Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 7,75%. Allir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun.
Í tilkynningu frá Seðlabankanum er bent á að verðbólga hafi verið yfir 5% það sem af er ári og mælist nú 5,2%. Verðbólguvæntingar hafi hækkað, einkum til skamms tíma.
„Hækkun þeirra frá því að stríðsátök hófust í Mið-Austurlöndum er þó ekki eins mikil og í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu fyrir fjórum árum. Þar vegur þungt að spennan í þjóðarbúinu var töluvert meiri þá.“
Þá vísar bankinn í nýbirta spá sína þar sem fram kemur að horfur séu á minni hagvexti og meira atvinnuleysi en spáð var í febrúar.
„Mikil hækkun olíu- og hrávöruverðs og viðvarandi innlendur verðbólguþrýstingur hafa á sama tíma leitt til þess að verðbólguhorfur hafa einnig versnað. Efnahagsaðstæður gætu þróast til verri vegar ef truflanir á alþjóðlegum olíumarkaði vara lengur en nú er gert ráð fyrir eða ef kjarasamningum verður sagt upp síðar á árinu.
Í ljósi verri verðbólguhorfa og hárra verðbólguvæntinga telur peningastefnunefnd rétt að hækka vexti bankans. Nefndin er jafnframt tilbúin að herða taumhald peningastefnunnar enn frekar til þess að tryggja hjöðnun verðbólgu að markmiði þótt það gæti hægt enn frekar á efnahagsumsvifum. Mótun peningastefnunnar mun þó sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.“