr í mánuðinum. Lögregla hefur handtekið...
Um­deild sjálfs­víg frægustu hryðju­verka­manna Þýska­lands - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 3
Um­deild sjálfs­víg frægustu hryðju­verka­manna Þýska­lands - Vísir
Rauða herdeildin, eða Rote Armee Fraktion á þýsku, spratt upp úr róttækri vinstrihreyfingu ungs fólks í Vestur-Þýskalandi eftir 1968. Herdeildin er þó...
Sigvaldi Einarsson skrifar: Við getum smíðað okkar eigið mállíkan
📅 12.10.2026 👁️ 3
Sigvaldi Einarsson skrifar: Við getum smíðað okkar eigið mállíkan
Í mars síðastliðnum kynnti Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, áform um íslenskt risamállíkan í samstarfi við leiðandi alþjóðl...
Oompa Loompa dvergur reyndist vera barnaperri – Með sokka og fótablæti
📅 12.10.2026 👁️ 3
Oompa Loompa dvergur reyndist vera barnaperri – Með sokka og fótablæti
Skoskur maður á fertugsaldri hefur verið dæmdur fyrir kynferðisbrot gagnvart börnum sem spanna sex ára tímabil. Maðurinn er dvergur og hefur leikið Oo...
Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 3
Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan - Vísir
Ummæli Ástu Lóu féllu í sérkennilegri deilu við Björn Þorláksson á Samstöðinni í gærkvöldi. Á Facebook-síðu sinni veltir Björn upp þeirri spurningu hv...