Sveitarstjórnarkosningarnar í gær fóru fram með skilvirkum og heiðarlegum hætti að mati eftirlitsnefndar Evrópuráðsins. Þetta kemur fram í tilkynningu nefndarinnar sem lagði leið sína til Íslands til að fylgjast með framkvæmd kosninganna.
Nefndin heyrir undir þing sveitarfélaga og svæðisstjórna Evrópuráðsins. Hlutverk þess er að efla og fylgjast með lýðræði víða í Evrópu.
Í tilkynningunni segir að eftirlitsmenn í sjö teymum á vegum nefndarinnar hafi verið sendir um land allt til að fylgjast með framkvæmd sveitarstjórnarkosninganna í gær.
Fulltrúar nefndarinnar heimsóttu yfir 65 kjörstaði
Þingið hefur aldrei áður fylgst með kosningum á Íslandi. Á þeim rúmu 65 kjörstöðum sem nefndin heimsótti var andrúmsloftið heilt yfir jákvætt og engin athugaverð atvik komu upp.
„Við vorum sérstaklega hrifin af því að í samfélagi þar sem traust ríkir í garð kosningaferla hafa íslensk yfirvöld innleitt ýmsar ráðstafanir til að efla heilindi kosninganna með góðum árangri,“ er haft eftir formanni nefndarinnar í tilkynningu.
Þar segir að þrátt fyrir að stjórn kosninga dreifist á marga staði hafi verið samræmi á milli ferla um land allt. Þó hafi verið einhver munur á auðkenningu kjósenda, talningaraðferðum og þjálfun kjörstjórnarmanna. Jafnframt hafi skilvirkni verið tryggð með öflugu starfsfólki á kjörstöðum.
Tækifæri til úrbóta
Í tilkynningunni segja nefndarmenn sveitarstjórnarkosningarnar hafa verið aðgengilegar fyrir ólíka hópa samfélagsins. Þannig hafi allir íbúar fengið tækifæri til þess að kjósa, bæði á kjördag og í aðdraganda kosninga.
Í niðurlagi tilkynningar nefndarinnar eru settar fram tillögur til úrbóta í framkvæmd sveitarstjórnarkosninga á Íslandi. Þar segir meðal annars að brýnt sé að hvetja unga kjósendur til að kjósa og bjóða sig fram til kosninga.
Þá mætti huga að skýrara regluverki í kringum pólitískar auglýsingar, tímalengd opinberrar kosningabaráttu og notkun samfélagsmiðla í pólitískum tilgangi.