Ökumaður undir tvítugu var handtekinn á ellefta tímanum í gærkvöld eftir að ofsaakstri hans lauk með árekstri.
Lögreglu var tilkynnt um akstur piltsins skömmu fyrir klukkan tíu. Þá var hann á Reykjanesbraut á leið frá Suðurnesjum í átt að Hafnarfirði. Lögregla hóf eftirför og reyndi meðal annars að stöðva för bílsins með því að setja út naglamottur í Hafnarfirði og Garðabæ. Þær aðgerðir skiluðu ekki árangri.
Pilturinn ók um Hafnarfjörð, þar sem hann fór inn í Áslandshverfi, um Garðabæ og Kópavog áður en hann keyrði inn í Reykjavík. För hans lauk á frárein á Reykjanesbraut að Breiðholtsbraut. Þar keyrði hann aftan á fólksbíl. Krafturinn var slíkur að báðir bílarnir enduðu utan vegar.
Ökumaður og farþegi bílsins sem ekið var á voru fluttir á slysadeild. Meiðsl þeirra eru ekki talin alvarleg.
Bílstjórinn sem ók á miklum hraða um Reykjanesbraut og höfuðborgarsvæðið var handtekinn á vettvangi og fluttur til aðhlynningar á Landspítalanum.
Lögregla segir að ökumaðurinn hafi stofnað lífi og heilsu annarra vegfarenda í mikla hættu með aksturslagi sínu.